„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ballarin margbraut sóttkví vegna leynifunda- Bankastjóri hraktist í einangrun

Ballarin margbraut sóttkví vegna leynifunda- Bankastjóri hraktist í einangrun
Mynd / Skjáskot RÚV

Michele Roosevelt Edwards Ballarin fjár­festir marg­braut sótt­varn­ar­reglur þegar hún var hér á landi í kringum hlut­fjár­út­boð Icelandair. Hún fór meðal ann­ars á fund með stjórn­endum Kviku­banka, á kaffi­hús og út að borða þrátt fyrir að eiga að vera í sótt­kví. Tals­maður hennar segir brotin hafa verið vegna mis­skiln­ings.

Samkvæmt sótt­varna­reglum eiga allir þeir sem koma til lands­ins að und­ir­gang­ast tvær skimanir með fimm daga sótt­kví á milli. Ballarin og Gunnar Steinn Pálsson, tals­maður hennar, brutu þær reglur er þau fóru saman á kaffi­húsið Te & kaffi í Borg­ar­túni og þau fóru einnig út að borða á La Prima­vera veit­inga­staðnum. Þá fóru þau líka saman á fund með stjórn­endum Kviku­banka, þeim Marínó Erni Tryggva­syni for­stjóra og Ármanni Þor­valds­syni aðstoð­ar­for­stjóra. Marínó Örn þurfti að fara í sótt­kví eftir að í ljós kom að Ballarin var sjálf að brjóta sótt­kví með því að mæta til fundar í bank­anum. Ármann þurfti ekki í sótt­kví því hann hafði áður smit­ast af Covid-19 og var því með upp­á­skrifað ónæmi frá Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varn­ar­lækni.

Í sam­tali við Mannlíf stað­festir Ármann að fund­ur­inn hafi farið fram að ósk Ballarin og Gunnars Steins. „Það er ekk­ert leynda­mál að við hittum hana. Ég get stað­fest að hún óskaði eftir fundi þar sem hún var að for­vitn­ast um útboðið. Okkur var ekki ljóst á þeim tíma­punkti að hún ætti að vera í sótt­kví. Eftir á þurftum við því að grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana,“ segir Ármann.

Þar af leið­andi fórum við Michelle saman bara hingað og þangað um bæinn

Gunnar Steinn seg­ist aðspurður ekki geta stað­fest alla dag­skrá fjár­fest­is­ins en hún hafi vissu­lega farið viða til að kanna lands­lagið í kringum Icelandair og mögu­leik­ana í stöð­unni. „Kviku­banki er einn hluti af þessu og ég þekki strák­ana þar vel. Við vorum bæði í góðri trú þegar á fund­ina var farið. Lögmaður hennar hér á Íslandi hefur tekið á sig þennan mis­skiln­ing og þar af leið­andi fórum við Michelle saman bara hingað og þangað um bæinn,“ segir Gunnar Steinn.

Gunnar Steinn Pálsson

Koma Ballarin til lands­ins og þátt­taka hennar í hluta­fjár­út­boð­inu reynd­ist hins vegar brot­lend­ing. Tilboði hennar var alfarið hafnað en lög­maður hennar hér á landi hafði enn ekki fengið stað­fest­ingu á því hins vegar þegar Mannlíf ræddi við hann.

Ballarin flaug af landi brott eftir að til­boði hennar í Icelandair var hafnað. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs fór hún króka­leið heim til Banda­ríkj­anna um Evrópu. Hún hugð­ist kaupa kjöl­festu­hlut fyrir sjö millj­arða króna í Icelandair en var hafnað þar sem hún þótti ekki geta sýnt fram á getu til að standa við til­boðið. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs vildi Ballarin verða stjórn­ar­for­maður Icelandair. Viðræður milli hennar og stjórn­enda Icelandair um sam­starf stóðu yfir und­an­farnar vikur.

Stjórn Icelandair hafn­aði hins vegar til­boði Ballarin sem hljóð­aði upp á sjö millj­arða króna. Þátttöku Ballarin í hluta­fjár­út­boði Icelandair er því lokið. Í ljósi við­skipta­sögu Edwards hér á landi þykir ljóst að umsjón­ar­að­ilar útboðs­ins hafa beðið athafna­kon­una um stað­fest­ingu á greiðslu­getu og þær trygg­ingar virð­ist hún ekki hafa getað veitt.

