Sellerírótar- og fennelsúpa með ristuðum hvítlauk og kóríander
fyrir 4
3 msk. olía
2 stk. blaðlaukur, gróft saxaðir
1 meðalstór sellerírót
1 meðalstórt fennel, í bitum
1,5 l grænmetissoð
nýmalaður pipar eftir smekk
3 tsk. sjávarsalt, meira eftir smekk
5 hvítlauksgeirar, fínt sneiddir, t.d. með mandólíni
handfylli ferskur kóríander
Hitið ofninn í 180°C. Steikið blaðlaukinn í 5-7 mín. á pönnu. passið að hræra í af og til. Bætið sellerírótinni og fennel saman við og steikið í um 5 mín. Hellið grænmetissoðinu saman við og látið malla í 15-20 mín. og bragðbætið með salti og pipar. Setjið hvítlauksneiðarnar á smjörpappír og bakið í um 5 mín. í ofni eða þar til þær fara aðeins að gyllast, fylgjast þarf mjög vel með svo þær brenni ekki. Þegar grænmetið er soðið, setjið það þá í matvinnsluvél og maukið, bætið ferskum kóríander saman við og maukið með. Setjið í pott og hitið aftur og bragðbætið með salti og pipar. Skreytið með bökuðum hvítlaukssneiðum og kóríander.
Umsjón / Bergþóra Jónsdóttir
Mynd / Hákon Davíð Björnsson





















Athugasemdir