„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Frjáls eins og fuglinn

Frjáls eins og fuglinn

Fallegt hús­gagn sem á sér áhuga­verða sögu.

Hanging Egg Chair kom á markað árið 1959 og var hann­aður af Jørgen og Nönnu Ditzel, sem sést hér á mynd­inni.

Hanging Egg Chair kom á markað árið 1959 og var hann­aður af Nönnu og Jørgen Ditzel. Nanna var fædd árið 1923 í Kaup­manna­höfn. Hún lauk námi í hús­gagna­hönnun frá Kon­ung­legu aka­dem­í­unni í Kaup­manna­höfn árið 1946. Í skól­anum kynnt­ist hún Jørgen, sem einnig nam hús­gagna­hönnun og gengu þau í hjóna­band um sum­arið 1946. Síðar sama ár stofn­uðu þau eigin hönn­un­ar­stofu í Kaup­manna­höfn.

Samstarf þeirra var far­sælt og þau afköst­uðu miklu á árunum 1946-1961 eða allt þar til Jørgen lést skyndi­lega aðeins fer­tugur að aldri. Þau komu víða við á hönn­un­ar­ferl­inum en auk hús­gagna hönn­uðu þau textíl, vegg­fóður, skart­gripi og ýmsar heim­il­is­vörur líkt og gler­vörur. Eftir and­lát Jørgens hélt Nanna áfram með verk­efni sem þau hjónin höfðu tekið að sér.

Árið 1968 gift­ist hún svo hús­gagna­sal­anum Kurt Heide sem var búsettur í London og flutti Nanna hönn­un­ar­stofu sína til borg­ar­innar í kjöl­farið. Kurt og Nanna sam­ein­uðu svo krafta sína og stofn­uðu hús­gagna­fyr­ir­tækið Interspace sem fljót­lega varð heims­þekkt. Fyr­ir­tækið seldi mest­megnis ítölsk hús­gögn auk hús­gagna og textíls sem hann­aður var af Nönnu. Þrátt fyrir að vera búsett í London átti Nanna í sam­starfi við mörg þekkt og rót­gróin hönn­un­ar­hús í Danmörku þar á meðal Georg Jensen, Kvadrat og Brdr.Krüger. Árið 1984 ákváðu hjónin að selja Interspace þar sem þau hugð­ust fara á eft­ir­laun en ári síðar lést Kurt. Eftir nokkra umhugsun ákvað Nanna að flytja aftur til Dan­merkur en í stað þess að fara á eft­ir­laun opn­aði hún nýja hönn­un­ar­stofu í Kaup­manna­höfn sem hún starf­rækti allt þar til hún lést árið 2005.

Um hönn­un­ina sagði Nanna að hún hafi alltaf heill­ast af því sem svífur, líkt og fuglar, en það gefi til kynna ákveðið frelsi og var það lyk­il­hug­tak í hönn­un­ar­ferl­inu.

Efn­isvalið í Hanging Egg Chair end­ur­speglar tíð­ar­and­ann en mik­ill efn­is­skortur var til staðar eftir seinna stríð sem varð til þess að hönn­uðir þurftu að leita í auknum mæli í nærum­hverfi sitt. Grind stóls­ins er gerð úr áli en rattan (sef­gras) er fléttað utan um grind­ina. Setan er laus og ofin úr bóm­ull.

Um hönn­un­ina sagði Nanna að hún hafi alltaf heill­ast af því sem svífur, líkt og fuglar, en það gefi til kynna ákveðið frelsi og var það lyk­il­hug­tak í hönn­un­ar­ferl­inu. Einnig hafði hún það ávallt sem reglu að ein­skorða sig ekki við fyr­ir­fram ákveðnar hug­myndir heldur leyfði þeim að þró­ast óhindrað og þannig leiða hana áfram í hönn­un­ar­ferl­inu.

Árið 2013 hóf danski hús­gagna­fram­leið­and­inn Sika Design end­ur­fram­leiðslu á stólnum en fyr­ir­tækið á sér margra ára­tuga hefð í fram­leiðslu á hús­gögnum úr ratt­ani. Stólinn má bæði nota inn­an­dyra sem utan.

Myndir / Frá fram­leið­anda

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & híbýli

Landsliðs- og markadrottning selur í Mosfellsbæ
MannlífiðHús & híbýli

Lands­liðs- og marka­drottn­ing selur í Mos­fellsbæ

Berglind Björg Þor­valds­dóttir, lands­liðs­kona í knatt­spyrnu, og Kristján Sig­urðs­son hafa ákveðið að selja heim­ili sitt í Mos­fells­bænum. Berglind hefur á und­an­förnum ára­tug verið ein besta knatt­spyrnu­kona lands­ins og algjör marka­drottn­ing. Þá hefur hún spilað 72 lands­leiki fyrir Ísland og skorað í þeim leikjum 12 mörk. Hún skipti nýlega úr Val yfir í Breiða­blik eftir að for­ráða­menn Vals létu Berg­lindi vita...
Litrík og skemmtileg heimili í nýja blaðinu
MannlífiðHús & híbýli

Litrík og skemmti­leg heim­ili í nýja blað­inu

Þau eru ansi lit­rík og skemmti­leg heim­ilin sem við hjá Húsum og híbýlum heim­sóttum fyrir nýja blaðið okkar sem er komið í versl­anir. Stofur og borð­stofur eru í aðal­hlut­verki í þessu blaði ásamt inn­litum inn á íslensk heim­ili þar sem per­sónu­legur stíll ræður ríkjum. Það er fal­leg íbúð þeirra Hebu Fjal­ars­dóttur og Birgis Har­alds­sonar sem prýðir for­síð­una að þessu sinni....
Hvað ætla hönnuðirnir að sjá á HönnunarMars?
MannlífiðHús & híbýli

Hvað ætla hönn­uð­irnir að sjá á Hönn­un­ar­Mars?

Umsjón/ María Erla og Guðný Hrönn Hönn­un­ar­Mars hefst á morgun, 19 maí, og er þetta í 13. sinn sem hátíðin er haldin. Við­burð­ur­inn er stærsta hönn­un­ar­há­tíð lands­ins. Við heyrðum í nokkrum hönn­uðum sem sýna á Hönn­un­ar­Mars í ár og spurðum þau meðal annasr út í hvað þau ætla að sjá. Sig­mundur Frey­steins­son fata­hönn­uður Hvað ert þú að sýna á Hönn­un­ar­Mars?...
Deiglumór, áhugaverð heimildabók um leirlist á Íslandi 1930–1970
Mannlífið

Deiglu­mór, áhuga­verð heim­ilda­bók um leir­list á Íslandi 1930–1970

Í ár kom út bókin Deiglu­mór: Keramik úr íslenskum leir 1930-1970. Í bók­inni er farið yfir sögu leir­list­ar­innar sem hefur fylgt mann­kyn­inu frá örófi alda og segja má að sé órjúf­an­legur hluti af menn­ingar- og lista­sögu heims­ins. Hugtakið deiglu­mór er fornt orð yfir leir og vitnar í notkun hans á Íslandi til deiglu­gerðar á öldum áður. Sú saga er fallin...
Handgerð og eftirtektarverð sojakerti
Mannlífið

Handgerð og eft­ir­tekt­ar­verð soja­kerti

Kerti í alls konar birt­ing­ar­formum hafa verið vin­sæl upp á síðkastið; svo sem lík­ams­kerti og snún­ings­kerti og því óvenju­legri því skemmti­legri að okkar mati. Mynd / soyar Við rák­umst á þetta breska vöru­merki, soyar, sem býður upp á úrval soja­kerta í alls konar útfærslum og litum. Mynd / soy­ar­Mynd: Höfundur ókunnur Kertin eru hand­gerð úr soja­vaxi, eit­ur­efna­laus og vegan. Glæddu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður