„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Hrafn sagður gúgú: Smáborgarar og kjaftakerlingar fá ádrepu

Hrafn sagður gúgú: Smáborgarar og kjaftakerlingar fá ádrepu

„Nafnar mínir bera mér þær fréttir að ein­stöku alveg óvenju­lega vel inn­réttuð sál hafi djúpar áhyggjur af því að Hrafn Jök­uls­son sé orð­inn alveg gúgú,“ skrifar Hrafn Jök­uls­son, bar­áttu­maður og eld­hugi, sem nú vinnur að hreinsun á Kolgraf­ar­vík í Árnes­hreppi og öðrum fjörum  lands­ins.
Hrafn skrifar langa færslu á Facebook þar sem hann tuktar til smá­borg­ara og kjafta­kerl­ingar. Tilefnið er að störf hans í fjör­unum  hafa orðið til þess að ein­hverjir úr áður­nefndum hópum hafa gefið til kynna að hann sé ekki  ekki heill á sönsum.
Hrafn vísar til móður sinnar heit­innar, Jóhönnu Krist­jóns­dóttur, sem vann þrek­virki á sínum tíma í þágu barna, ein­stæðra for­eldra og ann­arra sem áttu undir högg að sækja.

„Tvö voru þau orð sem mamma bar fram af tak­marka­lausri fyr­ir­litn­ingu, og hló við: Kjafta­kerl­ingar & smá­borg­arar. Það var fólkið — karlar og konur — sem hám­aði í sig mann­orð ann­arra en lyfti aldrei fingri til að gera lífið betra eða fal­legra,“ skrifar Hrafn.
Hann hefur skuld­bundið sig til að vinna með ver­ald­ar­vinum næstu árin, launa­laust, að hreinsun strand­lengju Íslands og heitir því að láta ekk­ert stöðva sig í þeim efnum.

„Já, smá­borg­ara­fó­b­í­una hef ég frá mömmu, svo mikið er víst. Og ég er nokkuð glöggur á fölsku brosin, þó ég segi sjálfur frá.

„Svo, elsku vinir, þið getið rétt ímyndað ykkur hvort ég skemmti mér ekki kon­ung­lega yfir því sem krumm­arnir hvísla hér norður í Tré­kyllis­vík,“ skrifar Hrafna og skorar á smá­borg­ara og kjafta­tívur að finna  sig í fjöru.

„Endilega sýndu umhyggj­una í verki með því að hreinsa þína eigin fjöru. Svo skulum við tala saman,“ skrifar Hrafn.

Pistil hans í heild sinni má lesa hér að neðan.

Kæri smá­borg­ari: Komdu að finna mig í fjöru
Ja, nú er stand á frúnni á neðri hæð­inni, einsog mamma hefði sagt. Nafnar mínir bera mér þær fréttir að ein­stöku alveg óvenju­lega vel inn­réttuð sál hafi djúpar áhyggjur af því að Hrafn Jök­uls­son sé orð­inn alveg gúgú…

Ekki veit ég það, en þess­ari vinnu­skýrslu skilar Krummi Klakason verk­stjóri, fyrir hönd okkar Ver­ald­ar­vina — bak­við nöfnin eru eld­hugar úr öðrum löndum sem láta ekk­ert stoppa sig í frels­is­stríði strand­lengj­unnar.
Tvö voru þau orð sem mamma bar fram af tak­marka­lausri fyr­ir­litn­ingu, og hló við: Kjafta­kerl­ingar & smá­borg­arar. Það var fólkið — karlar og konur — sem hám­aði í sig mann­orð ann­arra en lyfti aldrei fingri til að gera lífið betra eða fal­legra.

Mamma var ein­stæð móðir með fjögur börn, vann rúm­lega fulla vinnu & lét sig ekki muna um það 28 ára að leiða hóp eld­huga(!) sem stofn­uðu Félag ein­stæðra for­eldra — hver vöku­stund var nýtt í þágu mál­stað­ar­ins, kappið og eljan, maður lif­andi! Já, og gleðin og heil­agur gáskinn! Þá var nú gaman á Drafnó.
Barn­ungur afgreiddi ég á flóa­mörk­uðum, gekk í hús og seldi merki, jóla­kort, happ­drætt­is­miða… Við mamma vorum félagar — einsog öll sem standa í stór­ræðum þurfti mamma að geta hugsað upp­hátt, metið stöð­una, skoðað leiðir, mögu­leika… Ójá, ótal her­ráðs­fundir með Jóhönnu Krist­jóns­dóttur frá blautu barns­beini voru einsog þjálf­un­ar­búðir fyrir það verk­efni sem ég hef nú tekið að mér.

Mamma var fræg á Íslandi. Fyrst af því hún hafði gifst Jökli Jak­obs­syni, gefið út met­sölu­bók tví­tug, og að lokum gef­ist upp á JJ — og dúkk­aði svo upp sem bar­áttu­kona fyrir rétt­indum ein­stæðra for­eldra — og barna. Já, barna, vel að merkja. Barna.

Af öllum afrekum mömmu met ég þessi mest, því þau komu fyrst og þau kost­uðu blóð og svita og tár. Ég var þar — ekki sem áhorf­andi heldur liðs­maður.

Já, mamma var safa­ríkt umræðu­efni á Íslandi smá­borg­ar­ans á átt­unda ára­tugnum. Mamma fyr­ir­leit svo sann­ar­lega ekki margt fólk — hún var opin og for­vitin og lífs­glöð — en hún fyr­ir­leit af öllu hjarta smá­borgar­ann. Falska fólkið. Smá­borg­ar­inn var þröng­sýnn og umræðuillur, lagði jafnan allt út á versta veg, hlakk­aði mjög yfir óförum ann­arra, trúði öllu illu & hafði ekk­ert kjarn­gott eða kær­leiks­ríkt fram að færa — en smælaði allan hring­inn ef hann varð á vegi okkar…
Já, smá­borg­ara­fó­b­í­una hef ég frá mömmu, svo mikið er víst. Og ég er nokkuð glöggur á fölsku brosin, þó ég segi sjálfur frá.

Svo, elsku vinir, þið getið rétt ímyndað ykkur hvort ég skemmti mér ekki kon­ung­lega yfir því sem krumm­arnir hvísla hér norður í Tré­kyllis­vík.

En nú svíf ek úr möskvum inter­nets­ins og í frelsi fjör­unnar — frelsið.
Og ég ætla að halda áfram verk­inu sem ég byrj­aði 13. maí: Frelsa Kolgraf­ar­vík.

Lið dags­ins í Kolgraf­ar­vík verður til­kynnt á morg­un­fundi — við verðum með pönnu­kökur og síróp. Við munum gaum­gæfa kortið, gæta að nesti og útbún­aði & halda svo í ævin­týra­ferð að frelsa fjörur Árnes­hrepps.

Við höldum áfram í næstu viku, í Árnes­hreppi og Bitrufirði, og við höldum áfram að gera draum að veru­leika á Brú, þar sem verður byggt upp algjör­lega sjálf­bært sam­fé­lag & mið­stöð sjálf­boða­starfs Ver­ald­ar­vina — draum­sýn krafta­verka­manns­ins Þórarins Ívars­sonar, stofn­anda Ver­ald­ar­vina…

Já, við höldum áfram í Kolgraf­ar­vík og Bitrufirði og við ætlum að hreinsa strand­lengj­una við Húnaflóa & síðan alla strand­lengju Íslands — sam­tímis því að byggja upp net inn­lendra sjálf­boða­liða.

Við ætlum að frelsa strand­lengj­una og við erum löngu byrjuð. Í vinnu­flokki mínum — og meðal Ver­ald­ar­vina allra — er meiri dugn­aður, and­ríki og skemmti­leg­heit en í nokk­urri annarri hreyf­ingu sem ég hef kynnst.

Já, ef þú telur þig vin minn & hefur áhyggjur af vel­ferð minni — endi­lega sýndu umhyggj­una í verki með því að hreinsa þína eigin fjöru. Svo skulum við tala saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins