„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Alma Geirdal látin: „Hryggir okkur meira en orð fá lýst“

Alma Geirdal látin: „Hryggir okkur meira en orð fá lýst“
Alma Geirdal Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Alma Geirdal lést í dag á líkn­ar­deild, 41 árs að aldri.

Banamein Ölmu var brjóstakrabba­mein, sem hún greind­ist með aðeins 38 ára gömul. Eftir með­ferð var hún krabba­meins­laus í tæp tvö ár en þá greind­ist hún aftur og gaf meinið enga vægð. Alma var ætíð opin­ská með veik­indi sín og hélt meðal ann­ars úti hópi á Facebook, Alman vs. cancer, þar sem hún skrif­aði nær dag­lega hug­leið­ingar sínar um veik­indin og dag­legt líf.

Alma lætur eftir sig sam­býl­is­mann, þrjú börn og tvö stjúp­börn.

Systir Ölmu, Sig­ur­borg, greindi frá and­láti Ölmu: „Hryggir okkur meira en orð fá lýst að láta ykkur vita að elsku ynd­is­lega Alman okkar lést í dag umvafin sínum nán­ustu.“

Alma var í við­tali hjá Mannlíf í byrjun árs, þar sem hún ræddi bar­átt­una, for­dómana sem hún varð fyrir í heil­brigð­is­kerf­inu og krabba­meinslyfið sem olli miklum kvölum og auka­verk­unum, en gerði henni ekk­ert gagn. Í við­tal­inu kom fram að Alma var búin að fá upp­gef­inn tím­ann sem hún átti eftir, en hún var stað­ráðin í að njóta tím­ans sem eftir var sem best hún gat með sínum nán­ustu, sam­býl­is­manni, börnum, systk­inum og öðrum ætt­ingjum og vinum.

Sjá einnig: „Mig langar ekki að deyja en ég verð að gera það með reisn“

Mannlíf vottar ást­vinum Ölmu inni­lega samúð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins