„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Gabríela ólétt og smitaðist af rjómafernu – Amma smituð líka

Gabríela ólétt og smitaðist af rjómafernu – Amma smituð líka
Mæðra­skoðun Gabríela Birna Jóns­dóttir greind­ist með COVID 19. Hámarks­ör­ygg­is­gæsla er við skoð­un­ina eins og sjá má.

„Ég hitti ömmu mína á föstu­degi og fór í búð áður. Ég hef örugg­lega bara smit­ast af rjóma­fern­unni sem ég keypti eða ein­hverjum snertifleti,“ segir Gabríela Birna Jóns­dóttir, 24 ára íþrótta- og heilsu­fræð­ingur úr Reykja­vík, sem greind­ist með COVID 19 þann 1. ágúst. Hún er barns­haf­andi og átti aðeins eftir hálfan mánuð af með­göng­unni.

Gabríela Birna segir í sam­tali við Mannlíf að hún hafi í fyrstu talið að veik­indi og hiti sem hún fann fyrir á mánu­degi tengd­ust með­göng­unni.
„Ég varð mjög slöpp, fékk hita, bein­verki og höf­uð­verk en hélt fyrst að þetta væri eitt­hvað óléttu­tengt. Ég hafði svo sam­band við heilsu­gæsl­una en okkur grun­aði að ég væri að fá með­göngu­eitrun en af því að blóð­þrýst­ing­ur­inn var í lagi þá voru þau ekk­ert að stressa sig á því,“ segir Gabríela.

Missti bragðskynið

Henni var sagt að hvíla sig en ein­kennin fóru hratt versn­andi. Hún svaf allan næsta dag. „Svo lækk­aði hit­inn og ég var hita­laus um kvöldið. Þá fór mér strax að skána en ég fékk ennþá haus­verk af og til,“ segir hún.

Á mið­viku­deg­inum missti Gabríela bragð- og lykt­ar­skyn og fór þá að gruna að hún væri COVID smituð. Hjúkr­un­ar­fræð­ingur boð­aði hana í sýna­töku sem leiddi í ljós að grun­semdir Gabríelu eru réttar. Hún reynd­ist smituð. Gabríelu seg­ist hafa verið brugðið þar sem lítið væri vitað um áhrif COVID á ófætt barn. En hreyf­ingar barns­ins voru eðli­legar og sló það á áhyggjur hennar af ófæddum syni sínum.

„Hann hreyfði sig á fullu. Ég var líka búin að lesa mér til um að þetta hefði engin áhrif svona í lok með­göng­unnar,“ segir hún.

Óttast mest að fæða í einangrun

Gabríelu var skipað að fara í tveggja vikna ein­angrun ásamt unnusta sínum sem reynd­ist einnig smit­aður. Loka­dagur ein­angr­un­innar er sá sami og settur fæð­ing­ar­dagur sonar þeirra. Næstu daga tók við mikið ferli við að rekja smitið. Amma Gabríelu smit­að­ist einnig af sjúk­dómnum og eru ein­kenni þeirra sam­bæri­leg. Gabríela seg­ist ótt­ast mest að fara af stað í fæð­ingu áður en hún klárar ein­angrun, þurfa að vera ein á þessum stóra degi og að unnusti hennar missi af fæð­ingu barns­ins þeirra. „Ég var búin að sjá þetta allt fyrir mér og var spennt fyrir að sjá hann upp­lifa fæð­ing­una.“

Gabríela hefur almennt verið jákvæð í gegnum þetta ferli og gert það sem hún getur til að gera lífið sem bæri­leg­ast. „Í raun­inni er ekk­ert sem ég get gert til þess að stjórna því hvernig þetta fer. Ég þarf bara að taka þessu eins og það kemur.“

Dóttirin slapp

Gabríela segir það hafa verið erfitt að vera frá þriggja ára dóttur sinni í ein­angr­un­inni. Hún slapp við smit og dvelur hjá ætt­ingjum þar til móðir hennar losnar úr ein­angrun.
„Hún er búin að taka þessu furðu­vel en hún saknar okkar og spyr hvort við séum núna hætt að vera lasin.“

Gabríela, unnusti hennar, ætt­ingjar og vinir liggja nú á bæn og von­ast til að barnið bíði með komu sína þar til ein­angrun er lokið. Hún von­ast til þess að ganga fram yfir settan fæð­inga­dag barns­ins síns. Það er mjög sér­stakt eins og reyndar að þunguð kona smit­ist á sein­ustu metrum með­göng­unnar.

Texti / Harpa Mjöll Reyn­is­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hressasta núna“
InnlentCovid-19

Sanna greind með Covid-19: „Er ekki sú hress­asta núna“

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir er komin með Covid-19. Covid-19 far­ald­ur­inn er orð­inn hluti af líf­inu líkt og spáð hafði verið en smitum hefur fjölgað gríð­ar­lega á Íslandi að und­an­förnu. Lang­flestir sem smit­ast veikj­ast ekki alvar­lega og ná sér að fullu en það á þó ekki um alla, sér í lagi eldra fólk og við­kvæma. Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúia Sós­í­alista sagði frá...
Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfsábyrgðin er harður húsbóndi“
InnlentCovid-19

Steinunn Ólína ver vin sinn Kára: „Sjálfs­á­byrgðin er harður hús­bóndi“

Steinunn Ólína Þor­steins­dóttir tekur upp hansk­ann fyrir vin sinn, Kára Stef­áns­son, sem nýverið við­ur­kenndi að mögu­lega hefði verið nóg að gefa eldra fólki og fólki með und­ir­liggj­andi sjúk­dóma, bólu­efni gegn Covid-19 veirunni. Steinunn Ólína. Játning Kára Stef­áns­sonar, sem var áber­andi þegar heims­far­ald­ur­inn gekk yfir Ísland, hefur vakið mikla athygli á sam­fé­lags­miðlum og eru margir afar reiðir vís­inda­mann­inum, fyrir að mæla...
Læknirinn Guðmundur Karl um Covid-faraldurinn: ,,Blekkingarleikurinn er ekki búinn”
Innlent

Lækn­ir­inn Guð­mundur Karl um Covid-far­ald­ur­inn: ,,Blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn”

Guð­mundur Karl Snæ­björns­son, sér­fræð­ingur í hem­il­is­lækn­ingum segir hættu­legt að afsala ákvarð­ana­töku í lýð­heilsu til mið­stýrðra afla úti í heimi. Guð­mundur Karl, sem er nýjasti gest­ur­inn í podcasti Sölva Tryggva­sonar segir að við verðum að gera upp Covid-far­ald­ur­inn heild­stætt til þess að ákveðnir hlutir end­ur­taki sig ekki: „Covid er ekki búið að því marki að blekk­ing­ar­leik­ur­inn er ekki búinn. Við getum...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins