„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Biggi lögga biður borgarbúa að slappa pínu af – glæfralegur vespuakstur barna er foreldravandamál – „Eitthvað mjög rangt við það að börnum finnist í lagi að stinga lögregluna af“

Biggi lögga biður borgarbúa að slappa pínu af – glæfralegur vespuakstur barna er foreldravandamál – „Eitthvað mjög rangt við það að börnum finnist í lagi að stinga lögregluna af“
Biggi lögga segir glæfra­legan vespu­akstur ung­menna vera for­eldra­vanda­mál

Birgir Örn Guð­jóns­son, betur þekktur sem Biggi lögga, kennir for­eldrum um glæfra­legan vespu­akstur barna í borg­inni. Það sé þeirra að kenna börn­unum sínum hvernig ganga eigi um þessi öku­tæki, hvernig haga eigi sér úti í umferð­inni og fylgj­ast með því að vesp­unum sé ekki breytt þannig að þær kom­ist mun hraðar en leyfi­legt er. 

Birgir Örn fann sig knú­inn til að rita færslu á Facebook vegna vax­andi pirr­ings yfir vespu­menn­ingu í höf­uð­borg­inni. Hann segir pirr­ing­inn skilj­an­legan því vesp­unum fylgja bæði læti og hætta fyrir öku­menn og veg­far­endur. „Það er fullkomlega eðli­legt að krökkum finn­ist skemmti­legt að þjóta um á svona vespum. Vandinn er sá að það er verið að eiga við tækin. Til þess að varna því að þær geri það er sett ákveðið inn­sigli eða hnappur á vél­ina. Vanda­málið er að það er mjög auð­velt að taka þetta inn­sigli eða ýta á þennan hnapp. Þá kemst græjan miklu hraðar, sem krökk­unum finnst að sjálf­sögðu skemmti­legra en er kol ólög­legt og stór hættu­legt.“

Börn og ung­menni eru ótryggð á breyttum vespum. Mynd / skjá­skot MBL.

Biggi lögga segir þetta vera for­eldra­mál og það sé ein­fald­lega ábyrgð þeirra að fylgj­ast með hvað börnin eru að gera á vesp­unum og hvort verið sé að breyta þeim til að kom­ast hraða. Hann segir það ógjörn­ing fyrir lögegl­una að fyglj­ast með því að allt sé eftir bók­inni þegar kemur að vespu­notkun ung­menna. „Það sést ekki á þeim hverjar er búið að eiga við. Að það séu þrettán ára krakkar, og jafn­vel yngri, að þjóta um göngu­stíga og skóla­lóðir á þessum þungu tækjum, einir eða fleiri, á allt að 50 km hraða er ekk­ert nema ávísun á alvar­leg slys. Ef við kaupum vespur handa krökk­unum okkar þá er það okkar skylda að fylgj­ast með hvað þau eru að gera. Við þurfum að ræða við þau um hvað má og hvað má ekki og við verðum að vita hvers­konar tæki barnið er með í hönd­unum. For­eldrar margra þeirra sem eiga slík tæki verða að girða sig svo­lítið í brók og bera þá ábyrgð sem þeir eiga að gera,“ segir Birgir Örn.

Biggi segir ekki nóg að for­eldrar fylgist með vespu­notkun barn­anna heldur þurfi þeir einnig að gera börnum sínum ljóst mik­il­vægt eft­ir­lits­hlut­verk lög­regl­unnar. „Við höfum senni­lega öll lent í því að ætla að ræða við krakka á vespu en þeir láta sig hverfa upp næsta göngu­stíg þegar við gefum þeim merki um að stoppa. Það er eitt­hvað mjög rangt við það að börnum finn­ist í lagi að stinga lög­regl­una af,“ segir Biggi og biður jafn­framt höf­uð­borg­ar­búa að draga úr pirr­ingnum og slappa pínu af gagn­vart vespu­notkun barna og ung­menna. „Við sem íbúar þess­ara hverfa verðum hugs­an­lega að slappa pínu af. Það getur eng­inn farið í taug­arnar á manni. Maður leyfir öðrum að fara í taug­arnar á manni. Á meðan reglu­gerðin er eins og hún er þá verða prump­andi vespur þjót­andi um göngu­stíga og skóla­lóðir og við þurfum pínu að sætta okkur við það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins