„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skuggahlið Covid: Miðaldra fólk í drykkju og sjálfsvígum fjölgar

Ein­angrun og atvinnu­missir vegna Covid 19 og aðgerða til að halda veirunni fjarri hafa orðið til þess að drykkju­skapur og önnur neysla fíkni­efni stór­eykst. Val­gerður Rún­ars­dóttir, yfir­læknir á Vogi, skynjar þetta ástand betur en flestir aðrir.

„Margir eru orðnir lang­drukknir, eru orðnir illa á sig komnir eftir að hafa drukkið áfengi kannski dag eftir dag í langan tíma. Þetta er jafn­vel fólk sem drakk áður og hafði vissa stjórn á sér af því að það mætti í vinn­una og hélt hlut­unum gang­andi,“ sagði Val­gerður í við­tali við Morg­un­vakt­ina á Rás 1.  Atvinnu­leysi á land­inu er orðið að gríð­ar­legu vanda­máli enda eru um 10 pró­sent án vinnu. Þá er því spáð að atvinnu­leysið verði allt að 12 pró­sentum um ára­mótin að óbreyttu. Það er sögu­legt met og þýðir að 25 þús­und manns verða atvinnu­lausir á Íslandi. .

Risa­vaxin félags­leg vanda­mál hafa komið upp vegna þess ástands sem ríkir í sam­fé­lag­inu. Eins og Mannlíf hefur greint frá hefur orðið mikil fjölgun sjálfs­víga það sem af þessu ári. Samkvæmt tölum lög­reglu hafa 30 tekið líf sitt, frá byrjun árs til loka ágúst­mán­aðar en þeir voru 18 árið 2019. Þetta þýðir að fleiri hafa fallið fyrir eigin hendi en þeir sem hafa dáið vegna sjúk­dóms­ins. Ákveðin þöggun og afneitun hefur verið hjá yfir­völdum vegna þessa. Þannig hefur þetta skelf­ing­ar­á­stand ekki borið á góma á fundum þrí­eyk­is­ins þar sem tölur eru reif­aðar um þá sem eru sýktir eða í sótt­kví.

Aukin óregla er, að sögn Val­gerðar, helst á meðal mið­aldra fólks. Sá hópur er áber­andi á meðal þeirra sem leita sér aðstoðar á Vogi en minna hefur farið fyrir yngra fólki. Val­gerður sagði við RÚV að þar kunni að hafa góð áhrif að í far­aldr­inum svo lítið er um djamm vegna lok­ana á börum.

„Það er gríð­ar­legt aðhald í sam­fé­lag­inu að þessu leyti fyrir fólk sem er vant að vera á þvæl­ingi um helgar og sækja allar upp­á­komur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins