„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Allt að 160% verðmunur milli matvöruverslana

Allt að 160% verðmunur milli matvöruverslana
Mynd / Unsplash.com

Gríð­ar­legur verð­munur er á verð­lagi mat­vöru og í yfir 42 til­fellum af 104 var yfir 100% munur á hæsta og lægsta verði, þar af var mun­ur­inn í 14 til­fellum yfir 160%. Í 50 til­fellum var mun­ur­inn 40-100%

Þetta sýnir verð­könnun verð­lags­eft­ir­lits ASÍ á mat­vöru sem gerð var 8. sept­em­ber í 14 versl­unum. Könnunin náði bæði til lág­vöru­verðs­versl­ana og minni versl­ana, sem margar eru með lengri opn­un­ar­tíma. Könnunin náði einnig til versl­ana sem eru stað­settar á lands­byggð­inni og eru hluti af stærri keðjum.

10-11 oftast hæst og Bónus oftast lægst

10-11 er með hæsta verðið í lang flestum til­fellum og munar tölu­vert miklu á verð­lagi í 10-11 og þeim versl­unum sem næstar koma. 10-11 var með hæsta verðið í 73 til­fellum af 104, Samkaup Strax næst oft­ast, í 11 til­fellum og Kram­búðin í 9 sinnum. 10-11 versl­unum hefur fækkað tölu­vert og eru nú ein­ungis fjórar eftir, þar af þrjár í miðbæ Reykja­víkur.

ASÍ bendir á að mikil hreyf­ing hefur verið á mat­vöru­mark­aði und­an­farið þar sem nýjar versl­anir hafa komið í stað­inn fyrir gamlar en það getur haft áhrif á verð­lag.

Þrjár nýjar mat­vöru­versl­anir undir nafn­inu Extra hafa opnað á þessu ári en þær eru stað­settar í Reykja­vík, Reykja­nesbæ og á Akureyri. Verð hjá Extra á þeim vörum sem voru í könn­un­inni er upp og ofan, stundum nokkuð lágt en í öðrum til­fellum til­tölu­lega hátt. Extra er í eigu Basko sem á einnig 10-11.

Samkaup Strax versl­unum hefur fækkað mikið og er ein­ungis ein eftir í Reykja­vík en hún er í eigu Samkaupa rétt eins og Nettó, Kjör­búðin, Kram­búðin og Iceland.

Bónus var oft­ast með lægsta verðið í könn­un­inni, í 60 til­fellum af 104, Krónan næst oft­ast, í 13 til­fellum og loks Fjarð­ar­kaup í 9 til­fellum.

Í verðtöfl­unni hér að neðan má sjá eina mynd af verði í könn­un­inni. Með því að fara á vef ASÍ má skoða verð eftir vöru­flokkum.

Mynd / asi.is

Iceland lækkar í verði

Iceland hefur fært sig nær lág­vöru­verðs­versl­unum í verði en áður, ef versl­un­unum er raðað upp miðað við verð­lag á þeim vörum sem voru til skoð­unar í þess­ari könnun. Iceland er til að mynda oft með lægra verð en Hagkaup í þess­ari könnun en í fyrri könn­unum  var það á hinn veg­inn, það er Iceland oftar með hærra verð.

Krambúðum fjölgar á landsbyggðinni og hækkar matvöruverð

Töluverð umræða hefur verið um mat­vöru­versl­anir á lands­byggð­inni und­an­farið en íbúar sum­staðar hafa verið ósáttir við að Kjör­búð­inni hafi verið skipt út fyrir Kram­búð­ina. Verð í síð­ar­nefndu versl­un­inni er mörgum til­fellum tölu­vert hærra rétt eins og könn­unin sýnir. Kram­búð­irnar eru stað­settar á 21 stað víðs­vegar um landið, þar af eru 10 versl­anir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Um könnunina

Könnunin var fram­kvæmd 8. sept­em­ber í eft­ir­töldum versl­unum: Nettó Mjódd, Bónus Smára­torgi, Krónunni Lindum, Fjarð­ar­kaupum, Iceland Engi­hjalla, Hagkaup Skeif­unni, Kjör­búð­inni Garði, Kram­búð­inni Laug­ar­dal, Heimkaup.is, Samkaup Strax, Tíu ell­efu Lauga­vegi, Extra Bar­ón­stíg, Kr. Þor­láks­höfn, Kjarval Hellu.

Í könn­un­inni var hillu­verð á 104 vöru skráð niður en það er það verð sem neyt­and­inn hefur upp­lýs­ingar um þegar hann ákveður hvort hann ætli að kaupa við­kom­andi vöru. Ef afsláttur er tek­inn fram á hillu er hann tek­inn til greina.

Hér er aðeins um beinan verð­sam­an­burð að ræða, en ekki er lagt mat á gæði eða þjón­ustu sölu­að­ila.

Ert þú með ábend­ingu um neyt­enda­mál? Sendu póst á [email protected].

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins