„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Inni í eldfjalli

Inni í eldfjalli
Ólafur Þór Júl­í­us­son inni í Þrí­hnjúka­gíg. Mynd/Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir
Mynd/Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Skammt frá skíða­svæð­inu í Blá­fjöllum er Þrí­hnjúka­gígur, eina eld­fjallið sem vitað er um að hægt sé að skoða að inn­an­verðu. Gígurinn er alls um 170 metra djúpur og fyrir átta árum tóku þrír ævin­týra­menn sig til og hófu að bjóða upp á ferðir niður í gíg­inn með lyftu. Vikan fór í slíka ferð á dög­unum og hitti meðal ann­ars Ólaf Þór Júl­í­us­son, einn af eig­endum Inside the Volcano. 

Gangan frá skíða­svæð­inu að gígnum tekur um 35 mín­útur, stoppað er tvisvar og við fáum ýmsan fróð­leik beint í æð. „Gígurinn er um 4000 þús­und ára gam­all og eld­fjallið hefur legið í dvala síðan þá, það er ólík­legt að það vakni akkúrat í dag, en aldrei að vita,“ segir Ragnar Ísleifur Bragason leið­sögu­maður meðal ann­ars í gam­an­sömum tóni. Veðrið er gott þennan dag en það getur verið ansi áveðra­samt, mik­ill vindur og rign­ing en svæðið er eitt það rign­inga­mesta á land­inu öllu.

Lyftan flutt með þyrlu

Hópnum er skipt í minni hópa þar sem við getum eðli­lega ekki farið öll niður með lyft­unni í einu. Kristján er far­inn að gera lyft­urnar klárar en ég næ að hitta á Ólaf Þór Júl­í­us­son og spyrja hann aðeins út í þetta mikla ævin­týri sem átti sér tölu­verðan aðdrag­anda áður en opnað var fyrir ferða­menn 2012. „Fyrsti leið­ang­ur­inn í gíg­inn var far­inn árið 1974 þegar Árni B. Stef­áns­son augn­læknir lét tíu vini sína slaka sér niður með kaðli. Fyrir þann tíma var ekki vitað hvað var þarna niðri og hversu djúpur gíg­ur­inn var. Hann var ekki lengi niðri enda voru þeir ekki með tal­stöð og menn vissu ekk­ert hvernig ástandið var þarna þannig að Árni var fljót­lega tog­aður upp aftur. Hann var heldur ekki með gott ljós þannig að hann sá ekki lita­dýrð­ina og sagði þegar upp kom að honum þætti þetta ekk­ert merki­legt,“ segir Ólafur hlæj­andi.

„Fyrsti leið­ang­ur­inn í gíg­inn var far­inn árið 1974 þegar Árni B. Stef­áns­son augn­læknir lét tíu vini sína slaka sér niður með kaðli.“
Mynd/Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Með­eig­endur hans að Inside the Volcano eru þeir Björn Ólafsson og Einar Kristján Stef­áns­son en þeir hafa allir verið í fjalla­mennsku frá barns­aldri. Einar Kristján er einn af eig­endum verk­fræði­stof­unnar VSÓ en það var árið 2004 sem hann, Björn og áður­nefndur Árni B. Stef­áns­son stofn­uðu félagið Þrí­hnjúka ehf. og hófu, í sam­vinnu við VSÓ, athug­anir á raun­hæfi þess að gera Þrí­hnjúka­gíg aðgengi­legan almenn­ingi og ekki síður að tryggja að gíg­ur­inn og umhverfi hans verði varð­veitt. Meðal þess sem komið hefur úr þeirri vinnu er teikn­ing af 350 metra löngum göngum sem liggja inn í gíg­inn að útsýnis­palli í um það bil 50 metra hæð inni í gígnum. Vera má að þetta verði ein­hvern tíma að veru­leika en hins vegar var ráð­ist í þá verk­fræði­legu fram­kvæmd að smíða lyftu sem sígur niður í gíg­inn. „Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan við gerðum fyrstu lyft­una sem tekin var í notkun í tengslum við komu fjöl­miðla­fólks frá National Geographic árið 2008. Lyftan hefur verið betrumbætt mikið síðan og eftir að við opn­uðum form­lega fyrir ferða­fólk árið 2012 erum við á þriðju ver­sjón af lyftu. Til að koma öllu sem henni teng­ist hingað að gígnum notum við þyrlu Land­helg­is­gæsl­unnar og það sama á við um allt sem teng­ist aðstöðu­hús­unum, allt er flutt hingað með þyrlu eða með snjó­bíl yfir hávet­ur­inn. Hingað má ekk­ert far­ar­tæki keyra,“ bætir Ólafur við.

Stórkostleg litadýrð

Mynd/Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Þegar búið er að fara yfir örygg­is­at­riði, fara á kló­settið og jafn­vel klæða sig betur er komið að því að fara í gíg­inn. Hita­stigið niðri er í kringum 3°C allan árs­ins hring og ef ein­hverjir hafa gleymt hlýjum fötum þá er eitt­hvað slíkt til sölu í aðstöðu­húsi við gíg­inn, auk minja­gripa. Allir fara í nokk­urs konar klif­ur­belti og fá hjálm á höf­uðið. Ástæðan fyrir klif­ur­belt­inu er að allir eru festir við brúna að lyft­unni og við lyft­una sjálfa til að gæta fyllsta öryggis. Um 120 metrar eru niður á botn­inn sem lyftan fer en gíg­ur­inn liggur sjálfur tölu­vert neðar. Sóley Ólafs­dóttir leið­sögu­maður fylgir okkur að gígnum og Kristján Maack stýrir lyft­unni niður. Svo er sigið af stað, fyrst í gegnum þröng göngin efst í gígnum og strax förum við að sjá fal­legar hraun­mynd­anir. Þegar búið er að síga um 50 metra opn­ast sjálf hvelf­ingin sem er gríð­ar­stór. Búið er að lýsa hana að innan og lita­dýrðin sem blasir við er stór­kost­leg. Botninn er veru­lega grýttur en útbúnir hafa verið göngu­stíga til að auð­velda fólki göng­una þar og passa upp á öryggi þess. Hver hópur er í 45 mín­útur niðri í gígnum og er „frjáls ferða sinna“ á meðan. Ragnar er samt sem áður til staðar og til­bú­inn að svara spurn­ingum og rétta hjálp­ar­hönd í hví­vetna – ekki síst við að taka myndir af frá sér numdum gestum. Ég við­ur­kenni að upp­lifunin er hálf­óraun­veru­leg, svo magnað er að vera stödd á þessum ein­staka stað. Ég er í síð­asta hópnum til að fara upp og þá hefur Ólafur tekið við stýr­inu, ef svo má að orði kom­ast. Ég rétt næ að kalla hann frá borði til að geta smellt af honum mynd og síðan lyft­umst við löt­ur­hægt til baka upp á yfir­borð jarðar.

Það er virki­lega gott að koma aftur inn í hlýtt og nota­legt aðstöðu­húsið við gíg­inn þar sem Jónas tekur á móti okkur með rjúk­andi heita súp­una. Gott að fá þessa kjarn­góðu nær­ingu og hlýju í kropp­inn. Eftir nær­ingu og gott spjall er svo bara að ganga þessa þrjá kíló­metra til baka að bíl­unum, njóta ferskrar gol­unnar og hug­leiða þessa ein­stöku heim­sókn sem heilt yfir var dásam­leg upp­lifun frá upp­hafi til enda sem sann­ar­lega er hægt að mæla með.

Myndir: Ragn­hildur Aðal­steins­dóttir

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ævintýri

Ræktar vín með aðstoð dvergkinda – Sagði skilið við fjármálaheiminn
Mannlífið

Ræktar vín með aðstoð dverg­kinda – Sagði skilið við fjár­mála­heim­inn

Hösk­uldur Ari Hauks­son, ís­­lenskur doktor í stærð­­fræði sagði skilið við fjár­mála­heim­inn til þess að ger­ast vín­bóndi í Sviss. „Þetta er nú bara hobbí sem að varð allt of stórt allt í einu,“ sagði Hösk­uldur í við­tali sem birt­ist í fréttum stöðvar 2 í gær­kvöldi. Hösk­uldur er nú staddur á land­inu til þess að kynna vín sitt fyrir land­anum og bjóða...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu