„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Matarbúðin Nándin hlýtur Bláskelina 2020

Matarbúðin Nándin hlýtur Bláskelina 2020
Kolbeinn tekur við verð­laun­unum úr hendi Guð­mundar Inga

Guð­mundur Ingi Guð­brands­son umhverfis- og auð­linda­ráð­herra veitti Blá­skel­ina 2020, við­ur­kenn­ingu umhverfis- og auð­linda­ráðu­neyt­is­ins fyrir fram­úr­skar­andi plast­lausa lausn, fyrr í dag.

Mat­ar­búðin Nándin

Mat­ar­búðin Nándin hlaut við­ur­kenn­ing­una í ár. Mat­ar­búðin Nándin er plast­laus mat­ar­búð sem end­ur­nýtir glerið sem selt er í búð­inni. Markmið þessa fjöl­skyldu­fyr­ir­tækis er að skapa „sjálf­bært mat­væla­kerfi“ þar sem sett er upp hringrás fyrir gler, ásamt því að selja mat­vöru í nið­ur­brjót­an­legum og moltu­hæfum umbúðum. Starfs­menn leggja sig fram um að vera ráð­gef­andi gagn­vart sínum sam­starfs­að­ilum um hvernig best er að taka þátt í verk­efn­inu.

Við­ur­kenn­ingin er veitt fyr­ir­tæki, stofnun, ein­stak­lingi eða öðrum fyrir fram­úr­skar­andi lausnir sem stuðla að minni plast­notkun og plast­úr­gangi í sam­fé­lag­inu. Kallað var eftir til­nefn­ingum á vor­mán­uðum og voru 13 aðilar til­nefndir í 16 til­nefn­ingum.

Dómnefnd skipa Sigrún Ágústs­dóttir, for­stjóri Umhverf­is­stofn­unar, Sigríður Ingv­ars­dóttir, for­stjóri Nýsköp­un­ar­mið­stöðvar Íslands, Sigríður Mogensen, sviðs­stjóri hjá Samtökum iðn­að­ar­ins og Sævar Þór Hall­dórs­son í fram­kvæmda­hópi Plast­lauss sept­em­ber.

Fjórir aðilar komust í úrslita­hóp­inn í ár, en þeir eru: Bioplastic Skin, Krónan, Mat­ar­búðin Nándin og Plast­plan.

Bioplastic Skin

Bioplastic Skin er verk­efni sem snýr að hönnun umhverf­is­vænna umbúða úr dýra­húðum sem nota má til að pakka kjöt­vörum. Nú til dags er stór hluti dýra­skrokka van­nýttur eftir slátrun og þar með er dýr­mætum hrá­efnum eins og dýra­húðum sóað. Í dag, á meðan verið er að rann­saka nákvæma eig­in­leika efn­is­ins, er mark­mið verk­efn­is­ins að vekja fólk til umhugs­unar um einnota plast­um­búðir og kjöt­neyslu.

Krónan

Krónan hefur unnið mark­visst að því að draga úr magni plasts sem fellur til í versl­unum og auka end­ur­vinnslu. Á síð­asta ári hóf Krónan sam­starf við Plast­plan sem end­ur­vinnur plast frá verslun þeirra á Granda og fyrr á árinu skrif­uðu þau undir sam­starfs­samn­ing við Pure North Recycling og tryggja með því end­ur­vinnslu á öllu plasti sem til fellur hjá fyr­ir­tæk­inu. Krónan tók úr umferð alla smá­poka úr plasti sem hafa feng­ist gef­ins við kassa og í ávaxta- og græn­met­is­deildum. Stefna þeirra er svo að hætta með alla burð­ar­poka úr plasti – um leið og birgðir klár­ast, sem er áætlað í októ­ber.

Plast­plan

Plast­plan sér­hæfir sig í plast­end­ur­vinnslu, hönnun og fræðslu. Fyr­ir­tækið býður ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum ráð­gjöf varð­andi minni plast­notkun og plast­sóun ásamt því að end­ur­vinna það plast sem óum­flýj­an­lega fellur til hjá við­kom­andi aðilum. Plast­plan flokkar, hreinsar, hakkar og umbreytir plast­inu og býr að lokum til nytja­hluti fyrir við­skipta­vini sína.

Hér má finna Facebook við­burð afhend­ing­ar­innar.

Ert þú með ábend­ingu um neyt­enda­mál? Sendu póst á [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins