„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Foreldrar uggandi í Kópavogi: Drengir með kylfur sagðir hóta að mæta aftur

Foreldrar uggandi í Kópavogi: Drengir með kylfur sagðir hóta að mæta aftur

Fjöldi lög­reglu­bíla sem og bíll sér­sveitar rík­is­lög­reglu­stjóra voru sendir á vett­vang í gær­kvöldi eftir að til­kynnt hafði verið um hópslags­mál  á lóð Hörðu­valla­skóla í Kór­a­hverfi í Kópavogi.

Gunnar Hilm­ars­son, aðal­varð­stjóri hjá lög­regl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, lýsir atvik­inu svo í sam­tali við Vísi: „Þetta voru um 150 til tvö hund­ruð krakkar. Þetta var mjög óljóst en engar til­kynn­ingar eru um að nokkur hafi slasast. En þarna var gríð­ar­legur fjöldi af krökkum, fyr­ir­gangur og ein­hverjir á bílum að elta krakka inni á skóla­lóð­inni.“

Foreldri barns við skól­ann hvetur aðra for­ráða­menn til að mæta og vakta skól­ann í kvöld. Ungir drengir eru sagðir hafa mætt í gær með kylfur gagn­gert til þess að lúskra á öðrum krökkum. Fyrr­nefnt for­eldri segir innan Facebook-hóps íbúa hverfs­ins að þeir hafi hótað að mæta aftur í kvöld.

„Í gær þurfti hvorki fleiri næ færri en 4 lög­reglu­bíla og 1 sér­sveita­bíl lög­regl­unnar vegna slags­mála á skóla­lóð Hörðu­valla­skóla. Ungir drengir mættu þar gagn­gert að er virð­ist til þess að lemja aðra drengi og það með kylfum,“ segir mað­ur­inn,

Hann segir að ástandið hafi verið hættu­legt. „Sjálfur hringi ég beint á lög­regl­una og hleyp út þegar ég sá drengi koma hlaup­andi í átt að skól­anum og nokkra bíla á blússandi ferð inn að skóla­lóð­inni. Þegar út er komið keyrir einn þessa bíla mig næstum því niður og þurfti ég í orðs­ins fyllstu merk­ingu að hoppa frá bílnum sem kom á ca 100km hraða frá skóla­lóð­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins