„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Einkaviðtal við eiganda Farvel ferðaskrifstofunnar: „Ég hef ekkert óhreint í pokahorninu“

Einkaviðtal við eiganda Farvel ferðaskrifstofunnar: „Ég hef ekkert óhreint í pokahorninu“
Viktor Sveins­son, eig­andi Farvel var ákærður fyrir skatt­svik.

Viktor Heiðdal Sveins­son, eig­andi ferða­skrif­stof­unnar Farvel, ótt­ast ekki nið­ur­stöðu lög­reglu­rann­sóknar sem boðuð hefur verið af yfir­völdum. Hann seg­ist ekki hafa gert neitt rangt og er sann­færður um að sú verði nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar.

Lögregla rann­sakar hvort sak­næmt athæfi hafi átt sér stað við gjald­þrot ferða­skrif­stof­unnar. Fjöldi íslenskra ferða­langa er sagður hafa tapað háum fjár­hæðum við þrotið þar sem flestir þeirra höfðu milli­fært inn á reikn­ing fyr­ir­tæk­is­ins. Dæmi séu um að fjöl­skyldur hafi tapað um þremur millj­ónum króna eftir að hafa greitt inn á ferð sem aldrei var farin.

Ég fagna því að þetta sé rann­sakað og á ekki von á neinu slæmu úr því.

Líkt og Mannlíf greindi frá urðu 20 ferða­langar á vegum ferða­skrif­stof­unnar Farvel stranda­glópar í Thailandi eftir að ferða­skrif­stofu­leyfi stof­unnar var fellt niður í des­em­ber. „Þetta er svaka­legt rugl,“ sagði fjöl­skyldu­faðir sem staddur var í Thailandi. Hann og fjöl­skylda hans, fjögur sam­talas, greiddu 1.340.000 krónur fyrir ferð­ina með flugi og hót­eli í þrjár vikur. Í jan­úar greindi Mannlíf svo frá því að Ferða­mála­stofa hafi vísað máli Farvel til lög­reglu. 

Viktor bendir á að engin nið­ur­staða liggi fyrir hjá lög­reglu um sak­næmt athæfi og ótt­ast hann aðspurður alls ekki að svo verði. „Nei nei, alls ekki. Ég bara fagna því að þetta sé rann­sakað. Það er ekk­ert óhreint mjög í poka­horn­inu þarna,“ segir Viktor í sam­tali við Mannlíf.

Eigandi Farvel seg­ist í raun lítið vita um málið annað en það sem komið hefur fram í umfjöllun fjöl­miðla. Hann segir að hvorki Ferða­mála­stofa né lög­reglan hafi leitað til sín vegna boð­aðrar rann­sóknar. „Mér hefur ekk­ert borist um þetta og ég veit eig­in­lega ekki hvaðan þetta er upp­runið. Ferða­mála­stofa hefur legið undir miklum ámæli vegna máls­ins og ég tel þetta vera eði­leg varn­ar­við­bröð hjá þeim að fara þessa leið. Ég fagna því að þetta sé rann­sakað og á ekki von á neinu slæmu úr því.“

Ferða­skrifstan Farvel

Óskað hefur verið form­lega eftir því að Umboðs­maður Alþingis skoði hvort Ferða­mála­stofa hafi sýnt óvenju mikla lin­kind gagn­vart Farvel ferða­skrif­stof­unni. Fall ferða­skrif­stof­unnar varð til þess að fjöldi fólks tap­aði háum fjár­hæðum þar sem trygg­ing­ar­féð var langt í frá nægj­an­legt. Gerðar voru 76 kröfur um end­ur­greiðslur úr trygg­ing­ar­stjóði Ferða­mála­stofu og var algeng­ast að fók hafi fengið um 10 pró­sent end­ur­greitt af því sem það hafði milli­fært til ferða­skrif­stof­unnar. Starfs­leyfi stof­unnar var aft­ur­kallað 18. des­em­ber síð­ar­lið­inn og hún svo úrskurðuð gjald­þrota í lok apríl.

Aðspurður þá ítrekar Viktor að hann líti svo á að hann hafi ekki gert neitt rangt í rekstr­inum. „Jú, það er auð­vitað í því ljósi sem ég fagna rann­sókn­inni,“ segir Viktor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins