Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði er óútkallsfær eins og er, sökum þess að nágranni sveitarinnar hefur lokað fyrir aðkomu björgunarsveitarmanna að skemmu þeirra.
Trölli.is fjallar um málið og birtir myndir frá vettvangi. Valgeir Sigurðsson, nágranni Trölla hefur girt lóðina af með bifreiðum og vinnuvélum og segist hann í fullum rétti til þess því hann eigi lóðina þar sem aðkeyrsla Björgunarsveitarinnar er að tækjaskemmunni. Valgeir segir við Trölla.is að eigi hann að opna verði menn að semja við hann, aldrei hafi hann verið beðinn um leyfi fyrir akstri um lóð hans né greitt fyrir aðstöðuna.
Eins og staðan er núna koma Strákar búnaði sveitarinnar ekki út ef til útkalls kemur. Hefur sveitin fengið verktaka til að saga sundur vegg til að opna leið fyrir þá út af planinu til norðurs. Ingvar Erlingsson hjá Strákum segir málið erfitt og verið sá að vinna í að leysa aðgengi að skemmunni. Málið sé hvatning til að íhuga flutning á starfsemi sveitarinnar.
Mikil umræða hefur skapast á samfélagsmiðum vegna málsins meðal bæjarbúa.
Lesa má nánar um málið og sjá myndir á vef Trölla.is.




















Athugasemdir