Ballarin keypti eignir WOW air úr þrota­búi félags­ins og lagði í gær fram sjö millj­arða til­boð í hluti Icelandair. Ballarin var hins vegar hafnað og hún flogin af landi brott. Páll Ágúst Ólafsson lög­maður hefur sinnt mál­efnum Ballarin í útboðs­ferl­inu. Í sam­tali við Mannlíf sagð­ist hann ekki hafa fengið form­lega höfnun frá Icelandair vegna til­boðs­ins. „Við vitum ekk­ert annað en það sem hefur komið fram í fjöl­miðlum. Ég er ekki til­bú­inn til að trúa því fyrr en ég tek á því að til­boð­inu hafi verið hafnað alfarið,“ segir Páll Ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

flugfélög

Fjármálastjóri Play sakaður um spillingu – Situr í stjórn sem „dæli fé inn í félagið“
Innlentflugfélög

Fjár­mála­stjóri Play sak­aður um spill­ingu – Situr í stjórn sem „dæli fé inn í félagið“

Þóra Egg­erts­dóttir, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs Play, situr í stjórn eins af stærstu hlut­höfum flug­fé­lags­ins, líf­eyr­is­sjóðs­ins Birtu. Sjóð­ur­inn sker sig úr hvað varðar íslenska líf­eyr­is­sjóði þegar kemur að því að fjár­festa í Play og hefur stjórnin nú þegar sam­þykkt að leggja meira fé til félags­ins. Samkvæmt Sam­stöð­inni er Birta einn af stærstu hlut­höf­unum í Play með 8,5 pró­senta eign­ar­hlut, sem kost­aði sjóð­inn...
Innlentflugfélög

Aðal­eig­andi Icelandair í skattapara­dís: „Auðvitað til að greiða sem minnst í sam­eig­in­lega sjóði“

Aðal­eig­andi íslenska flug­fé­lags­ins Icelandair geymir hlut sinn í félag­inu í skattapara­dís sem notuð er af alþjóð­legum félögum til að kom­ast hjá skatt­greiðslum. Um er að ræða banda­ríska hrægamma­sjóð­inn Bain Capital sem með 17 pró­senta eign­ar­hlut sínum er langstærsti hlut­hafi Icelandair. Hlutinn geymir sjóð­ur­inn í írska félag­inu Blue Issuer en Írland er þekkt skattapara­dís. Gylfi Magn­ús­son, for­maður banka­ráðs Seðla­bank­ans og fyrr­ver­andi...
Birgir harmar upplifun farþega af óboðlegu hóteli: „Þetta er bara viðbjóðslegt“
Innlentflugfélög

Birgir harmar upp­lifun far­þega af óboð­legu hót­eli: „Þetta er bara við­bjóðs­legt“

For­stjóri flug­fé­lags­ins Play harmar upp­lifun far­þega sem sendir voru á hótel sem upp­fyllti væg­ast sagt ekki kröfur, þegar þeir voru stranda­glópar í París eftir að flug­ferð félags­ins var aflýst. Vísir greinir frá þessu. Birgir Jónsson, for­stjóri Play, er sam­mála því að hót­elið sem far­þeg­unum var boðið upp á í París hafi verið óvið­un­andi. „Ég er bara sam­mála þessu fólki sem...
Birgir boðar hækkun á verði flugmiða: „Það er óumflýjanlegt“
Innlentflugfélög

Birgir boðar hækkun á verði flug­miða: „Það er óum­flýj­an­legt“

Birgir Jónsson, for­stjóri Play, segir óum­flýj­an­legt að hækkun á olíu­verði í heim­inum í dag muni valda hækkun á verði flug­miða. Þetta segir hann í við­tali við RÚV. Hann segir standa til að lág­marka rekstr­ar­kostnað flug­fé­lags­ins til þess að mæta auknum kostn­aði. „Það er alveg ljóst að ef heims­mark­aðs­verð á elds­neyti hækkar um tugi pró­senta mun það skila sér í hærra...
Fleiri flugfélög til Íslands – verða 25 talsins í sumar
Innlent

Fleiri flug­fé­lög til Íslands – verða 25 tals­ins í sumar

Alls fljúga fimmtán flug­fé­lög til Íslands í ár en það eru einu fleiri en árið 2019, fyrir heims­far­ald­ur­inn. Þá er búist við miklum fjölda ferða­manna hingað til lands eða allt að 1,2 milljón manns. Bendir hvort tveggja til um kröft­uga við­spyrnu í ferða­þjón­ustu hér á landi og segir Guð­mundur Daði Rún­ars­son, fram­kvæmda­stjóri við­skipta og þró­unar hjá Isavia spána vera gleði­fréttir....
Niceair hefur flug frá Akureyri til Evrópu í sumar
Innlentflugfélög

Niceair hefur flug frá Akureyri til Evrópu í sumar

Nýtt flug­fé­lag sem ber nafnið Niceair hefur starf­semi í sumar. Flug­fé­lagið mun hefja milli­anda­flug frá Akureyri næsta sumar og verður í upp­hafi með eina Airbus 319 flug­vél sem tekur 150 far­þega. Þor­valdur Lúðvík Sig­ur­jóns­son, fra­kvæmda­stjóri og flug­maður flug­fé­lags­ins sagði í við­tali við Frétta­blaðið að mikil þörf væri á milli­landa­flugi fyrir Norður- og Aust­ur­land. Áætlað er að fyrsta flugið verði 2.júní...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins