„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Signý glímdi við ADHD: „Mér fannst ég alltaf vera að bregðast“

Signý glímdi við ADHD: „Mér fannst ég alltaf vera að bregðast“
Signý Rós Ólafs­dóttir. Mynd / Hallur Karlsson

Signý Rós Ólafs­dóttir hlaut verð­laun sem Outstanding woman director á kvik­mynda­há­tíð­inni Winter Film Awards International Film Festival í New York í vor fyrir útskrift­ar­verk­efni sitt úr Kvik­mynda­skóla Íslands, aðeins tví­tug að aldri. Fyrir nokkrum árum hefði hana þó ekki grunað að hún yrði á þessum stað í til­ver­unni því hún pass­aði engan veg­inn inn í skóla­kerfið og seg­ist í grunn­skóla sífellt hafa fengið þau ósögðu skila­boð að hún væri heimsk. Í tíunda bekk kom í ljós að hún er með les­blindu og athygl­is­brest, sem í dag er greint ADHD sem hafði verið ógreint öll þessi ár og það breytti ýmsu. Nú hefur Signý Rós gengið til liðs við Geðhjálp og mun í vetur ferð­ast milli grunn­skóla lands­ins og segja sögu sína til að hvetja og styrkja þau börn sem verða út undan í skóla­kerf­inu.

„Mín upp­lifun er að það passa ekk­ert allir inn í þennan fyr­ir­framá­kveðna kassa sem skóla­kerfið vinnur eftir,“ segir Signý Rós spurð hvernig hún hafi upp­lifað skóla­kerfið. „Allir eiga að vera geð­veikt góðir í að lesa mörg orð á mín­útu, góðir í stærð­fræði og svo fram­vegis, það er bara alls ekki þannig. Það geta ekk­ert allir leyst jöfnur eða fundið x. Ég get það til dæmis ekki. Ég gat aldrei fundið x-ið en ég get gert stutt­myndir eða skrifað fyrir þig sögu um hvað sem er. Það vantar sveigj­an­leika í kerfið til að koma til móts við þá krakka sem passa ekki inn í rammann.“

Signý Rós seg­ist ekki hafa verið dæmi­gert ADHD-barn, það hafi farið afskap­lega lítið fyrir sér í skól­anum og hún hafi eig­in­lega bara gleymst þess vegna.

„Ég var alltaf rólega barnið í bekknum,“ segir hún og brosir. „Sat aft­ast og það fór rosa­lega lítið fyrir mér, þannig að ég gleymd­ist bara, ég var líka í svo erf­iðum bekk á tíma­bili. Kenn­ur­unum fannst ég alveg fyr­ir­mynd­ar­nem­andi í tímum, en ég var bara að horfa út um glugg­ann, á kafi í eigin heimi og átti alltaf mjög erfitt með að læra. Mamma og pabbi stóðu í eilífri bar­áttu við að fá mig til að læra heima. Ég var ekki þetta týpíska ADHD-barn sem oft er talað um, þetta aktíva barn sem getur ekki setið kyrrt, heldur var ég hin gerðin sem beinir allri orkunni inn á við. Eins og þekkt er í dag sér­stak­lega meðal stelpna með ADHD.“

Fór í gegnum allan grunnskólann án þess að fá aðstoð

Signý Rós flutti nokkrum sinnum sem barn vegna náms og vinnu for­eldr­anna og var í fjórum grunn­skólum en það var alls staðar sama sagan, alveg fram í níunda bekk grunn­skól­ans.

„Það voru samt margir kenn­arar sem sáu að það var eitt­hvað að,“ segir hún. „Ég var ekki alveg að funkera eins og allir hinir, en það var samt eng­inn sem steig fram og gerði eitt­hvað í mál­inu fyrr en ég var komin í níunda bekk. Þá kom inn nýr kenn­ari, Atli Sveinn Þór­ar­ins­son átt­aði sig fljót­lega á því að það væri hægt að ná meiru út úr mér með öðru­vísi aðferðum. Ég náði líka að tengja við hann í gegnum fót­bolt­ann. Ætli hann hafi ekki bara bjargað lífi mínu? Hann sendi mig í grein­ingu. Þannig að ég fór í gegnum næstum allan grunn­skól­ann án þess að neinn pældi í því að ég þyrfti ein­hverja öðru­vísi aðstoð eða aðferðir en hinir krakk­arnir.“

„Það var alltaf verið að reyna að laga mig til að ég pass­aði inn í rammann.“

Þrátt fyrir að vera svona róleg innan veggja skól­ans fékk Signý Rós útrás fyrir ork­una með öðrum hætti, hún stund­aði fót­bolta og alls konar íþróttir frá unga aldri og vildi helst hvergi ann­ars staðar vera en á vell­inum.

„Ég var alltaf í fót­bolta,“ segir hún og hlær. „Og það var tekið sem merki um að það væri allt í lagi með mig að ég mætti alltaf á allar æfingar og tók auka­æf­ingar, var alltaf með bolt­ann og ég stóð mig vel þar. En ég var samt ekk­ert að læra neitt í skól­anum en alltaf að reyna, með fall­ein­kunn í sam­ræmdu próf­unum, enda er maður met­inn eða dæmdur þar eftir því hvað maður kann í þrem fögum og þegar ég kom upp í fram­halds­skóla ent­ist ég auð­vitað ekki lengi þar. Ég hafði ekki grunn­inn sem þurfti.“

Ósögð skilaboð um að standa sig ekki

Margir með ADHD-grein­ingu glíma einnig við þung­lyndi og kvíða en Signý Rós seg­ist aldrei hafa fundið fyrir þung­lyndi. Kvíðann þekki hún hins vegar vel og kannski skóla­leiða.

„Þegar ég hugsa til baka man ég oft eftir kvíða, gat oft ekki sofnað á kvöldin út af kvíða, kveið líf­inu og að mæta í skól­ann,“ segir hún. „Maður var aldrei að standa sig nógu vel og fannst maður bara vera heimskur. Ég gat ekki alltaf gert eins og kenn­ar­inn bað mig um að gera, ég gat ekki setið og ein­beitt mér og ég bara funker­aði ekki fyrr en ég var komin á fót­bolta­völl­inn og fékk útrás við að koma bolt­anum í markið. Kvíðinn tengd­ist því að vera alltaf að bregð­ast og vera alveg von­laust til­felli. Ég fékk ósögðu skila­boðin; þú ert ekki að standa þig, oft frá kenn­ur­unum þótt þeir segðu það ekki beint út en aðal­lega fann ég bara fyrir því sjálf að ég var ekki að standa mig nógu vel og kannski setti ég þessa pressu á sjálfa mig því mér fannst ég ekki vera eins og hinir.“

Signý Rós segir for­eldra sína alltaf hafa stutt við bakið á sér og hvatt sig áfram og það sé eig­in­lega alfarið þeim að þakka að hún sé yfir­höfuð læs.

„Ég er rosa heppin,“ segir hún. „For­eldrar mínir eru stuðn­ings­að­ilar mínir númer eitt, tvö og þrjú og eru algjör­lega frá­bær. Ef þau hefðu ekki verið svona hörð við mig þegar ég var að byrja að læra að lesa þá kynni ég ekki að lesa í dag. Skólinn var ekki að veita mér þá athygli og stuðn­ing sem ég þurfti til að læra að lesa, það var allt gert heima með miklum erf­ið­is­munum fyrir mömmu og pabba því ég vildi alls ekki lesa, ég vildi fara út í fót­bolta. Það kom svo í ljós þegar ég fór í grein­ing­una í tíunda bekk að ég er með les­blindu og það var mik­ill léttir og ein­hvers konar stað­fest­ing, það var þá ein­hver ástæða fyrir því að ég gat ekki lesið eins hratt og allir aðrir og er ekki enn búin að ná fullum tökum á lestri, en mér finnst það smá­vegis núna, les­blinda hand­rits­höf­und­inum. Heilinn í mér fann bara sína eigin aðferð til að lesa enda þurfti hann að gera það til að virka í þessu kerfi. En pabbi og mamma hafa alltaf staðið við bakið á mér og komið mér í gegnum allt.“

Þegar kom að því að fara í fram­halds­skóla flutti Signý Rós til Hafna­fjarðar til ömmu sinnar og afa og fór í Flens­borg­ar­skól­ann. Hún seg­ist muna sér­stak­lega vel eftir for­eldra­fundi þar sem þau fóru sér­stak­lega til þess að til­kynna kenn­ar­anum að hún færi í fram­halds­skóla.

„Það er mjög sterk minn­ing,“ segir hún og brosir. „Það var alls ekk­ert sjálf­sagt að ég færi í fram­halds­skóla og mér fannst það nokk­urs konar sigur. Það var ákveðið að ég flytti ein til ömmu og afa til að kom­ast í nýtt umhverfi og prófa eitt­hvað nýtt og sjá hvort það yrði til þess að mér gengi betur í skól­anum. Ég fór á íþrótta­braut en fann mig hins vegar alls ekki í fram­halds­skóla, þar var líka svona kassa­lagað kerfi og ein­hvern tíma var ég látin sitja eftir því ég neit­aði að lesa upp­hátt fyrir framan bekk­inn. Það var eng­inn sem spurði hvort það hent­aði mér eða hvað það væri sem mig lang­aði að gera. Ég ent­ist þar inni í tvö ár og náði prófum í ein­hverjum fögum en svo fann ég að þetta var ekki að virka þannig að ég hætti. Ætlaði bara að fara að vinna eða eitt­hvað en þá komst ég inn í kvik­mynda­skól­ann, sem kom mér mjög gleði­lega á óvart og verð ég þeim ævin­lega þakk­lát fyrir tæki­færið og fyrir að hafa trú á mér.“

Hélt áfram að reyna að fylgja gamla forminu

Þau gleði­tíð­indi að hún hefði fengið inn­göngu í Kvik­mynda­skóla Íslands fékk Signý Rós rétt eftir átján ára afmælið og þar með tók líf hennar nýja og mun ánægju­legri stefnu, hún fann hill­una sína.

„Ég sótti um í ein­hverju hvat­vísikasti eftir sigur í fót­bolta­leik,“ segir hún hlæj­andi. „Ég man að ég kom heim og til­kynnti mömmu að ég ætl­aði að sækja um í Kvik­mynda­skól­anum og henni fannst það frá­bær hug­mynd. Höfðum reyndar aðeins rætt það en aldrei tekið það neitt lengra. Ég sendi inn umsókn sama kvöld og ég von­að­ist í mesta lagi til að kom­ast inn um ára­mótin því það var langt liðið á sum­arið, en svo fæ ég póst um að koma í við­tal og svo var ég bara allt í einu komin inn. Ég var samt alveg nokkrar vikur eftir að ég byrj­aði að losna úr gamla form­inu, það var búið að negla mig svo kirfi­lega niður í það að ég var lengi að leyfa ímynd­un­ar­afl­inu að taka völdin. Kenn­ar­inn minn var alltaf að hvetja mig til að sleppa mér og leyfa hug­mynd­unum að flæða, ég var bara orðin svo vön því að berja mig niður fyrir að gera hlut­ina ekki rétt og fylgja gamla skólaform­inu. En þetta kom svo smám saman.“

Signý Rós seg­ist hafa átt þann draum að vinna við leik­hús eða kvik­myndir eig­in­lega frá því að hún man eftir sér.

„Ég hef í mörg ár átt draum­inn um leik­hús og bíó­myndir,“ segir hún. „Ég var ekk­ert ákveðin í að verða leik­stjóri fyrr en stuttu áður en ég komst inn í Kvik­mynda­skól­ann. Þá upp­götv­aði ég að það væri hægt að vinna við það að skrifa hand­rit og leik­stýra. Það hefur samt alltaf verið þörf hjá mér að búa til bíó eða leik­hús. Ég hef alltaf verið mikið í leik­húsi og verið að væfl­ast þar.“

„Alltaf verið að reyna að laga mig“

Spurð hvort hún hafi þá leikið sjálf í sýn­ingum fer Signý Rós að hlæja. „Ég gerði það þegar ég var yngri,“ segir hún. „En þegar ég elt­ist var sjálfs­traustið til þess ekki lengur til staðar. Ég gat alls ekki hugsað mér að standa uppi á sviði fyrir framan fólk og leika. Ég var alltaf að reyna að gera mitt besta en samt skil­aði það sér aldrei þannig að ég var eig­in­lega búin að ákveða að vera bara í fót­bolt­anum. Og það hent­aði mér ágæt­lega að vera bara úti á velli. Var samt alveg að laum­ast til að horfa á íslenskar bíó­myndir og leik­rit öll kvöld. Þegar ég var ell­efu ára horfði ég til dæmis þrisvar á Íslands­klukk­una, þriggja tíma sýn­ingu á erf­iðu máli. Mamma og pabbi voru alveg stein­hissa en átt­uðu sig á því að það væri eitt­hvað að ger­ast hjá mér og voru bara mjög ánægð með það. Það hefur alltaf blundað í mér að búa eitt­hvað til og ég not­aði gömlu víd­eó­vél­ina sem við áttum heima til að gera stutt­myndir og taka upp bara eitt­hvað og alls konar þegar ég var yngri, þannig að þetta var alltaf til staðar. Ég held það sé þörfin til þess að segja sögur sem liggur að baki, ég elska að segja sögur.“

Spurð hvort við­mótið sem hún mætti í skóla­kerf­inu hafi brotið sjálfs­mynd hennar segir Signý Rós engan vafa leika á því.

„Já, það gerði það,“ segir hún hugsi. „Af því manni fannst maður alltaf vera að klúðra öllu og mamma og pabbi voru á enda­lausum for­eldra­fundum út af mér. Það var alltaf verið að reyna að laga mig til að ég pass­aði inn í rammann. Skila­boðin voru: Þú mátt vera eins og þú vilt svo lengi sem það hentar okkur og passar inn í formið okkar. Það var bara ekk­ert vit í þessum mis­vísandi skila­boðum. Svo kom maður heim og átti að læra ein­hverja stærð­fræði sem öllum fannst svo auð­veld en fyrir mér voru þetta algjör geim­vís­indi, ég sat bara og starði á bæk­urnar. Og þegar allir aðrir segja að þetta sé auð­velt þá finnst manni maður auð­vitað bara vera heimskur að geta það ekki en á þeim tíma hefði ég vel geta talið upp alla leik­menn í ensku deild­inni og þá sér­stak­lega í Liverpool, það var eitt­hvað sem ég hafði áhuga á. Annars hafði ég lengi lifað í þeirri trú að ég væri vit­laus og heimsk áður en ég byrj­aði í Kvik­mynda­skól­anum.“

Smyglað inn á verðlaunahátíðina

Signý Rós útskrif­að­ist frá Kvik­mynda­skól­anum í maí 2019 og hefur síðan verið á fullu við að skrifa hand­rit og leik­stýra. Síð­ast­liðið vor fékk hún svo þau skila­boð að útskrift­ar­myndin hennar, stutt­myndin Hafið ræður, væri til­nefnd til verð­launa á kvik­mynda­há­tíð­inni Winter Film Awards International Film Festival í New York og það end­aði með því að hún hlaut verð­launin sem besti kven­leik­stjór­inn. Átti hún von á að ná svona langt á svona skömmum tíma?

„Nei, alls ekki. Ef ein­hver hefði sagt við litlu Signýju að hún ætti eftir að vinna verð­laun fyrir stutt­mynd­ina sína þá væri hún senni­lega enn þá að hlæja. Ég tek bara að mér verk­efni og tek mínar hug­myndir og vinn eins vel og ég get,“ segir hún hugsi. „Eftir að ég útskrif­að­ist fór ég að vinna sem tækni­maður fyrir Krakk­aRÚV. Ég var aðal­lega að taka upp og klippa en fékk líka að skrifa hand­rit, skrif­aði til dæmis hluta af Jóla­stund­inni í fyrra og fleira. Þar var ég í nokkra mán­uði en ákvað þá að fara til Berlínar til að víkka sjón­deild­ar­hring­inn. Ég fór reyndar fyrst til New York til að vera á hátíð­inni, ætl­aði ekk­ert að vinna verð­laun, bara upp­lifun að fara og sjá afkvæmið mitt svona úti í heimi. Svo fengum við þau skila­boð að myndin væri til­nefnd og svo var ég allt í einu komin með verð­laun í hend­urnar. Það var reyndar mjög fyndið því ég var bara tví­tug og til þess að kom­ast inn á skemmti­stað­inn þar sem loka­há­tíðin var haldin þurfti maður að vera tutt­ugu og eins. Þannig að það þurfti að smygla mér inn til að taka við verð­laun­unum. Ég fór svo þaðan til Þýska­lands og náði smá­tíma áður en COVID-19 skall á.“

Rekst aftur á veggi skólakerfisins

Nú leigir Signý Rós stúdíó í Reykja­vík með öðrum lista­mönnum og er um þessar mundir að stofna sitt eigið fyr­ir­tæki. Draum­ur­inn er samt að halda áfram að mennta sig í kvik­mynda­gerð og halda áfram að verða betri í að segja sögur en þar rekst hún aftur á veggi skóla­kerf­is­ins þar sem hún lauk ekki stúd­ents­prófi.
„Mig langar að læra meira og verða betri leik­stjóri og hand­rits­höf­undur,“ útskýrir hún. „En ég er bara lent á smá­vegis vegg þar sem ég er ekki með stúd­ents­próf. Nú er ég að leita að skólum sem bjóða upp á nám fyrir fólk sem er ekki með stúd­ents­próf eða eru til í að taka mig inn á und­an­þágu, sem er geð­veikt mikið vesen. En ég er að vinna í því að taka stúd­ent­inn, næ að taka einn og einn áfanga með, ákveð­inn skellur að þurfa að stíga til baka og fara í það að lesa Snorra-Eddu og leysa jöfnur en ég verð bara að kyngja því og reyna að klára. Ég er búin að finna mína hillu og ég ætla að verða frá­bær leik­stjóri og hand­rits­höf­undur einn dag­inn en ég þarf samt að stíga til baka og fara í fram­halds­skóla til að klára ein­hverja dönsku- og stærð­fræði­á­fanga.

Kvik­mynda­gerð er sam­vinna eins og svo margt annað og maður finnur sér bara fólk sem er betra en maður sjálfur í því sem þarf að gera. Ég er með mína fram­leið­endur og ég er með minn töku­mann sem er frá­bær og þau eru betri en ég í stærð­fræði og dönsku þannig að ef til þess kæmi að það þyrfti að nota þá kunn­áttu myndu þau bara sjá um það. Ég treysti þeim full­kom­lega fyrir því, að sjá um samn­inga­gerð og fjár­mál, ég þarf ekk­ert að kunna það þó að ég sé með putt­ana í því.“

„Ef ein­hver hefði sagt við litlu Signýju að hún ætti eftir að vinna verð­laun fyrir stutt­mynd­ina sína þá væri hún senni­lega enn þá að hlæja.“

Spurð við hvað hún sé að vinna þessa dag­ana er Signý Rós skjót til svars.

„Núna er ég að vinna í alls konar eins og til dæmis her­ferð fyrir ADHD-sam­tökin sem verður birt í októ­ber. Svo er ég að byrja þessa hring­ferð með Geðhjálp þegar COVID-19 leyfir og svo er ég alltaf að skrifa bæði bíó­mynd og þætti. Ég og fleiri vorum að gera önd­unar æfinga­mynd­band fyrir Björgvin Pál hand­bolta­mann og erum við að klára tón­list­ar­mynd­band. Og svo ætlum við að skjóta eina stutt­mynd fyrir jólin. Ég er ofsa­lega hrifin af hug­mynd­inni um að gera barna- og fjöl­skyldu­myndir, krakkar eru snilld. Og svo er ég auð­vitað í fót­bolt­anum líka, spila með ÍR en hef því miður ekk­ert náð að mæta núna í sept­em­ber. Þau hjá ÍR sýna því rosa­lega mik­inn skiln­ing, það er frá­bært og það er gaman að ná svo loks­ins að mæta á æfingar. Það er svo­lítið erfitt að sam­ræma það að vera í kvik­mynda­gerð og fót­bolta, það fer eig­in­lega ekki saman því kvik­mynda­gerð er lífs­stíll og fót­bolti er lífs­stíll, en ég er samt að reyna. Það er kannski bara fínt að ég sé svona ofvirk og hafi svona mikla orku. Ég hef líka kynnst svo mörgu mögn­uðu fólki und­an­farin ár sem hefur stutt mig og hlakka bara til að kynn­ast enn fleirum, ég elska fólk.“

Talandi um hring­ferð­ina með Geðhjálp, hvernig kom það sam­starf til og um hvað snýst þinn hluti verk­efn­is­ins?

„Ég var að vinna fyrir ADHD-sam­tökin, eins og ég sagði áðan og leit­aði til alls konar fólks sem veit meira um það mál­efni en ég,“ útskýrir Signý Rós. „Ég sendi meðal ann­ars skila­boð á Héðin Unn­steins­son til að fá spjall við hann. Við hitt­umst og áttum mjög gott spjall og svo var hann bara búinn að bóka fund með Grími hjá Geðhjálp. Þegar til kom mætti Héðinn hins vegar ekki á fund­inn og við Grímur höfðum aldrei hist þannig að við vissum eig­in­lega ekki hvernig við ættum að nálg­ast umræð­una, en svo kom í ljós að þeir höfðu verið að ræða það að fá mig með sér í ferð í skóla hring­inn í kringum landið til að segja mína sögu af skóla­kerf­inu og að það sé hægt að ná langt þótt maður nái ekki að leysa jöfnur og að það sé hægt að gera góða hluti þótt maður sé ekki góður í dönsku og funkeri ekki alveg í átta til þrjú skóla­kerfi. Þetta er flókið og það eru allir að gera sitt besta, ég hef alla vega aldrei hitt mann­eskju sem er eitt­hvað að reyna að standa sig illa, þetta er greini­lega bara það stórt vanda­mál sem aðeins þarf að hrista upp í og skoða í kjarn­ann. Það eru nefni­lega ekki allir eins og sama kerfi og hug­mynda­fræði hentar ekki öllum.“

Viðtalið má finna í blaði Geð­hjálpar.

Sjá einnig www.39.is. Þar getur þú skrifað undir áskorun þess efnis að setja geð­heilsu í for­gang í sam­fé­lag­inu.

Fólk með sjálfs­vígs­hugs­anir er minnt á Hjálp­ar­síma Rauða kross­ins, 1717, og net­spjallið. Einnig er hægt að leita til Píeta sam­tak­anna og sím­inn opinn allan sól­ar­hring­inn og er 552-2218 og vef­síðan www.pieta.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

studio-birtingur

Unaðsvara vikunnar: Tvöfaldur kanínutitrari með tveimur mótorum
Kynning

Unaðsvara vik­unnar: Tvö­faldur kan­ínu­titr­ari með tveimur mót­orum

Unaðsvara vik­unnar Unaðsvara vik­unnar frá Lovísu er titr­ar­inn Muse en varan birt­ist í nýju helg­ar­blaði Mannlífs. Muse er ein af 10 vörum frá ástr­alska vöru­merk­inu Vush, en tækið er bæði end­ur­hlað­an­legt og vatns­helt. Muse er tvö­faldur kan­ínu­titr­ari með tveimur mót­orum, átta mis­mun­andi still­ingum á titr­ing og fimm kraft­still­ingum fyrir mis­mun­andi full­næg­ingu. Ein­stak­lega sveigj­an­legur og er því hið full­komna tæki til...
Eru leiðindin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfirþyngd og kvíða fyrir gleði og styrk
Kynningstudio-birtingur

Eru leið­indin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfir­þyngd og kvíða fyrir gleði og styrk

Ertu að glíma við syk­ur­fíkn og hvíld­ar­þörf? Ertu slappur og í yfir­þyngd? Borð­að­irðu of mikið um jólin og fékkst sam­svisku­bit? Viltu breyta lífi þínu til hins betra og öðl­ast betri lífs­gæði og hæfni til útvistar? Ef þér líður þannig skaltu skoða dag­skrá Fyrsta skrefs­ins sem hefst um miðjan jan­úar. Verk­efnið er byggt upp á viku­legum göngum á létt og þægi­leg...
Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleðina
Kynningstudio-birtingur

Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleð­ina

Ertu með lélegt úthald og glímir jafn­vel dep­urð? Langar þig til að passa aftur í gömlu fötin þín? Leiðist þér í lík­ams­rækt­ar­stöðvum? Þá er svarið hér að neðan. Margir hafa kom­ist að raun um að göngu­ferðir um fjöll og flat­lendi á Íslandi eru ein­hver besta heilsutrækt sem kostur er á. Ferða­fé­lag Íslands heldur úti fjöl­mörgum göngu­hópum af ýmusm áreynslu­stigum sem...
Návígi við refi og drauga í Drangaskörðum
Kynningstudio-birtingur

Návígi við refi og drauga í Dranga­skörðum

Ef þig langar í magn­aða upp­lifun þá kem­urðu með Ferða­fé­lagi Íslands í göngu­ferð fyrir Dranga­skörð og að Dröngum þar sem Eiríkur Rauði á rætur sínar. Ferðin hefst 16. júní á Val­geirs­stöðum í Árnes­hreppi þar sem gist verður í nýupp­gerðum skála Ferða­fé­lags Íslands. Daginn eftir verður siglt með hóp­inn í Dranga­vík þaðan sem gengið verður að Dröngum en far­angrinum trússað. Tjaldað...
Kynningstudio-birtingur

Meiri lita­gleði að fær­ast í bað­her­bergistísk­una

Íris Jensen, eig­andi versl­un­ar­innar Inn­rétt­ingar og tæki, segir að und­an­farin ár hafi meiri lita­gleði færst yfir í bað­her­bergistísk­una. Hún segir skemmti­lega þróun eiga sér stað nú og spenn­andi að sjá hvaða stefnur og straumar eru í gangi núna. Bleikt, blátt, grænt og gult í bland við mött gyllt, svört og hvít blönd­un­ar­tæki eru dæmi um það sem er í tísku...
Kynningstudio-birtingur

Brakandi ferskt græn­meti á mat­ar­diskinn sama dag og það er upp­skorið

VAXA er leið­andi fyr­ir­tæki á sviði svo­kall­aðs lóð­rétts land­bún­aðar. Í fram­leiðsl­unni er lögð áhersla á umhverf­is­væna ræktun og brak­andi ferska og fal­lega afurð fyrir neyt­and­ann. Íris Ósk Val­þórs­dóttir, rekstr­ar­stjóri VAXA, segir græn­metið frá VAXA geta verið komið á diskinn hjá neyt­and­anum dag­inn sem það er upp­skorið. „Maturinn ger­ist ekki ferskari,“ segir hún. Spurð út í sög­una á bak við VAXA,...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Kynning

Kynning

Unaðsvara vikunnar: Tvöfaldur kanínutitrari með tveimur mótorum

Kynning

Brakandi ferskt grænmeti á matardiskinn sama dag og það er uppskorið

Kynning

Eru leiðindin og þyngdin að drepa þig – Skiptu út yfirþyngd og kvíða fyrir gleði og styrk

Kynning

Viltu passa í fötin þín fyrir jólin? Komdu á fjöllin og finndu gleðina

Kynning

Návígi við refi og drauga í Drangaskörðum

Kynning

Meiri litagleði að færast í baðherbergistískuna