„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ballarin íhugar lögsókn gegn Icelandair

Ballarin íhugar lögsókn gegn Icelandair
Mynd / Skjáskot RÚV

Michelle Ballarin, banda­ríski fjár­festir­inn sem keypti þrota­búa WOW, skoðar mögu­leika á mál­sókn gegn Icelandair. Ástæðan er sú að sjö millj­arða króna til­boði hennar var hafnar og telur hún að henni hafi verið mis­munað í hluta­fjár­út­boð­inu.

Þetta stað­festir Páll Ágúst Ólafsson, lög­maður Ballarin hér á landi, sem segir að aðrir þættir en fjár­hags­legir hag­munir félags­ins hafi ráðið þegar tekin var afstaða til til­boðs Ballarin.

„Til­boð­inu var ein­fald­lega ekki svarað.“

Koma Ballarin til lands­ins vakti athygli og komið hefur í ljós að hún marg­braut sótt­varn­ar­lög í heim­sókn sinni. Brot Ballarin eru nú til skoð­unar hjá lög­reglu. Líkt og Mannlíf greindi frá var koma fjár­fest­is­ins brot­lend­ing.

Ballarin flaug af landi brott eftir að til­boði hennar í Icelandair var hafnað. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs fór króka­leið heim til Banda­ríkj­anna um Evrópu. Hún hugð­ist kaupa kjöl­festu­hlut fyrir sjö millj­arða króna í Icelandair og sótt­ist eftir því að verða stjórn­ar­for­maður flug­fé­lags­ins. Viðræður milli hennar og stjórn­enda Icelandair um sam­starf höfðu staðið yfir síð­ustu vikur. Til­boð­inu var hins vegar hafnað þar sem hún þótti ekki geta sýnt fram á getu til að standa við til­boðið.

Páll Ágúst segir í við­tali við Frétta­blaðið að það sé ekki einu sinni hægt að segja að til­boði Ballarin hafi verið hafnað. Hann segir Ballarin hafa fengið ófag­lega máls­með­ferð í útboð­inu og ekki setið við sama borð og aðrir. Banda­ríska fjár­fest­inum hafi ein­fald­lega verið hent út í skjóli nætur. „Til­boð­inu var ein­fald­lega ekki svarað. Okkur var ein­fald­lega ekk­ert svig­rúm gefið til þess að sýna fram á greiðslu­getu. Ég þori að full­yrða að aðrir sjö þús­und þátt­tak­endur í útboð­inu hafi ekki verið krafðir um sams konar sönnun fyrir fjár­mögnun og hún,“ sagði Páll og stað­festir að rétt­ar­staða Ballarin sé nú til skoð­unar og lík­legt er að hún muni sækja rétt sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins