„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Útfararstjóri kærir einelti og andlegt ofbeldi

Útfararstjóri kærir einelti og andlegt ofbeldi

Hvegg­viður Hregg­viðs­son, fyrr­ver­andi kirkju­vörður, með­hjálp­ari og útfar­ar­stjóri Borg­ar­nes­kirkju, neyð­ist til að leita til úrskurð­ar­nefndar Þjóð­kirkj­unnar vegna þess sem hann kallar enn eitt ein­elt­is­málið sem ekki er tekið á innan kirkj­unnar. Lögmaður hans er með kæruna klára þar sem fjallað er meðal ann­ars um aðkomu bisk­ups að mál­inu.

Kirkjan í Borg­ar­nesi

Kæran er í mörgum liðum og snýr að vald­níðslu innan kirkj­unnar þar sem Hregg­viður hefur helgað líf sitt kirkj­unni í Borg­ar­nesi. Málið hefur þæfst á borði bisk­ups um nokk­urt skeið án þess að lausn hafi fund­ist. „Mál mitt snýr að alvar­legum umkvört­unum. Sókn­ar­presti og sókn­ar­nefnd hefur ekki tek­ist að bera klæði á vopnin. Biskup hlust­aði á umkvörtun okkar hjóna og útveg­aði sátta­semj­ara í málið. En mér skilst að aðstöðu sinnar vegna geti biskup ekki tekið öðru­vísi á mál­inu og þess vegna er málið í þessum far­vegi,“ segir Hregg­viður.

„Fram­koman í okkar garð hefur ítrekað verið svo vond.“

Á end­anum leit­aði Hregg­viður ásamt konu sinni til lög­manns til að kæra málið til úrskurð­ar­nefndar Þjóð­kirkj­unnar. Deilu­efnið virð­ist vera lang­vinnar deilur hjón­anna við org­anista. „Hvorki sókn­ar­nefndin né biskup hafa viljað hlusta á okkur eða aðhaf­ast nokkuð. Úrskurð­ar­nefndin er því síð­asta úrræðið og við þurftum á end­anum að fá lög­fræð­ing í málið. Það var ekk­ert annað að gera í stöð­unni, það er sárt fyrir mig að stjórn kirkj­unnar taki ekki á þessu,“ segir Hregg­viður sem segir málið hafa farið með heilsu sína.

„Við hjónin höfum gefið allt okkar til kirkj­unnar síð­ustu 20 ár. Fram­koman í okkar garð, and­legt ofbeldi og ein­elti, hefur ítrekað verið svo vond að við gátum ekki lengur sætt okkur við það lengur. Það eru vissu­lega von­brigði að biskup hafi ekki sinnt þessu betur og um það ríkir mikil óánægja vegna sífelldra ein­elt­is­mála innan kirkj­unnar sem ekki er unnið úr. Það kann­ast margir við getu­leysi kirkj­unnar til að taka á málum. Þetta er vanda­mál. Við höfum átt langt og far­sælt starf innan kirkjunna og mér þykir mjög sárt að fá svona kaldar kveðjur í lokin frá hendi kirkj­unnar. Þetta er mjög dap­ur­legt og verður seint, eða aldrei, fyr­ir­gefið.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins