„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Ólgan í kringum biskup: Kirkjan neitar ítrekað að svara fyrir ávirðingar

Ólgan í kringum biskup: Kirkjan neitar ítrekað að svara fyrir ávirðingar
Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir biskup.

Þjóð­kirkjan neitar að svara fyrir þau deilu­mál sem finna má innan kirkj­unnar. Um nokk­urt skeið hefur Mannlíf leitað við­bragða hjá tals­mönnum hennar vegna ýmissa mála en án árang­urs.

Pétur Georg Markan, sam­skipta­stjóri Bisk­ups­stofu, virð­ist ekki vilja ræða við­kvæm mál­efni sem að kirkj­unni snúa. Um nokk­urt skeið hafa hrann­ast upp ósvar­aðar fyr­ir­spurnir vegna mála sem snúa að ein­elti og deilum innan Þjóð­kirkj­unnar. Hvorki Pétur né Agnes biskup hafa séð sóma sinn í að svara fyrir þau.

Frá því í apríl síð­ast­liðnum hefur Mannlíf óskað eftir við­tali við biskup. Þá hafði Agnes rekið séra Skírni Garð­ars­son úr emb­ætti. Þá neit­aði biskup að ræða málið við Mannlíf og taldi nóg að ræða við fjöl­miðla í gegnum frétta­til­kynn­ingu.

Síðan birti Pétur hina umdeildu mynd af trans-Jesú með brjóst. Mannlíf leit­aði aftur við­brigða hjá bisk­ups­stofu vegna mynd­birt­ing­ar­innar og óskaði jafn­framt eftir við­tali við Agnesi. Engin svör bár­ust.

Þá greindi Mannlíf frá lykla­stríði presta á Eski­firði. Davíð Bald­urs­son, frá­far­andi sókn­ar­prestur á Eski­firði, virð­ist eiga erfitt með að láta eftir brauðið til arf­taka sinna. Að minnsta kosti er hann enn með lykla­völdin að presta­skrif­stof­unni og hleypur enn til verka sem prestur í bænum. Prest­arnir sem tóku við af honum fyrir tæpu ári síðan fengu nóg og kvört­uðu til bisk­ups. Þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir svar­aði Pétur engu.

Næst í röð­inni var kæru­mál fyrrum kirkju­varðar og útfar­ar­stjóra í Borg­ar­nesi sem kvartar undan ein­elti og hefur ekki fengið lausn sinna mála þrátt fyrir umleit­anir hjá sókn­ar­presti, nefnd sókn­ar­innar né bisk­upi. Mannlíf leit­aði við­bragða Agnesar en engin slík fást.

Að end­ingu flutti Mannlíf fréttir af óánægju vegna umdeildrar inn­heimtu aðgangs­eyris kirkj­unnar í Skál­holti. Bæði starfs­fólk kirkj­unnar, sem orðið hefur fyrir veru­legum óþæg­indum frá kirkju­gestum vegna inn­heimt­unnar, og sókn­ar­prestur hennar eru ósátt við gjald­heimt­una. Fyrrum kirkju­vörður segir gjald­heimt­una synd­uga.

Pétur Georg Markan, sam­skipta­stjóri Þjóð­kirkj­unnar.

Þegar allt er tekið saman hefur Mannlíf þurft að ganga á eftir svörum Péturs sam­skipta­stjóra svo mán­uðum skiptir og aldrei fæst Agnes biskup til að tjá sig um þessi mál­efni og ólg­una sem ríkir. Það var svo loks í síð­ustu viku að þau sögu­legu tíð­indi urðu að sam­skipta­stjór­inn svar­aði loks­ins upp­söfn­uðum fyr­ir­spurnum sem á borði hans eru. Svarið var stutt og ekki í þeim anda sem hann hafði áður lofað.

„Bisk­ups­stofa veitir ekki við­bragð vegna þess­ara frétta hjá ykkur. Gangi þér og ykkur vel,“ segir Pétur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins