„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Er hægt að finna hádegismat fyrir 1000 krónur eða minna? – Sjáðu listann

Er hægt að finna hádegismat fyrir 1000 krónur eða minna? – Sjáðu listann
Mynd / Unsplash.com

Ertu þreytt/ur á að borða sam­lok­una við skrif­borðið þitt í hádeg­inu eða afganga frá kvöld­matnum kvöld­inu áður. Það getur verið ærinn haus­verkur dag hvern að ákveða hvað eigi að vera í mat­inn, og það tvisvar á dag, hádegi og kvöld. Og svo tekur það drjúgt í veskið ef borða á úti í hádeg­inu alla daga.

Mannlíf fór á stúf­ana og skoð­aði vef­síður og Facebook-síður veit­inga­staða í Reykja­vík og fann nokkra staði þar sem finna má hádeg­is­mat fyrir 1.000 krónur eða minna. Stað­irnir eru ekki margir og virð­ist sem hádeg­is­matur hlaupi frekar á verð­bil­inu 1.500 – 2.000 krónur. Verðið var athugað í dag, 8. sept­em­ber, og er list­inn alls ekki tæm­andi.

Klassísk og einfalt

Verð: 470 krónur

Þjóð­ar­réttur Íslend­inga, pylsa og kók. Bæjarins beztu er þekkt­asti pylsu­staður borg­ar­innar, bæði í bænum og meðal ferða­manna, og alltaf gaman að stilla sér upp við skúr­inn í miðbæ Reykja­víkur sem breyt­ist ekk­ert með tím­ans tönn og panta sér eina með öllu. Sökum fárra ferða­manna er röðin styttri en oft­ast.

Ein pylsa er á 470 krónur, gos­glasið með er á 260 krónur.

Ein með öllu og kók
Mynd / Facebook

Pítsa á mann

Verð: 1.000 krónur

Domino´s fær að vera með, þar sem á þriðju­dögum er hið klass­íska þriðju­dagstil­boð: mið­stærð af pítsu með þremur álegg­s­teg­undum.

Pizza tvo daga í röð

Verð: 1.000 krónur

Pizzan bætir um betur og býður upp á til­boð tvo daga í röð, mánu­daga og þriðju­daga má fá mið­stærð af pizzu með 3 álegg­s­teg­undum á 1.000 krónur.

Enn af pizzum

Verð: 700 – 960 krónur

Spaðinn býður upp á 8 tommu marga­ritu á 700 krónur, með því að bæta tveimur áleggjum við má halda sig við pizzu undir 1.000 krónum (kjöt­á­legg/ostar 130 krónur, áextir og græn­meti 100 krónur).

Sneið fyrir lítið svanga

Verð: 595 krónur

Þeir sem eru ekki mjög svangir geta látið sér eina pizzusneið duga á The Deli.

Salat í boxi

Verð: 950 krónur

Brikk í Hafn­ar­firði býður upp á salat í boxi fyrir 950 krónur.

Núðlur dagsins / Rækjur

Verð: 990 krónur

Á Nings er hægt að fá núðlur fyrir minna en 1.000 krónur, en minni skammt­ur­inn af tveimur kostar 990 krónur. Minnsti skammt­ur­inn af þremur af djúp­steiktum rækjum kostar síðan 890 krónur.

Kafbátar fyrir klink

Verð: 649 – 999 krónur

Subway býður upp á marga 6 tommu báta undir 1.000 krónum. Bátur dags­ins er á 649 krónur (breyti­legt milli daga). Bátur með rifnu grísa­kjöti er á 919 krónur. Breyta má svo bátum í salat eða vefju án auka­kostn­aðar.

Rifið grísa­kjöt
Mynd / subway.is

Sænska aðferðin

Verð: 595 – 995 krónur

IKEA býður upp á nokkra rétti fyrir minna en 1.000 krónur. Meðal ann­ars má nefna græn­met­is­buff með snittu­baunum, kúskús og sósu, og ýsu í orly með frönskum kart­öflum, hrásal­ati, remúlaði og sítrón­u­sneið fyrir 995 krónur.

Græn­met­is­buff
Mynd / Ikea.is

Salat í boxi

Verð: 950 krónur

Brikk í Hafn­ar­firði býður upp á salat í boxi fyrir 950 krónur.

Stakt og snöggt

Verð: 529 – 829 krónur

Metro­borg­ari býður upp á borg­ara, vefjur og nagga undir 1.000 krónum, ekk­ert fylgir þó með þannig að ef gosi eða öðru er bætt við fer fjár­hæðin yfir 1.000 krónur.

Súpa dagsins

Verð: 990 krónur

Sólon býður upp á súpu dags­ins fyrir 990 krónur.

Verð­könnun Mannlíf fór fram í dag 8. sept­em­ber með því að skoða vef­síður og Facebook-síður fyr­ir­tækja. Aðeins voru skoð­aðir staðir í Reykja­vík og er list­inn ekki tæm­andi. Ef þú ert með ábend­ingar um fleiri staði þar sem finna má hádeg­is­mat fyrir 1.000 krónur eða minna sendu tölvu­póst á [email protected].

Ert þú með ábend­ingu um neyt­enda­mál? Sendu póst á [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins