„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Rúnar með lausnina í borginni: „Burt með fantasíuna!“

Rúnar með lausnina í borginni: „Burt með fantasíuna!“

Rúnar Már Bragason verk­stjóri segir fyr­ir­hug­aða borg­ar­línu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu vera sam­gönguslys. Hann segir það ljóst að hún sé ekki til þess fallin að leysa sam­göngur í borg­inni.

Þetta segir Rúnar í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. Hann kallar borg­ar­lín­una ein­fald­lega fantasíu sem eigi komi til með að skapa fleiri vanda­mál frekar en leysa þau. „Þannig ætla kjörnir full­trúar að leysa mál á þann hátt sem íbúar svæð­is­ins hafa ekki kallað eftir. Engin krafa hefur verið frá íbúum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins um borg­ar­línu enda sést vel þegar skipu­lagið er skoðað að allt miðar að stjórn­sýsl­unni sem er vestan megin á höf­uð­borga­svæð­inu. Það er eins og íbúar austan megin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu séu allir á leið­inni í Vesturbæ Reykja­víkur,“ segir Rúnar.

Rúnar reyndir sjálfur að nýta sér þjón­ustu Strætó en gafst upp á því og keypti sér bíl. Hann veltir því fyrir sér hvort þeir borg­ar­búar sem nýta sér almenn­ins­sam­göngur hafi nokkurn tím­ann verið spurðir að þvi hvert þeir eru að fara. „Þessi lyk­il­spurn­ing hefur aldrei verið í umræð­unni heldur fara kosnir full­trúar í tvær heims­álfur og þrjár borgir til að skoða stað­hætti. Nei, frekar skal bruðlað með almannafé,“ segir Rúnar.

Rúnar er sann­færður um að það sé afar ólík­legt að borg­ar­línan skili þeim árangri sem von­ast er til. Hluti vand­ans er að kerfið sé teiknað með það fyrir augum að allir séu á leið í útjaðar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins, Vesturbæ Reykja­víkur. „Ein­hverra hluta vegna þrjóskast fólk enn við að kalla þetta svæði miðbæ. Lausnin felst í að færa áhersl­una frá Vesturbæ Reykja­víkur og setja sam­göngu­mið­stöð í Mjódd. Í stað íbúða­byggðar að breyta skipu­lagi í sam­göngu­mið­stöð. Þaðan er auð­veld­ast að deila út til jaðr­anna vegna góðra sam­gangna og kostar lítið að breyta. Með því að setja kjarn­ann nálægt miðju höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins er auð­veld­ara að setja sveigj­an­leika í kerfið. Sveigj­an­leika sem borg­ar­lína býður ekki upp á,“ segir Rúnar og bætir við:

„Borg­ar­lína er fantasía sem svarar ekki kalli not­enda um sveigj­an­leika í ferðum, hvar sem er um höf­uð­borg­ar­svæðið. Svarið er að hugsa út frá skil­virkni sem næst með breyttum áherslum strætó, mið­lægri sam­göngu­mið­stöð, kjarna­stöðvum, tíð­ari ferðum og betri teng­ingum milli hverfa. Burt með fantasí­una!“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins