„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bolli Kristinsson kaupmaður sár: Kolbrún kallar mig tuðara

Bolli Kristinsson kaupmaður sár: Kolbrún kallar mig tuðara
Kolbrún Berg­þórs­dóttir. Mynd / Skjáskot RÚV

Bolli Krist­ins­son, kaup­maður og bar­áttu­maður fyrir breyttu skipu­lagi í Reykja­vík og brott­hvarfi Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra, er sár vegna leið­ara­skrifa Kol­brúnar Berg­þórs­dóttur í Frétta­blað­inu.

„Þar notar hún þann dálk blaðs­ins þar sem rit­stjórn­ar­stefnan kemur fram til að úthúða mér og kallar mig „tuð­ara“ vegna aug­lýs­ingar sem ég hafði meðal ann­ars fengið birta í hennar blaði, Frétta­blað­inu,“ skrifar Bolli í aðsendri grein í Frétta­blað­inu og botnar lítið í leið­ara­höf­undi að skrifa með svo nei­kvæðum hætti um aug­lýsanda sinn.

Bolli segir að í aug­lýs­ing­unni hafi hann meðal ann­ars farið yfir 19 atriði sem sýni svo ekki verði um villst í hvers konar öng­stræti stjórnun Reykja­vík­ur­borgar sé komið undir stjórn Dags B. Egg­erts­sonar.

„Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kolbrún stingur niður penna og gerir lítið úr bar­áttu minni og afger­andi meiri­hluta rekstr­ar­að­ila í mið­bænum gegn lok­unum gatna sem hafa valdið gríð­ar­legu tjóni og fyr­ir­tækjaflótta sem sér ekki fyrir end­ann á,“ segir Bolli. Hann segir að Kolbrún geri til­raun til að geng­is­fella sig fyrir þær sakir að hann búi á Spáni hluta úr ári og hefði þannig ekki gengið um götur borg­ar­innar.

„Þeim báðum, Degi og Kolbrúnu, láð­ist að minna á að ég bý líka hluta úr ári á Lauga­vegi og við þá götu hef ég starfað stærstan hluta ævinnar og búið með hléum um ára­tuga­skeið. Öllum má ljóst vera að Lauga­veg­ur­inn, eina skil­greinda versl­un­ar­gata Reykja­víkur og aðal­versl­un­ar­gatan, er að breyt­ast hratt og örugg­lega í drauga­stræti.“

Hann segir að við Laugaveg sé laust rými með rúm­lega 27 metra milli­bili og vill að Dagur og Kolbrún komi í göngu­ferð til að upp­lifa og sjá drauga­byggð­ina.

„Það er ógn­vekj­andi stað­reynd sem Kolbrún kýs að horfa fram hjá, rétt eins og borg­ar­stjór­inn. Dagur B. Egg­erts­son hefur ekki enn svarað boði mínu og félaga minna í Mið­bæj­ar­fé­lag­inu í Reykja­vík um að ganga með honum göt­una svo að hann fái að kynna sér hvernig ástandið raun­veru­lega er. Við lifum í þeirri veiku von að hann sjái ljósið. Okkur langar líka að bjóða Kolbrúnu með okkur í göngu­ferð um svæðið, hvort sem borg­ar­stjór­inn verður með í för eða ekki. Það er engin ástæða til að ótt­ast okkur kaup­menn,“ segir hann.

Hann er þó ekki bjart­sýnn á það að Kolbrún og Dagur láti undan.

„Nei, því skal bara mætt með skæt­ingi og yfir­læti. Það er samt aldrei of seint að sjá að
sér og boðið í göngu­ferð­ina stendur enn opið,“ skrifar sátt­fús Bolli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins