„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kamilla var föst með ofbeldismanni: „Ég var bara að bíða eftir fyrsta högginu“

Kamilla var föst með ofbeldismanni: „Ég var bara að bíða eftir fyrsta högginu“

„Hef verið að heyra mikið und­an­farið hvað ég er heimsk og vit­laus að hafa farið aftur til ofbeld­is­manns­ins míns. Það er ekki heimska og það er ekki vit­lausa að fara aftur. Að slíta sig lausa frá svona manni er meira en að segja.“

Svo hefst færsla Kamillu Ívars­dóttur á Instagram sem hefur vakið gíf­ur­lega athygli. Kamilla verður í við­tali um hrika­lega lífs­reynslu sína í Kast­ljósi í kvöld. Þar sýnir Kamilla, sem varð 18 ára fyrr á þessu ári,  hræði­legar afleið­ingar þess hrotta­lega ofbeldis sem hún varð fyrir.

Kamilla seg­ist hafa verið þjökuð af með­virkni. „Margir búnir að dæma mig, margir búnir að missa álit á mér fyrir það og fleira. Núna langar mér aðeins og segja ykkur hvað í alvör­unni gerð­ist og hvernig það er að vera fastur með ofbeld­is­manni,“ segir Kamilla.

Umræddur ofbeld­is­maður var dæmdur í fang­elsi fyrir að ráð­ast á hana niðri í bæ. Hann fékk ein­ungis fimm mán­aða dóm. „Hann losn­aði út úr fang­els­inu í mars, ég hafði 5 mán­uði til þess að vinna úr með­virkn­inni minni með hann, ég hafði 5 mán­uði til þess að jafna mig á öllu sem hafði komið fyrir mig án þess að vera hrædd að labba út á götu, til þess að fara inní búðir og þurfa ekki að ótt­ast það að sjá hann hvert sem ég færi. Hann fékk árs dóm fyrir nokkrar lík­ams­árásir gegn mér en losn­aði út á 5 mán­uðum vegna þess að hann var ekki orð­inn 21 árs,“ lýsir Kamilla.

Hún seg­ist ekki hafa verið til­búin þegar hann losn­aði úr fang­els­inu. „Ég var alls ekki til­búin þegar hann losn­aði, hann var búinn að vera hafa mikið sam­band við mig þrátt fyrir að ég væri með nálg­un­ar­bann gegn honum, lög­reglan vissi af því að hann væri að hafa sam­band við mig en eina sem hún gerði var að loka á núm­erið mitt í fang­els­inu,“ segir Kamilla.

Hún ótt­að­ist hvað myndi ger­ast ef hún myndi ekki hitta hann. „Þegar hann losn­aði hitti ég hann strax, ekki því mig lang­aði til þess ég hitti hann vegna þess að ég var hrædd um hvað hann myndi gera ef ég myndi ekki hitta hann, hann var alltaf fórna­lambið. Hann var ynd­is­legur fyrstu vik­una en ég var skít­hrædd við hann allan tíman því ég var bara að bíða eftir fyrsta högg­inu. Ég reyndi oft að fara frá honum og aftur heim til mín en þá réðst hann á mig og hót­aði að drepa fjöld­skyld­una mína og mig, hann var með hníf upp við háls­inn á mér og útskýrði fyrir mér hvað hann ætl­aði að gera við systk­inin mín og for­eld­rana mína, auð­vitað var ég hrædd,“ segir Kamilla.

Hún lýsir svo skelf­ing­unni sem tók við: „Ég var skít­hrædd, ég öskur­grét úr hræðslu. Þessa nótt hafði ég sam­band við lög­fræð­ing­inn minn klukkan 3 um nótt og við fórum saman uppá spít­ala um morg­un­inn þar sem ég var með áverka eftir að hann kyrti mig næstum til dauða og henti mér í jörð­ina þar sem ég missti með­vit­und í smá tíma vegna þess að haus­inn minn skall svo fast. Ég gat ekki beygt mig, ég gat ekki snúið lík­am­anum mínum og átti erfitt með að leggj­ast niður vegna þess að mér var svo illt í lík­am­anum.“

Nánar verður rætt við Kamillu í Kast­ljósi í kvöld.

View this post on Instagram

Hef verið að heyra mikið und­an­farið hvað ég er heimsk og vit­laus að hafa farið aftur til ofbeld­is­manns­ins míns. Það er ekki heimska og það er ekki vit­lausa að fara aftur. Að slíta sig lausa frá svona manni er meira en að segja. Margir búnir að dæma mig, margir búnir að missa álit á mér fyrir það og fleira. Núna langar mér aðeins og segja ykkur hvað í alvör­unni gerð­ist og hvernig það er að vera fastur með ofbeld­is­manni. Hann losn­aði út úr fang­els­inu í mars, ég hafði 5 mán­uði til þess að vinna úr með­virkn­inni minni með hann, ég hafði 5 mán­uði til þess að jafna mig á öllu sem hafði komið fyrir mig án þess að vera hrædd að labba út á götu, til þess að fara inní búðir og þurfa ekki að ótt­ast það að sjá hann hvert sem ég færi. Hann fékk árs dóm fyrir nokkrar lík­ams­árásir gegn mér en losn­aði út á 5 mán­uðum vegna þess að hann var ekki orð­inn 21 árs. Ég var alls ekki til­búin þegar hann losn­aði, hann var búinn að vera hafa mikið sam­band við mig þrátt fyrir að ég væri með nálg­un­ar­bann gegn honum, lög­reglan vissi af því að hann væri að hafa sam­band við mig en eina sem hún gerði var að loka á núm­erið mitt í fang­els­inu. Þegar hann losn­aði hitti ég hann strax, ekki því mig lang­aði til þess ég hitti hann vegna þess að ég var hrædd um hvað hann myndi gera ef ég myndi ekki hitta hann, hann var alltaf fórna­lambið. Hann var ynd­is­legur fyrstu vik­una en ég var skít­hrædd við hann allan tíman því ég var bara að bíða eftir fyrsta högg­inu. Ég reyndi oft að fara frá honum og aftur heim til mín en þá réðst hann á mig og hót­aði að drepa fjöld­skyld­una mína og mig, hann var með hníf upp­við háls­inn á mér og útskýrði fyrir mér hvað hann ætl­aði að gera við systk­inin mín og for­eld­rana mína, auð­vitað var ég hrædd. Ég var skít­hrædd, ég öskur­grét úr hræðslu. Þessa nótt hafði ég sam­band við lög­fræð­ing­inn minn klukkan 3 um nótt og við fórum saman uppá spít­ala um morg­un­inn þar sem ég var með áverka eftir að hann kyrti mig næstum til dauða og henti mér í jörð­ina þar sem ég missti með­vit­und í smá tíma vegna þess að haus­inn minn skall svo fast. Ég gat ekki beygt mig, ég gat ekki snúið lík­am­anum mínum og átti erfitt með að leggj­ast niður vegna þess að mér var svo illt í lík­am­anum.

A post shared by Kamilla Ívarsdóttir (@kamillaivars) on Sep 7, 2020 at 8:28am PDT

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins