„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ragnar segir Fréttablaðið standa fyrir herferð gegn sér: „Staðfesta að við erum á hárréttri leið“

Ragnar segir Fréttablaðið standa fyrir herferð gegn sér: „Staðfesta að við erum á hárréttri leið“
Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir nóg komið og vill Samtök atvinnu­lífs­ins úr stjórnum líf­eyr­is­sjóð­anna. Í pistli sem hann birtir á Facebook og má lesa í heild sinni hér fyrir neðan segir hann Guðrúnu Haf­steins­dóttir, eig­anda Kjörís, dylgja um sig. Hann full­yrðir enn fremur að Frétta­blaðið sé mis­notað í þeim til­gangi að koma höggi á sig. Ragnar seg­ist ekki ætla að taka því hljóða­laust.

Pistill Ragnars í heild sinni

Um leið og ég fagna því að Icelandair sé komið fyrir vind óska ég starfs­fólki og stjórn­endum félags­ins inni­lega til ham­ingju með vel heppnað útboð og ein­læga von mína að áætl­anir félags­ins stand­ist og gangi eftir.

Ég vil hins­vega koma eft­ir­far­andi á fram­færi vegna ummæla og ásak­ana í minn garð, stjórnar VR og stjórn­ar­manna okkar hjá LIVE eftir þá ákvörðun líf­eyr­is­sjóðs­ins okkar að taka ekki þátt í nýaf­stöðnu og vel heppn­uðu hluta­fjár­út­boði Icelandair.

Það er með miklum ólík­indum hvernig Guðrún Haf­steins­dóttir, for­maður Lands­sam­taka líf­eyr­is­sjóða og vara­for­maður stjórnar LIVE, hefur stigið fram með ásak­anir og dylgjur vegna þeirrar ákvörð­unar LIVE að taka ekki þátt í hluta­fjár­út­boð­inu.

Forsaga máls­ins er sú að þegar stjórn­endur Icelandair tóku þá ákvörðun að brjóta lög um stétt­ar­fé­lög og vinnu­deilur, og gera þannig aðför að samn­ings­rétti allra stétt­ar­fé­laga, tók stjórn VR, sem einnig á sæti í full­trúa­ráði LIVE, þá ákvörðun um að lýsa yfir and­stöðu sinni við að stjórn LIVE tæki þátt í væntu hluta­fjár­út­boði Icelandair, með áskorun á stjórn­ar­menn LIVE.

Stað­reyndin er sú að það stríðir gegn sam­þykktum sjóðs­ins að fjár­festa í fyr­ir­tækjum sem brjóta á rétt­indum launa­fólks. Það er alveg skýrt og varla nokkur sem and­mælir því. Þannig vorum við í fullum rétti til að beina þeim til­mælum til stjórn­ar­manna sjóðs­ins um að brjóta ekki gegn sam­þykktum sjóðs­ins.

Tala nú ekki um það lögvarða frelsi sem við tökum okkur til að hafa skoðun á þessu máli sem og öðrum. Eitt af hlut­verkum full­trúa­ráðs LIVE, sem stjórn VR situr í, er að vera stjórn sjóðs­ins ráð­gef­andi, sem við gerðum.

Síðan ger­ist það að samn­ingar nást og stjórn­endur draga til baka þá veg­ferð sem þeir hófu gegn samn­ings­rétti launa­fólks og sættir náð­ust í mál­inu og fyrri yfir­lýs­ingar for­manns og stjórnar VR dregnar til baka.

Ekki nóg með það lýstum við yfir fullu trausti til starfs­manna og stjórn­ar­manna LIVE. Það traust er til staðar hver sem nið­ur­staðan hefði orðið.

Hvorki for­maður eða stjórn VR höfðu nokkuð um það að segja hver nið­ur­staðan yrði.
Til að toppa málin var svo skrifað undir sam­eig­in­lega frið­ar­yf­ir­lýs­ingu milli SA, ASÍ og Icelandair við upp­haf hluta­fjár­út­boðs­ins.

Þrátt fyrir þetta virð­ist atvinnu­rek­enda arm­ur­inn vera gjör­sam­lega far­inn á taugum. Þau eru ekki vön því að fá spurn­ingar eða nokkra mót­spyrnu þegar kemur að því að dæla pen­ingum í mis­gáf­aðar fjár­fest­ingar í atvinnu­líf­inu.

Þau hafa haft eft­ir­launa­sjóði almenn­ings nokkurn veg­inn útaf fyrir sig án mik­illar mót­spyrnu frá full­trúum launa­fólks.

Guðrún Haf­steins­dóttir ræðst með ótrú­lega sví­virði­legum hætti að minni per­sónu og full­trúm okkar í stjórn LIVE, starfs­heiðri þeirra og trú­verð­ug­leika.

Sömu full­trúa og fjár­mála­eft­ir­litið hefur metið hæfa til að gegna störfum sínum eftir bestu sann­fær­ingu og þeim reglum og lögum sem gilda um hæfi stjórn­ar­manna.

Hún gerir það tor­tryggi­legt hvar stjórn­ar­menn okkar starfa, eða sitja í stjórn stétt­ar­fé­lags, þegar hún sjálf er eig­andi Kjörís og hefur gengt trún­að­ar­störfum fyrir Samtök iðn­að­ar­ins um ára­bil.

Yfir­lýs­ing Guðrúnar Haf­steins­dóttur á Visi.is þann 18.sept­em­ber síð­ast­lið­inn.
Þess vegna studdi ég að við færum þar inn og ég harma þessa nið­ur­stöðu.“ Sjóð­ur­inn hefði þurft að kaupa fyrir 2,4 millj­arða til að halda sínum hlut eftir fjör­tíu ára stuðn­ing við félagið.

„Eignir Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna núna eru í kringum 950 millj­arðar. Þannig að þetta hefði þá verið 0,2 pró­sent af eigna­safni sjóðs­ins sem við hefðum þá lagt til í þessu útboði,“ segir Guðrún Haf­steins­dóttir.

Í ljósi stöðu sinnar og fyrri yfir­lýs­inga hlýtur fjár­mála­eft­ir­litið að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að Guðrún Haf­steins­dóttir sé van­hæf til að sitja í stjórn líf­eyr­is­sjóðs með því að rétt­læta fjár­fest­ingu í Icelandair vegna þess hversu lítið hlut­fall hún er af heild­ar­eignum.

Og með því að lýsa því yfir að líf­eyr­is­sjóð­ur­inn hafa stutt við félagið í 40 ár og gefa þannig í skyn að fag­leg sjón­ar­mið ríki ekki heldur „stuðn­ingur“ við mik­il­vægt fyr­ir­tæki í atvinnu­líf­inu.

Einnig hefur Guðrún lýst þeirri skoðun sinni sinni að vegna „sögu­legra“ sjón­ar­miða um ávöxtun sé rétt að taka þátt og það sé mik­il­vægt að fjár­festa í Icelandair til að verja störf.
Guðrún hefur áður lýst því yfir að það sé lög­boðin skylda stjórn­ar­manna að hámarka arð­semi fjár­fest­inga ein­göngu.

Ekkert að ofan­sögðu stenst nokkra skoðun, sam­þykktir sjóðs­ins, fjár­fest­ing­ar­stefnu hans eða lög sem gilda um fjár­fest­ingar líf­eyr­is­sjóða.

Þess vegna skora ég á fjár­mála­eft­ir­litið að taka ummæli Guðrúnar Haf­steins­dóttur til skoð­unar og meta hana óhæfa til að taka ákvarð­anir um fjár­fest­ingar fyrir hönd sjóð­fé­laga LIVE.

Einnig lýsi ég yfir van­trausti á Guðrúnu Haf­steins­dóttur til að gegna stöðu vara­for­manns stjórnar LIVE og For­mennsku í Lands­sam­tökum líf­eyr­is­sjóða.

Eft­ir­far­andi spurn­ingar standa eftir:

Hvað telur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­anda Kjörís, rétt­læt­an­legt hlut­fall af heild­ar­eignum líf­eyr­is­sjóða fari í fjár­fest­ingar sem metnar eru of áhættu­samar til að taka þátt í?

Telur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­andi Kjörís, að fjár­mála­eft­ir­litið ætti að skoða fleiri sjóði eins og Frjálsa, Birtu og Festu, sem ekki tóku þátt í útboð­inu og telur hún að fjár­mála­eft­ir­litið þurfi að skoða sér­stak­lega ákvarð­anir stjórna og starfs­fólks þeirra sjóða?

Telur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­andi Kjörís, þá stað­reynd að aðeins 2 af 5 stærstu hlut­höfum Icelandair sem ákváðu að taka þátt í útboð­inu benda til þess að áhættan hafi verið of mikil eða ann­ar­leg sjón­ar­mið hafi staðið þar að baki?

Telur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­andi Kjörís, að Fjár­mála­eft­ir­litið þurfi einnig að skoða ákvarð­anir þeirra sem vildu taka þátt og þeirra sjóða sem tóku þátt í útboð­inu?

Telur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­andi Kjörís, að Fjár­mála­eft­ir­litið þurfi að skoða íhlutun hennar sjálfra ,sem for­mann Land­sam­taka líf­eyr­is­sjóða, að sam­komu­lagi sem var gert við Seðla­bank­ann um að líf­eyr­is­sjóð­irnir væru settir í gjald­eyr­is­höft á meðan aðrir fjár­festar komust út?

Og hvaða laga­legu for­sendur lágu að baki?

Telur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­andi Kjörís, rétt­læt­an­legt að líf­eyr­is­sjóðir kæmu til bjargar sínu eigin fyr­ir­tæki vegna þess að það hafi svo langa sögu eða sé svo lítið hlut­fall af heild­ar­eignum eða til að verja störfin?

Getur Guðrún Haf­steins­dóttir, eig­andi Kjörís, bent á hvaða laga­for­sendur og sam­þykktir styðja við fyrri yfir­lýs­ingar og það sem að ofan er rakið?

Þessi ofsa­fengnu við­brögð sem við höfum fengið frá valda­blokk atvinnu­lífs­ins er svo lýsandi og afhjúp­andi um það ástand og vinnu­brögð sem þrif­ist hafa ára­tugum saman innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins þar sem atvinnu­lífið hefur gengið um á skítugum skónum og fara nú á taugum yfir því að loks­ins, já loks­ins sé armur verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar að skipa inn nægi­lega hæfa ein­stak­linga til að meta hverja fjár­fest­ingu út frá fag­legum for­sendum en ekki frænd­hygli, póli­tík,sér­hags­muna eða til­finn­inga.

Ég fékk ábend­ingu þess efnis fyrir nokkrum dögum að Frétta­blaðið ætl­aði í her­ferð gegn mér og stjórn­ar­mönnum okkar hjá LIVE. Þetta fékk ég eftir nokkuð áræð­an­legum heim­ildum svo ekki sé meira sagt.

Það varð raunin enda Frétta­blaðið nú upp­fullt af dylgjum í minn garð og þeirra sem sitja fyrir okkar hönd í stjórn LIVE.

Þannig var ég við öllu búinn í þeim efnum því einn aðal­eig­andi Frétta­blaðs­ins, Helgi Magn­ús­son fjár­festir, á sér einmitt langa og lit­ríka sögu innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins, sem fjár­festir, stjórn­ar­maður og for­maður stjórnar LIVE og Samtaka iðn­að­ar­ins eða alveg þangað til að bak­land sjóðs­ins fékk nóg og bol­aði honum út.

Það verður gaman að rifja þann tíma upp á næstu miss­erum og er af nógu að taka.
En þetta mál und­ir­strikar mik­il­vægi þess að aftengja atvinnu­lífið frá stjórnum líf­eyr­is­sjóða og við verðum að hefja vinnu við það að ákvörð­un­ar­valdið við stórar fjár­fest­ingar og skipun í stjórnir sjóð­anna verði alfarið í höndum sjóð­fé­lag­anna sjálfra.

Atvinnu­lífið og aðrir tals­menn sér­hags­muna sem hafa litið á eft­ir­launa­sjóði almenn­ings sem fé án hirðis ganga nú vask­lega fram í að krefja eft­ir­lits­að­ila og lög­gjafann um að taka til skoð­unar „skoð­anir“ þeirra sem voru á móti því að fjár­festa í einum áhættu­mesta atvinnu­rekstri sem um getur.

Á meðan skoð­anir þeirra sem vildu taka þátt eru góðar og gildar og þarfn­ast ekki frek­ari skoð­unar af hálfu eft­ir­lits­að­ila.

Þessi ofsa­fengnu við­brögð og afhjúpum þeirra sem valdið hafa, stað­festa að við erum á hár­réttri leið.

Leið sem von­andi færir valdið til síns heima. Til þeirra sem eiga þessa pen­inga en hafa minnst um það að segja hvernig þeim er ráð­stafað.

Vin­sam­lega deildu ef þú vilt Samtök atvinnu­lífs­ins úr stjórnum líf­eyr­is­sjóð­anna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnahagsmál

Sósíalistar vilja skera niður ofurlaun ráðamanna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“
Innlent

Sós­í­alistar vilja skera niður ofur­laun ráða­manna: „Eðlilegt að þeir byrji á sjálfum sér“

Sós­í­alista­flokk­ur­inn stingur upp á að ríkið hag­ræði með því að skera niður „ofur­laun og sporslur“ til ráða­manna. Kosn­inga­stjórn Sós­í­alista­flokks Íslands var að senda frá sér ályktun um hag­ræð­ing­ar­að­gerðir rík­is­stjórn­ar­innar. Þar segir að ein mik­il­væg­asta hag­ræð­ingin sem hægt er að ráð­ast í sé að „skera niður ofur­laun og sporslur til ráða­manna sem eiga ekki að vera í allt öðru­vísi efna­hags­um­hverfi en...
Ragnar skýtur fast á bankana: „Þetta er allt að koma segir fjármálaráðherra!!“
Innlent

Ragnar skýtur fast á bank­ana: „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!!“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son skýtur föstum skotum á fjár­mála­ráð­herra og bank­ana í ljósi vaxta­hækk­ana Arion banka. Verka­lýðs­for­ing­inn Ragnar Þór Ing­ólfs­son er ekki ánægður með Arion banka frekar en margir aðrir eftir að bank­inn til­kynnti um 15 pró­sent vaxta­hækkun. „Þetta er allt að koma segir fjár­mála­ráð­herra!! Bank­arnir eru í óða önn að leggja sitt af mörkum til sam­fé­lags­ins, í að ná niður...
Stéttarfélög boða til mótmæla á Austurvelli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efnahagsástandinu“
Innlent

Stétt­ar­fé­lög boða til mót­mæla á Aust­ur­velli: „Hafa neitað að axla ábyrgð á efna­hags­á­stand­inu“

Nokkur stétt­ar­fé­lög hafa boðað til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun, þriðju­dag­inn 10. sept­em­ber klukkan 16:00. Alþýðu­sam­band Íslands, BSRB og Kenn­ara­sam­band Íslands boða til mót­mæla á Aust­ur­velli á morgun en ætl­unin er að mót­mæla skeyt­inga­leysi stjórn­valda gagn­vart hárri verð­bólgu og vöxtum. „Þrálát verð­bólga og háir vextir hafa haft alvar­legar afleið­ingar á fjölda heim­ila lands­ins vegna síhækk­andi verðs á nauð­synja­vörum og hús­næð­is­kostn­aðar....
Björn lætur ráðherra heyra það: „Heimskulegustu ummæli ársins 2024“
Menning

Björn lætur ráð­herra heyra það: „Heimsku­leg­ustu ummæli árs­ins 2024“

Björn Birg­is­son, sam­fé­lags­rýnir og fyrrum rit­stjóri frá Grinda­vík segir ummæli Sigurðar Inga Jóhanns­sonar fjár­mála­ráð­herra sem hann lét falla á dög­unum, örugg­lega flokk­ast með „heimsku­leg­ustu ummælum árs­ins 2024“. Ummæli Sigurðar Inga Jóhann­es­sonar, fjár­mála­ráð­herra og for­manns Fram­sókn­ar­flokks­ins í Kast­ljósi á dög­unum, féll væg­ast sagt í kramið hjá mörgum Íslend­ingum en þar sagði hann það vera í erfða­efni Íslend­inga að sætta sig við...
Segir ríkisvaldið líta á almenning sem blóðmerar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auðvaldsins“
InnlentEfnahagsmál

Segir rík­is­valdið líta á almenn­ing sem blóð­merar:„Getum ekki lengur lifað undir alræði auð­valds­ins“

Gunnar Smári Egilsson segir að rík­is­valdið líti á almenn­ing sem blóð­merar. Sós­í­alista­for­ing­inn Gunnar Smári Egilsson er síður en svo sáttur við óbreytta stýri­vexti Seðla­bank­ans sem til­kynntir voru í morgun. Segir hann í harð­orðri Facebook-færslu að í fram­tíð­inni verði hugs­an­lega settir upp „gam­anóp­eru“um fundi pen­inga­nefnd Seðla­bank­ans en þangað til sé þetta ekki fyndið. „Kannski verða þessi fundir settir upp sem gam­anóp­erur...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins