Auglýsinga- og markaðsfyritækið Phenomenal Group á mynd dagsins sem það tvítaði í gær. Þar má sjá skemmtilega mynd af Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur fréttakonu á kunnuglegum slóðum. Þar er hún stödd í fréttasetti RÚV að flytja fólki fréttir.
Um hvað fréttin fjallar er aukaatriði því líkt og myndin sýnir svo skemmtilega virðist hún vera með svakalega heitt kaffi í bolla á settinu. „Í alvörunni, hversu heitur er kaffibollinn hennar,“ segir í tvítinu.


























Athugasemdir