„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Georg vill eyða fátækt með kænsku og kærleika: „Verst var að hitta mömmu í röðinni, að sjá aðra kynslóð í fátækt“

Georg vill eyða fátækt með kænsku og kærleika: „Verst var að hitta mömmu í röðinni, að sjá aðra kynslóð í fátækt“

„Ég fæ alltaf sting í hjartað þegar ég sé tætta móður með barn í eft­ir­dragi sem er fátæk­lega klætt, þannig man ég líka eftir mér. Það hjálpar ekki stráka­lák að vera innan um ofbeldið sem fylgir alkó­hól­isma, þessi partý og ofbeldið sem því fylgir, and­legt, kyn­ferð­is­legt og lík­am­legt. Ég gat haldið for­tíð­inni niðri þangað til að ég var 45 ára og síðan kom þetta allt upp á yfir­borðið“ segir Georg sem veikt­ist fyrir sjö árum. „Ég er með jafn­braut­ar­lest inn í hausnum, kvíða­röskun, geð­hvarfa­sýki og með þessu er ég að kljást við alkó­hól­isma, sem er algengur fylgi­fiskur með minni grein­ingu.“

Georg segir sögu sína á Facebook-síð­unni: Við erum hér líka, huldu­fólks­sögur úr nútím­anum, en það eru hjónin Alda Lóa Leifs­dóttir og Gunnar Smári Egilsson sem skrifa þar sam­tíma­sögur öryrkja á Íslandi.

Georg fær 265 þús­und krónur í örorku­bætur, af þeirri upp­hæð borgar hann 89 þús­und í leigu á mán­uði, rúmar 5 þús­und í raf­magn, 8 þús­und fyrir síma og net og um 19 þús­und krónur fyrir lyf. Georg kaupir allt í Rauða­kross­búð­unum nema nær­föt og sokka. Hann notar ekki bíl og heldur mat­ar­kostn­aði niðri og borðar oft­ast eina heita mál­tíð hjá Samhjálp á dag. Það er lítið afgangs fyrir tann­lækni eða annarri þjón­ustu sem fólk þarf á að halda til þess að halda virð­ingu sinni.

Dreginn með lögregluvaldi úr strætó

Hann hefur barist fyrir því að fá frítt í strætó, en sá kostn­aður er 15% af ráð­stöf­un­ar­tekjum hans eftir föst útgjöld. „Ég var lengst af í sam­bandi við við Heiðu Björg Hilm­is­dóttur þegar hún var í stjórn Strætós. Við ræddum þetta fram og aftur, en nið­ur­staðan var sú að það væri svo flókið að öryrkjar fengu frítt í strætó,“ segir hann en þrisvar hefur hann verið tek­inn með lög­reglu­valdi úr strætó eftir að hafa neitað að borga.

„Lög­reglan kom og ég var dreg­inn út en hvað gat hún gert við 50 ára gamlan karl sem lagð­ist á gólfið í strætó, hver gerir svo­leiðis á Íslandi? Löggan var hálf ráða­laus þegar ég sagði þeim að ég væri þreyttur og svangur, sem var stað­reyndin.“

Verst að hitta mömmu í röðinni

Georg vann lengst af sem sendi­bíl­stjóri á eigin bíl með fasta við­skipta­vini eins og Mæðra­styrks­nefnd og Fiskbúð Hafliða, eftir að hann var rek­inn þaðan, hrak­aði heilsu hans veru­lega. Kvíðinn jókst og drykkja og van­líðan tók yfir og hann átti erfitt með að koma sér að verki. Eftir að hafa ráðið sig í ösk­una og verið þar með manna­for­ráð, en misst þá vinnu líka vegna alkó­hól­ism­ans fór Georg á sveit­ina eins og hann kallar það. Á fundi í Efsta­leiti var honum bent á staði til að leita sér aðstoðar: Mæðra­styrks­nefnd, Samhjálp og Kirkjan. „Mér leið eins og það væri að líða yfir mig, ég missti allan mátt eins og ég væri sokk­inn ofan í hyl­dýpi.“

„Ég þekkti Mæðra­styrks­nefnd frá þeim tíma sem ég var að keyra út. Samtökin voru minn við­skipta­vinur og ég þekkti vel til starf­sem­innar. Þarna kemur flótta­fólk, öryrkjar, gam­alt fólk, alkó­hólistar með geð­sjúk­dóma eins og ég. Fólkið utan sam­fé­lags­ins og af mis­mun­andi ástæðum sem getur ekki fótað sig innan þess. Það er rík hefð fyrir því að fest­ast í röð­inni hjá Mærðra­styrks­nefnd og það versta er að það venst. Lang­flestir sem fara inn á þetta koma ekki aftur út. Verst var að hitta mömmu í röð­inni, að sjá aðra kyn­slóð í fátækt. Það var eins og að vera í Englandi, þar sem fátæktin erf­ist frá kyn­slóð til næstu kyn­slóðar.“

Georg var fár­veikur af alkó­hól­isma, kvíða og þung­lyndi og náði sér aldrei upp í eðli­lega líðan. Eftir þrjú ár ár stakk ráð­gjaf­inn upp á því við Georg að hann færi á örorku. „Ég var svo hissa, af hverju var ég ekki settur strax á örorku? En ég fékk mjög góðan félags­ráð­gjafa sem kenndi mér að semja og for­gangs­raða. Hann kenndi mér að borga hita og raf­magn og síðan að semja við Modus, en ég var komin í skuld við Félags­bú­staði sem er í mjög góðu sam­starfi við Modus. Ég fékk meira að segja borgað aftur í tím­ann sem var glópa­lán en ég hafði vit á því að sækja um það og í kjöl­farið gat ég borgað skuld­ina við Reykja­vík­ur­borg og gefið börnum mínum aur, ég fór í Bónus og keypti allt sem mig lang­aði fyrir 19 þús­und krónur. En svo var veislan búin og ég átti eftir að borga skatta af þessu.“

Gjörningur á Hlemmi vakti mikla athygli

Georg skráði sig í Mynd­list­ar­skóla Reykja­víkur í miðjum veik­indum og kláraði skól­ann. Gjörn­ingur sem hann hélt inn á Mat­höll­inni á Hlemmi þar sem hann bað um orðið og hélt ræðu um fátækt á Íslandi er enn hans þekktasta verk. Gjörn­ing­ur­inn var tek­inn upp og fór á netið og er með tæp 58.000 áhorf. Þarna stóð hann í fyrr­ver­andi strætó­skýli sem hafði verið umbreytt í mat­sölu­stað fyrir hina betur settu og honum og öðrum sem hafa beðið eftir strætó í tugi ára hefur verið úthýst.

Ætlar að eyða fátækt

Georg er með plan, hann ætlar að breyta heim­inum og eyða fátækt með kænsku og kær­leika.

„Ég er að vona að ég verði edrú alltaf það sem eftir er. Ég hef fundið takt í líf mitt sem er taktur kærust­unnar minnar og hún er frá austur Evrópu og kann að lifa spart. Ég er hrika­lega skot­inn í henni. Ég var lengi skot­inn í henni úr fjar­lægð en hún tók ekki eftir mér fyrr en ég klippti mig. Ég hef gefið lista­gyðj­unni líf mitt og ætla að halda áfram að gera list sem hefur póli­tískan til­gang. Ég er í dauða­færi að búa til fal­legt líf, en ég má ekki drekka.“

Sögu Georgs má lesa í heild sinni á Facebook-síðu: Við erum hér líka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins