„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Héðinn kominn með nóg: „Shit happens, höldum fast í vonina“

Héðinn kominn með nóg: „Shit happens, höldum fast í vonina“
Héðinn Svarfdal

Héðinn Svarfdal, far­ar­stjóri og veit­inga­maður, getur ekki beðið eftir að árið 2020 verður búið. Á árinu lenti hann í mót­or­hjólaslysi sem kost­aði hann næstum annan fót­legg­inn og tvisvar hefur flætt inn á heim­ili fjöl­skyld­unnar með til­heyr­andi tjóni. Allt sem getur bilað hefur bilað.

„Rándýra ísvélin okkar bilar tvisvar. Bíllinn okkar bilar þrisvar. Fjögur sprungin dekk. Mót­or­hjóliđ ónýtt. En allt í lagi. Þađ má víst gera viđ hluti,“ segir Héðinn sem fer yfir árið í færslu á Facebook. Hann opn­aði veit­inga­stað með eig­in­konu sinni, Elvu Sturlu­dóttur, í febr­úar síð­ast­lið­inn sem stað­settur er við strönd í Kosta Ríka. Þá héldur hjónin að spenn­andi og skemmti­legir tímar væru framundan en svo var aldeilis ekki því strax í upp­hafi reyndir lög­mað­ur­inn þeirra þjófur.

„Ferliđ var mjög lær­dóms­ríkt, en reyndar stal lög­fræđing­ur­inn okkar pen­ingum frá okkur og verk­tak­inn tók þrjá mán­uđi lengur til ađ klára vinn­una en til stóđ. Og alls konar svik og prettir í gangi. En allt í lagi. Viđ vorum komin međ nýjan veit­inga­stađ viđ sjáv­ar­síđuna! Draumur! Svo var strax inn­brot. Þjóf­ur­inn hand­tek­inn, en ekk­ert af þýf­inu skilađi sér aftur.
En allt í lagi,“ segir Héðinn og það næsta sem ger­ist er að allir við­skipta­vin­irnir hverfa á brott vegna kór­ónu­veiru­fald­ars­ins:

„COVID-19 kemur og túrist­arnir hverfa. Skól­arnir loka og allar tóm­stundir felldar niđur. Öll mín verk­efni sem far­ar­stjóri og nám­skeiđs­hald­ari sömu­leiđis farin. En allt í lagi. Stöndum saman. Heimiliđ okkar reyn­ist sýkt (bæđi maurar og Iguana-eđlur), viđ Víkingur báđir komnir međ útbrot vegna þess og því neyđumst viđ til ađ flytja. En allt í lagi. Nýtt og betra umhverfi tekur viđ í þarnæsta bæ.“

Þegar ferða­menn­irnir hurfu héldu inn­brotin á veit­inga­stað­inn samt áfram segir Héðinn. Þá bætt­ust við miklar rign­ingar sem ollu skemmdum á heim­ili fjöl­skyld­unnar. „Stuldur og svo meiri stuldur frá veit­inga­stađnum. Fleiri prettir og ofrukkun. En allt í lagi. Sumir þurfa bara ađ bjarga sér. Tvisvar fljóð. Kassar međ mál­verkum, bókum og alls konar dýru dóti gegn­sósa. En allt í lagi. „Shit happ­ens?“ Ég fer međ dreng­ina okkar heim til Íslands, sem gekk vel. En fest­ist svo í París í þrjár vikur á leiđinni til baka vegna COVID-19. En allt í lagi. Víst hægt ađ vera fastur á verri stöđum,“ segir Héðinn. Fámennt er á veit­inga­staðnum í far­aldr­inum, flestir þeir sem banka upp á eru í leit að vinnu frekar en mat.

Til að toppa árið lenti Héðinn í alvar­legu mót­or­hjólaslysi þar sem tví­sýnt var hvort hann héldi öðrum fót­leggnum. Hann vonar inni­lega á næsta ár verði betra en þetta. „Mót­or­hjólaslys og lækn­arnir vildu taka ađra löpp­ina. En allt í lagi. Ég hélt löpp­inni og lífiđ heldur áfram. 2020 sökkar. Annus horri­bilis. En, ađal­at­riđiđ er auđvitađ ađ ég á ynd­is­lega konu, dásam­leg börn, frá­bæra stór­fjöl­skyldu og hjálp­sam­lega vini. Höldum fast í von­ina um betra 2021,“ segir Héðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölskylda

Mitt barn, þitt barn og okkar börn
Innlentfjölskylda

Mitt barn, þitt barn og okkar börn

,,Fjöl­skyldur eru mis­mun­andi – og það á líka við um stjúp­fjöl­skyldur þar sem parið á börn úr öðrum sam­böndum. Það getur verið á fram­halds­skóla­aldri með ung börn eða á gam­als aldri eins og afi minn sem flutti út af elli­heim­il­inu og hóf sam­búð að nýju við mis­mikla gleði aðstand­enda. Fólk getur verið gagn­kyn­hneigt eða sam­kyn­hneigt af íslenskum eða erlendum upp­runa...
Ætlar að lesa meira, fitna fullt, kvíða minna og nöldra ekkert
Fólk

Ætlar að lesa meira, fitna fullt, kvíða minna og nöldra ekk­ert

Fyrir Pétur G. Markan, sam­skipta­stjóra Bisk­ups­stofu, snú­ast jólin fyrst og fremst um sam­veru með fjöl­skyld­unni, góðan mat og gleði. Ferð í kirkju­garð­inn, rjúpur í jólamat­inn, möndlu­grautur og ísköld kók í gleri eru ómissandi þættir í hátíða­hald­inu og Pétur seg­ist fast­lega gera ráð fyrir því að bæta á sig um jólin. Eft­ir­minni­leg­ustu jólin hans voru þegar veð­urofsi á Vest­fjörðum haml­aði því...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins