„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Júlía þorir ekki að sofa ein heima – Sakar eiganda Tröllaferða um að brjótast inn til sín

Júlía þorir ekki að sofa ein heima – Sakar eiganda Tröllaferða um að brjótast inn til sín
Júlía Bald­urs­dóttir leið­sögu­maður. Mynd / Facebook

Júlía Bald­urs­dóttir leið­sögu­maður kvartar sáran undan engri hjálp frá Stétt­ar­fé­lagi leið­sögu­manna í bar­áttu sinni gegn Trölla­ferðum. Hún sakar eig­anda fyr­ir­tæk­is­ins um að hafa brotið upp úti­dyra­hurð heima hjá sér og seg­ist ekki hafa þorað að sofa ein heima í kjöl­farið. Skýring stétt­ar­fé­lags­ins á engri aðstoð er fjár­skortur vegna Covid-19 að sögn Júlíu.

Þetta kemur fram í færslu Júlíu sem hún ritar inn í hóp­inn Bakland ferða­þjón­ust­unnar á Facebook. Þar seg­ist hún hafa lent í vinnu­slysi fyrir þremur árum sem hafi orðið til þess að hún var óvinnu­fær í næstum þrjá mán­uði á eftir. Eigandi fyr­ir­tæk­is­ins Trölla­ferða neit­aði að greiða henni veik­inda­daga fyrir umrætt tíma­bil því hún væri slösuð en ekki veik. Júlía segir eig­and­ann hafa brugð­ist illa við bréfi frá lög­fræð­ingi hennar vegna máls­ins. „Þegar fyr­ir­tækið fékk loks bréf frá lög­fræð­ingi um málið mætti eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins heim til mín að kvöldi til og braut upp úti­dyra­hurð­ina hjá mér. Ég hringdi á lög­regl­una og fékk svo félaga til að koma og gista hjá mér í viku eftir á því að ég þorði ekki að sofa ein heima,“ segir Júlía.

Síðan heyr­ist ekki neitt. Ekki múkk.

Að sögn Júlíu héldu Trölla­ferðir áfram að neita að greiða henni og þá leit­aði hún til Stétt­ar­fé­lags leið­sögu­mannn sem hún er félags­maður hjá. „Ég gekk útfrá því að fá hjálp en það reynd­ist þó þrautin þyngri. Eftir mörg sím­töl og tölvu­pósta í nokkra mán­uði var mér sagt að lög­fræð­ing­ur­inn væri loks kom­inn í málið. Síðan gerð­ist ekki neitt,“ segir Júlía og bætir því við að það hafi svo loks­ins verið þremur árum eftir slysið sem hún hafi fengið stað­fest­ingu frá stétt­ar­fé­lag­inu að Trölla­ferðum yrði stefnt vegna máls­ins. „Síðan heyr­ist ekki neitt. Ekki múkk. Þegar rúmt hálft ár var liðið frá því að ákveðið hafði verið að stefna sendi ég lög­fræð­ingnum tölvu­póst. Hann svar­aði og boð­aði mig á fund. Á þeim fundi, með honum einum, er mér greint frá því að félag leið­sögu­manna hafi fyrir þónokkru síðan ákveðið að droppa mál­inu mínu vegna fjár­skorts út af covid. Semsagt engin stefna og engin frek­ari lög­fræði­að­stoð.“

Júlía skilur ekk­ert í því hvers vegna stétt­ar­fé­lagið sitt veiti félags­mönnum ekki betri aðstoð en þetta. Hún á ekki von á því að fá eina krónu af 1,2 millj­óna kröfu sinni á hendur Trölla­ferðum vegna tekju­taps eftir vinnu­slys. „Eftir að hafa gengið á eftir félag­inu í meira en 3 ár til þess að fá hjálp við að krefja fyrrum vinnu­veit­anda um van­goldin laun ákveður félagið að hætta bara við. Og þeir sáu ekki einu sinni sóma sinn í að segja mér frá því. Ekkert sím­tal, eng­inn tölvu­póstur, ekki neitt. Ég spyr, til hvers er okkar stétt­ar­fé­lag?,“ segir Júlía.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins