„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Sigmundur segir engan óhultan fyrir skaðlegum áhrifum pólitísks réttrúnaðar

Sigmundur segir engan óhultan fyrir skaðlegum áhrifum pólitísks réttrúnaðar
Sig­mundur Davíð

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, segir áhrif póli­tísks rétt­trún­aðar vera skað­leg sam­fé­lag­inu. Nú sé í gangi ný menn­ing­ar­bylt­ing­ sem ýti undir kyn­þátta­hyggju og fel­i í sér end­ur­skoðun sög­unnar, fórn­ar­lambs­menn­ingu og sam­fé­lags­legar aftökur.

„Nú þarf að standa vörð um grunn­gildi vest­rænn­ar sið­menn­ing­ar. Þau gildi sem skilað hafa sam­fé­lög­um meiri ár­angri en nokkuð annað í mann­kyns­sög­unni. Þar ber hæst hug­sjón­ina um að all­ir skuli telj­ast jafn­rétt­há­ir óháð lík­am­leg­um ein­kenn­um … Byggj­um áfram á því besta sem síð­ustu árþús­und hafa skilað okk­ur en köst­um því ekki á glæ til að þókn­ast þver­sagna­kennd­um og göln­um tíð­ar­anda sum­ars­ins 2020,“ segir Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu í dag, undir yfir­skrift­inni Sumarið 2020 og nýja menn­ing­ar­bylt­ingin.

Í grein­inni fjallar Sig­mundur Davíð um skað­leg áhrif póli­tísks rétt­trún­aðar, sem virð­ast tröll­ríða öllu á Vest­ur­löndum að mati for­manns­ins. Tilefni skrif­anna virð­ist meðal ann­ars vera bar­átta hreyf­ing­ar­innar Black Lives Matter gegn ofbeldi stjórn­valda og lög­reglu á svörtu fólki í Banda­ríkj­unum, en hreyf­ingin hefur sér­stak­lega látið til sín taka eftir að morð lög­reglu á George Floyd í Minn­ea­polis náð­ist á mynd­band og var dreift á sam­fé­lags­miðlum í lok maí á þessu ári.

Virðist Sig­mundur Davíð telja að hreyf­ingin end­ur­veki kyn­þátta­hyggju og sé hluti af nýrri menn­ing­ar­bylt­ingu sem beri m.a. með sér öll ein­kenni öfga­trú­ar, „þ.m.t. at­hafn­ir sem fólki er ætlað að und­ir­gang­ast til að sanna und­ir­gefni sína gagn­vart rétt­trún­að­inum“.

„Menn­ing­ar­bylt­ing Vest­ur­landa er byggð á því sem kallað hef­ur verið fórn­ar­lamba­menn­ing. Til­hneig­ingu til að skipa fólki í hópa sem njóta mis­mik­illa rétt­inda eft­ir því hversu hátt þeir skora á óform­leg­um fórn­ar­lamba­skala,“ skrifar Sig­mundur Davíð meðal ann­ars í grein sinni.

Þótt leið­tog­ar nýju menn­ing­ar­bylt­ing­ar­inn­ar hafi ekki vald til að taka fólk af lífi séu þó af­tök­ur eitt helsta ein­kenni hreyf­ing­ar­inn­ar, það er að segja sam­fé­lags­leg­ar af­tök­ur, bendir hann á. All­ir sem fjalli á gagn­rýn­inn hátt um at­b­urðarás­ina geti átt von á að verða „tekn­ir af lífi“ á sam­fé­lags­miðlum og í fjöl­miðlum. Þar sé eng­inn óhult­ur. Meira þeir sem taki þátt í henni geti vænst þess að verða skot­mörk síðar meir. „Bylt­ing­in étur börn­in sín“. Til við­bót­ar við rit­skoðun sam­tímaum­ræðu felist mik­il­væg­ur þátt­ur menn­ing­ar­bylt­ing­ar­inn­ar síðan í því að end­ur­skrifa sög­una. Þar sé ekk­ert óhult, hvorki sígildar kvik­myndir né sögu­leg minn­is­merki.

Telur Sig­mundur Davíð tíma­bært að spyrna við fótum og standa vörð um grunn­gildi vest­rænn­ar sið­menn­ing­ar. Gildin sem skilað hafa sam­fé­lög­um meiri ár­angri en nokkuð annað í mann­kyns­sög­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

pólitík

Bjarni Ben tætir í sig hælisleitendur: „Það er ekki hægt að réttlæta þetta lengur“
Innlentpólitík

Bjarni Ben tætir í sig hæl­is­leit­endur: „Það er ekki hægt að rétt­læta þetta lengur“

Í við­tali í hlað­varpi hjá fjöl­miðla­mann­inum Sölva Tryggva­syni fer Bjarni Bene­dikts­son, for­sæt­is­ráð­herra Íslands, hörðum orðum um hæl­is­leit­endur á Íslandi og er ósáttur með þá gagn­rýni sem rík­is­stjórn hans hefur fengið en telja sumir að hún hafi sýnt mann­vonsku og jafn­vel alið á útlend­inga­hatri. „Varðandi hæl­is­leit­enda­málin, þá hefur heim­ur­inn breyst mikið á skömmum tíma og straumur flótta­manna hefur auk­ist gríð­ar­lega. Það...
Hildur vandar Degi ekki orlofskveðjurnar: „Eðlilegt að fólk rísi upp á afturlappirnar“
Innlentpólitík

Hildur vandar Degi ekki orlofs­kveðj­urnar: „Eðlilegt að fólk rísi upp á aft­ur­lapp­irnar“

Hildur Björns­dóttir, odd­viti Sjálf­stæð­is­flokks­ins í borg­ar­stjórn, seg­ist líta á orlofs­mál Dags B. Egg­erts­sonar, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóra Reykja­víkur, mjög alvar­legum augum en Dagur fékk 9,7 millj­ónir króna greiddar vegna orlofs við starfs­lok sem borg­ar­stjóri. Þar er um að ræða sam­kvæmt upp­lýs­ingum borg­ar­rit­ara, upp­safnað sum­ar­frí að hluta í 10 ára borg­ar­stjóra­tíð hans. Hún taldi eðli­legt að kalla eftir upp­lýs­ingum með hvaða hætti upp­gjörum...
Ragnar gagnrýnir ummæli Bjarna Ben: „Mjög ógeðfellt og ósanngjarnt“
Innlentpólitík

Ragnar gagn­rýnir ummæli Bjarna Ben: „Mjög ógeð­fellt og ósann­gjarnt“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, er ekki sáttur við Bjarna Bene­dikts­sonar. Í gær­kvöldi var Bjarni Bene­dikts­son, utan­rík­is­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, gestur í Silfrinu á RÚV til að ræða helstu mál­efni líð­andi stundar á Íslandi. Meðal þeirra hluta sem ræddir voru má nefna Grinda­vík og kjara­samn­inga og taldi Bjarni að verka­lýðs­fé­lög lands­ins gætu þurft að taka til­lit til ástands­ins í Grinda­vík...
Mótmælir mótmælunum – Vill herða reglur og auka landamæraeftirlit: „Þessar dapurlegu tjaldbúðir“
Innlentpólitík

Mótmælir mót­mæl­unum – Vill herða reglur og auka landamæra­eft­ir­lit: „Þessar dap­ur­legu tjald­búðir“

„Það er hörm­ung að sjá tjald­búðir við Aust­ur­völl sem nú hafa staðið þar síðan 27. des­em­ber síð­stlið­inn. Það er óboð­legt með öllu að Reykja­vík­ur­borg hafi gefið leyfi fyrir tjald­búð­unum á þessum helga stað milli stytt­unnar af Jóni Sig­urðs­syni og Alþingis,“ svo ritar Bjarni Bene­dikts­son utan­rík­is­ráð­herra Íslands í nýrri færslu sem hann birti á sam­fé­lags­miðl­inum Facebook í kvöld. Bjarni virð­ist vera...
Gísli grét þegar hann viðurkenndi brot sitt fyrir Hönnu Birnu: „Það er ég sem gerði þetta“
Innlent

Gísli grét þegar hann við­ur­kenndi brot sitt fyrir Hönnu Birnu: „Það er ég sem gerði þetta“

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir er komin aftur á sjón­ar­sviðið eftir að hafa haldið sig úr sviðs­ljós­inu árum saman. Í við­tali í hlað­varps­þætt­inum Eftirmál ræðir Hanna Birna um leka­málið alræmda en það varð á end­anum til þess að hún þurfti að segja af sér ráð­herra­emb­ætti og Gísli Freyr Val­dórs­son, þáver­andi aðstoð­ar­maður hennar, var dæmdur í skil­orðs­bundið átta mán­aða fang­elsi. Í hlað­varp­inu ræðir...
Nýr fjármálaráðherra kynntur á morgun – Svandís mögulega færð til
Innlentpólitík

Nýr fjár­mála­ráð­herra kynntur á morgun – Svandís mögu­lega færð til

Boðað hefur verið til blaða­manna­fundar. Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir þrír hafa boðað til blaða­manna­fundar kl. 11:00 í fyrra­málið. Má gera ráð fyrir að þar verði til­kynntar breyt­ingar á rík­is­stjórn­inni í kjöl­far þess að Bjarni Bene­dikts­son sagði af sér sem fjár­mála­ráð­herra í eftir að Umboðs­maður Alþingis skil­aði áliti um að Bjarni hafi verið óhæfur til að sjá um sölu Íslands­banka. Fund­ur­inn fer fram í...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins