Laxaborgari með wasabi og dillsósu
4 borgarar
300 g ferskur lax, roðflettur og beinhreinsaður
1 eggjarauða
2 msk. sojasósa
1 msk. límónusafi
börkur af einni límónu
1 tsk. rifið engifer
1/2 grænn chili-pipar, saxaður
brauðrasp ef þarf
salt og svartur pipar eftir smekk
100 g sesamfræ, til að hjúpa með
Saxið laxinn niður með hníf og setjið í skál. Blandið hinum hráefnunum saman við og mótið í fjögur buff. Ef ykkur finnst blandan vera of þunn má bæta örlitlu brauðraspi saman við. Sáldrið sesamfræjum yfir og steikið á miðlungshita í um það bil 2 ½ mínútu á hvorri hlið.
Dillsósa
hnefafylli dill, saxað
börkur og safi úr einni límónu
2 dl japanskt majónes
salt og svartur pipar eftir smekk
Hrærið allt saman.
Ofan á
klettasalat, wasabi, agúrkur og grænt epli
Meðlæti
Borið fram með villihrísgrjónum, sojasósu og pikluðu engifer
Umsjón / Gunnar Helgi Guðjónsson
Stílisti / Ólöf Jakobína Ernudóttir
Ljósmyndir / Ernir Eyjólfsson
















Athugasemdir