„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Vertu með í átakinu og minnkaðu plastið með einföldum aðferðum

Vertu með í átakinu og minnkaðu plastið með einföldum aðferðum
Mynd / Unsplash.com

Plast­laus sept­em­ber er haf­inn, en átakið er nú haldið í fjórða sinn. Til­gangur verk­efn­is­ins er að vekja fólk til umhugs­unar um plast­notkun og þann plast­úr­gang sem fellur til dags­dag­lega og leita leiða til að minnka notk­un­ina.

Plast­laus sept­em­ber hvetur okkur til að nota minna af einnota plasti og velja vörur úr öðru hrá­efni þegar því er komið við. Átakið snýst ekki um að vera full­kom­lega plast­laus í sept­em­ber heldur að finna sér mark­mið í mán­uð­inum til að minnka neyslu á einnota plast­um­búðum.

Hér eru 30 leiðir til að minnka plast. Mynd / plast­laussept­em­ber.is

Það er um að gera að byrja bara, hvert ferða­lag byrjar með einu skrefi og sama á við um aðferðir til að minnka plast og huga betur að umhverf­inu. Notar þú til dæmis fjöl­nota­poka við inn­kaupin? Það fer lítið fyrir einum slíkum í tösk­unni eða í bílnum (þá er bara að muna eftir að taka hann með inn í búð­ina). Það er líka um að gera að byrja að venja sig á fjöl­nota­pok­ana, því frá og með jan­úar 2021 verður algjört bann við sölu á einnota plast­burð­ar­pokum. Frá 1. sept­em­ber 2019 var bannað að afhenda plast­poka án end­ur­gjalds óháð því úr hvaða efni pok­inn er. Pokinn kostar 35 krónur í þeirri verslun sem blaða­maður verslar alla jafna í og þó að það sé ekki stór upp­hæð í hvert sinn, þá safn­ast hún saman og má örugg­lega gera margt betra fyrir þá upp­hæð en henda henni í ruslið.
Fjöl­nota­poka má kaupa víða í alls konar útgáfum og eru margir þeirra mjög fal­legir og hentugir, þannig að óþarfi er að bera um „hall­æris­lega“ poka merkta versl­unum lands­ins, ef fólk vill það síður.

View this post on Instagram

Vissir þú þetta um Plast­lausan sept­em­ber?

A post shared by Plast­lausSept­em­ber (@plastlausseptember) on Aug 30, 2020 at 9:47am PDT

Samkvæmt vef­síðu átaksins henda Íslend­ingar almennt einnota plasti strax eftir notkun. Talið er að hver plast­poki sé not­aður í um 25 mín­útur að með­taltali. Hver einn og ein­asti Íslend­ingur skilur eftir sig um 40 kg af úrgangi umbúða­plasts á ári.

Fólk er hvatt til að taka þátt í átak­inu og deila eigin reynslu, ábend­ingum og ráðum með myllu­merkj­unum  #plast­laus  #plast­laussept­em­ber og #breyt­umtil­hins­betra.

Fylgjast má með átak­inu og fá góð ráð frá öðrum á Facebook-síðu, í Facebook-hópi og á Instagram.

Ert þú með ábend­ingu um neyt­enda­mál? Sendu póst á [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins