„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Krydd í kynlífið

Helgin er til­valin til að bæta smá­vegis kryddi í kyn­lífið. Vikan gefur hér hug­myndir að nokkrum snið­ugum leiðum til þess.

Eldaðu nakin/n
Prófaðu að elda kvöld­mat­inn nakin/n með maka þínum. Könnun sem gerð var á Nýja- Sjálandi sýnir að 8% af fólki á aldr­inum 18-34 ára hafa ein­hvern tíma prófað að elda nakin með ást­vini sínum. Einnig segir í könn­un­inni að svit­inn sem fram­kall­ast við það að standa við heita elda­vél­ina sé kjörin leið til að krydda kyn­lífið.

Myndir á nátt­borð­inu
Ef nátt­borðið þitt er þakið myndum af Önnu frænku, bestu vinum þínum eða heim­il­is­hund­inum, þá er kom­inn tími til að end­ur­hugsa inn­an­húss­skreyt­ingar. Elskhugi þinn mun ekki vera ljóm­andi af ánægju yfir til­hugs­un­inni um að njóta ásta á meðan árvökul augu vina og vanda­manna virð­ast fylgj­ast með hverri hreyf­ingu. Hafðu allar vina- og fjöl­skyldu­myndir í stof­unni og settu í stað­inn myndir af þér og ást­vini þínum á ýmsum stigum sam­bands­ins í svefn­her­bergið.

Kynörvun kemur með hægð­inni!
Margar konur finna fyrir því að kyn­hvöt þeirra dalar allt í einu í miðjum klíðum, jafn­vel þó að stuttu áður hafi þær verið á barmi kyn­ferð­is­legrar full­næg­ingar. Þegar þetta ger­ist er mik­il­vægt að slaka á allri örvun en byggja hana síðan aftur upp hægt og rólega. Ein­beittu þér að því sem þú skynjar þá stund­ina með ást­vini þínum og ef hugur þinn tekur að reika, reyndu þá að beina honum ofur­mjúkt aftur að ást­ar­at­lot­unum, stund­inni hér og nú.

Kynörvandi lýs­ing
Hafðu tvo ólíka lampa á nátt­borð­inu. Einn sem býður upp á venju­lega lýs­ingu til lest­urs og annan sem skapar róm­an­tíska og kynörvandi lýs­ingu. Gættu þess að lýs­ingin sem á að koma þér og þínum í rétta skapið sé hvorki of dökk né ljós. Þú vilt jú geta séð í elsk­huga þinn án þess þó að þurfa nauð­syn­lega að horfa á hverja húð­frumu!! Gul lýs­ing eða bleik er bæði þægi­leg og æsandi.

Örvaðu ást­vin þinn með kitli
Það kann að hljóma fárán­lega að kitl geti haft nokkuð með kyn­líf að gera en stað­reyndin er hins vegar sú að það dregur úr spennu og stressi sem er góður und­an­fari afslapp­aðs kyn­lífs. Þegar þú ert „í stuði“ en finnur að maki þinn er yfir sig spenntur eftir langan og erf­iðan vinnu­dag, er til­finn­inga­lega lok­aður og kaldur, þá er um að gera að skapa annað and­rúms­loft með þess­ari aðferð. Kitl er góð leið til að nálg­ast ást­vin sinn á gam­an­saman hátt og þótt ein­hverjum kunni að finn­ast kitl óþægi­legt til að byrja með þá er það í huga flestra góð leið til lík­am­legrar nálg­unar.

Morg­un­matur í rúmið
Öllum þykir gott þegar mak­inn tekur sig til og færir morg­un­mat í rúmið. Umhyggja af þessu tagi, þótt ekki sé nema endrum og eins, getur virkað mjög kynörvandi. Ekki er síðra ef morg­un­mat­ur­inn inni­heldur ein­hver kynörvandi bragð­efni, sam­an­ber þau mat­ar­föng sem Vikan mælir með í þessu tölu­blaði.

Hjálp­ar­tæki ást­ar­lífs­ins
Flest pör hafa gaman af hjálp­ar­tækjum kyn­lífs­ins í ein­hverri mynd. Í þessu sam­hengi er mik­il­væg­ast fyrir pör að hafa í huga að ræða opin­skátt um hvað höfðar til þeirra og hvað er að þeirra viti handan vel­sæm­is­marka. Ef þessir hlutir eru ekki ræddir en þess í stað mætt með eitt­hvert leik­tækið ófor­var­andis einn dag­inn kann það að hafa slæm áhrif á hinn aðil­ann og jafn­vel sært blygð­un­ar­kennd hans. Af þessum sökum er mik­il­vægt að þið séuð hrein­skilin með það sem kemur ykkur til en engu að síður að taka til­lit hvort til ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kynlíf

Samfélagsmiðlaherferð gegn kynsjúkdómum – Lekandasmit á Íslandi ekki fleiri í 30 ár
Innlent

Sam­fé­lags­miðla­her­ferð gegn kyn­sjúk­dómum – Lek­anda­smit á Íslandi ekki fleiri í 30 ár

Ástráður – kyn­fræðslu­fé­lag lækna­nema hófu sam­fé­lags­miðla­her­ferð um kyn­sjúk­dóma í dag, í sam­starfi við Sótt­varn­ar­svið Embættis land­læknis. Samkvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Ástráði – kyn­fræðslu­fé­lagi lækna­nema, er helsta mark­mið félags­ins með sam­fé­lags­miðla­her­ferð­inni, sem ber nafnið Trúnó með Ástráði, vera þá að vekja athygli á fjölgun lek­anda­smita í sam­fé­lag­inu og ná tökum á útbreiðslu þeirra. Sjötíu pró­sent auk­ing varð á slíkum smitum milli áranna...
Dóttir Heidi Klum fann kynlífstæki móður sinnar: „Mér fannst þetta það svalasta sem ég hafði séð“
Menning

Dóttir Heidi Klum fann kyn­lífstæki móður sinnar: „Mér fannst þetta það svalasta sem ég hafði séð“

Eldri dóttir Heidi Klum fann kyn­lífstækja­skúffu mömmu sinnar og sýndi vinum sínum. Ofur­fyr­ir­sætan Heidi Klum við­ur­kenndi í við­tali nýlega að eldri dóttir hennar, Leni Klum, sem hún á með fyrr­ver­andi eig­in­manni sínum, söngv­ar­anum Seal, hafi eitt sinn fundið kyn­lífstækja­safn hennar, fyrir til­viljun, eða eins og Heidi orðar það: „Hún fann kyn­lífs­skáp­inn minn.“ Þrátt fyrir að atvikið hafi átt sér stað...
Britney lýsir kynlífi hennar og Farrell við „götubardaga“: „Slagsmál er eina orðið yfir þetta“
Menning

Britney lýsir kyn­lífi hennar og Farrell við „götu­bar­daga“: „Slagsmál er eina orðið yfir þetta“

Britney Spears líkir kyn­lífi sínu með Colin Farrell við „götu­bar­daga“, í nýrri ævi­sögu, sem beðið er með óþreyju en bókin heitir The Woman in Me. Hin 41 ára poppprinsessa, átti tveggja vikna ást­ar­æv­in­týri með írska stór­leik­ar­anum Colin Farrell árið 2003, stuttu eftir að hún hætti með Justin Tim­berlake. Britney hitti Colin í gegnum vin sinn en hún sagði að þau...
„Tantrafræðin lýsa kynlífi sem einni af grunnþörfum mannsins“
Innlentkynlíf

„Tantra­fræðin lýsa kyn­lífi sem einni af grunn­þörfum manns­ins“

„Kynorkan knýr okkur áfram, ýtir undir lang­anir og gerir okkur for­vitin um heim­inn. Kynorkan kveikir í okkur og fær okkur til að upp­götva nýjar hliðar á til­ver­unni, sér­stak­lega ef þær lofa nautn og vellíðan. Ef þessi orka er í ójafn­vægi getur það fram­kallað allskyns fíkn, lang­anir eða sjúk­dóma sem geta dregið okkur til dauða.“ Blaða­maður Mannlífs ræddi við Serafim Arnar...
Hvað myndi breytast hjá þér ef þú hlustaðir á hvað kynhvötin þín hefur raunverulega að segja?
Innlentkynlíf

Hvað myndi breyt­ast hjá þér ef þú hlust­aðir á hvað kyn­hvötin þín hefur raun­veru­lega að segja?

„Ég ákvað að rann­saka and­lega hlið kyn­lífs svo ég gæti kafað dýpra ofan þessa unaðstengdu kennslu,“ segir Birna M. Gustafs­son, kyn­fræð­ingur hjá Losta, í sam­tali við Mannlíf. Birna fer yfir ýmiss konar tækni tengda kyn­lífi, en segir að lyk­il­at­riðið sé að njóta sín. „Það getur verið erfitt að ein­beita sér að unaði þegar hug­ur­inn vill vera ann­ars staðar – stundum...
Sigga Dögg telur ýmislegt vanta upp á umræðu um BDSM: „Masterclass í valdadýnamík“
Innlent

Sigga Dögg telur ýmis­legt vanta upp á umræðu um BDSM: „Masterclass í valda­dýnamík“

Sigríður Dögg Arn­ar­dóttir kyn­fræð­ingur, eða Sigga Dögg eins og hún er alltaf kölluð, var í ein­lægu og opin­skáu helg­ar­við­tali Mannlífs um liðna helgi. Sigga Dögg hefur verið í þunga­miðj­unni á heitri og oft óvæg­inni sam­fé­lags­um­ræðu und­an­farið. Í við­tal­inu fer hún um víðan völl; ræðir þeyti­vindu sam­fé­lags­miðla, berg­máls­hella og fræðir blaða­mann um hluti tengda kyn­fræðslu, BDSM og það hvernig hún nálg­ast...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu