„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fokreiðir strandveiðimenn: „Aumingjaskapur af ráðherranum“

Fokreiðir strandveiðimenn: „Aumingjaskapur af ráðherranum“
Elías Svavar Krist­ins­son harð­yrtur í garð mat­væla­ráð­herra

Strand­veiði­bátum er óheim­ilt að róa til fiskjar eftir dag­inn í dag. Heild­ar­kvóti flot­ans er upp­ur­inn og allur flot­inn, um 600 bátar, í kringum landið verður bund­inn þegar aðeins átta veiði­dagar eru liðnir af mán­uð­inum. Ver­tíð­inni, sem hófst í maí, er því lokið þegar ágúst­mán­uður er rúm­lega hálfn­aður.  Vonir voru uppi um að Kristján Þór Júl­í­us­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra myndi bæta við kvót­ann til að tryggja flot­anum úthald út mán­uð­inn en þær hafa nú brugð­ist. Mikil reiði er á meðal sjó­manna á svæði B og C. Þeir fara illa út úr sumr­inu á meðan bátar á svæði A hafa tekið til sín mestan kvóta úr sam­eig­in­legum potti. Elías Svavar Krist­ins­son, skip­stjóri á Dröngum á Ströndum, er einn þeirra sem mis­býður. Hann gerir út á svæði B.

Það hefði verið auð­velt að finna kvóta

„Okkur var talin trú um að við fengjum alltaf 12 daga í hverjum mán­uði. Við á B-svæði vorum blekktir til að sam­þykkja breyt­ingar á strand­veiði­kerf­inu. Það tapa allir nema Vest­firð­ingar á A-svæði sem hagn­ast á þessu,” segir Elías sem gert hefur verið að stöðva veiðar eftir dag­inn í dag. Hann hefur róið 8 daga í mán­uð­inum. Þetta þýðir tap upp á milljón krónur á bát. Elías botnar ekk­ert í ráð­herra sjáv­ar­út­vegs­mála.

„Þetta er aum­ingja­skapur af ráð­herr­anum. Það hefði verið auð­velt að finna kvóta fyrir þessa þrjá daga sem standa út af hjá flestum. Hann finnur ekki kvóta upp á örfá tonn. Mér sýn­ist þetta vera 1000 tonn sem þurfti til að trygga úthaldið. En stór­út­gerðin má færa 30 pró­sent af kvót­anum milli ára. Við erum að tala um 100 þús­und tonn í því til­viki. Þá er nógur fiskur í sjónum. Ráð­herr­ann er svo getu­laus að hann finnur ekki 1000 tonn fyrir almúg­ann. Það blasir við fyrir hverja þessi vol­aða rík­is­stjórn er að vinna. Við búum í Nígeríu norð­urs­ins,” segir Elías.

Hann segir útfærslu veið­anna og stoppið nú vera sér­stak­lega slæmt fyrir Aust­firð­inga.

„Fisk­ur­inn gengur seint á grunn­mið fyrir austan vegna þess hve kaldur sjór­inn er. Sjómenn fyrir austan eru ævareiðir. Með réttu hefði átt að bæta sept­em­ber inn í kerfið og gefa okkur 12 daga í við­bót í stað þess að stöðva veið­arnar nú,” segir Elías sem hefur þegar bundið bát sinn við bryggju og lokið úthaldi þessa árs.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins