„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Regína Ósk um útlitsdýrkunina: „Ég er orðin of gömul fyrir eitthvert megrunarrugl“

Regína Ósk um útlitsdýrkunina: „Ég er orðin of gömul fyrir eitthvert megrunarrugl“
Regína Ósk Ósk­ars­dóttir Mynd / Hallur Karlsson

Söng­konan Regína Ósk Ósk­ars­dóttir hefur fyrir löngu skapað sér sess sem ein besta söng­kona þjóð­ar­innar. Hún starfar sem söng­kenn­ari og skóla­stjóri í Söng­skóla Maríu Bjarkar og sér auk þess um sunnu­daga­skól­ann og for­eldramorgna í Linda­kirkju í Kópavogi ásamt því að syngja við hin ýmsu til­efni. Regína veikt­ist af COVID-19 í vetur og var í ein­angrun í um það bil mánuð sem hún segir hafa reynt mikið á fjöl­skyldu­lífið. Hún og eig­in­maður hennar, Sig­ur­sveinn Þór Árnason, Svenni, starfa bæði við tón­list og COVID-far­ald­ur­inn hefur því haft gríð­ar­mikil áhrif á starf þeirra hjóna. Regína missti föður sinn fyrir þremur árum og segir það meðal ann­ars hafa verið kveikj­una að lífs­stíls­breyt­ingu hjá sér. Í ein­lægu for­síðu­við­tali ræðir hún líka höfn­un­ina sem hún upp­lifði við það að detta úr keppni í raun­veru­leika­þætt­inum Allir geta dansað og útlits­dýrk­un­ina í brans­anum.

Regína hafði sam­band við Yesmine Olsen einka­þjálf­ara og byrj­aði hjá henni í hópa­þjálfun. „Mér finnst æðis­legt að hreyfa mig og ég fæ mikið út úr hreyf­ing­unni. Ég tók líka matar­æðið í gegn og fór að fasta sextán tíma á dag, sem ég geri enn í dag. Ég er orðin of gömul fyrir eitt­hvert megr­un­ar­rugl,“ segir hún glettin.

„Allt þetta bull um að kom­ast í kjól­inn fyrir jólin eða ætla að missa þetta mörg kíló fyrir stóra veislu eða eins og margir þekkja í mínum bransa að maður ætlar að missa nokkur kíló fyrir ein­hverja tón­leika sem eru fram undan. Yesmine sagði mér að hætta að hugsa um að gera þetta fyrir eitt­hvert ákveðið til­efni og hugsa frekar að ég væri ham­ingju­söm í dag og að gera þetta fyrir sjálfa mig og engan annan. Það finnst mér mjög gott ráð. Ég hef líka þurft að ein­beita mér aðeins að því að róa hug­ann og setti mér það mark­mið að stunda hug­leiðslu á hverjum degi. Það hefur samt alveg verið svo­lítið krefj­andi því ég er svo ör og á erfitt með að slaka á,“ segir Regína og hlær létt.

Vikan er komin á helstu sölu­staði

Regína Ósk er í for­síðu­við­tali í nýjasta tölu­blaði Vikunnar sem kemur í versl­anir á morgun, fimmtu­dag.

Í blað­inu er einnig við­tal við Jos­ephine Bornebusch, sænsku stjörn­una, sem skrifar hand­rit að, leik­stýrir og leikur í gam­andramanu Älskar mig, eða Elskaðu mig og sýndir eru á streym­isveit­unni Viaplay. Þar leikur hún meðal ann­ars á móti hinum sænsk-íslenska Sverri Guðn­a­syni.

Karólína Lea Vil­hjálms­dóttir hag­fræði­nemi við Háskóla Íslands og leik­maður meist­ara­flokks kvenna í fót­bolta í Breiða­blik er undir smá­sjánni. Hún segir að tit­il­inn á ævi­sögu sinni yrði: Stöngin inn.

Bryndís Jóna Jóns­dóttir, ráð­gjafi og núvit­und­ar­kenn­ari, segir okkur frá því hvernig hægt sé að finna frið og ró, gæta að heils­unni og geð­rækt í nútíma­lífi, sem ein­kenn­ist af streitu og margir eiga erfitt með að takast á við hana og finna frið í heimi sem virð­ist ham­stola. Hagnýt núvit­und getur hjálpað okkur að beisla hug­ann og læra að njóta lífs­ins betur.

Í Vikunni má einnig finna umfjöllun um tísku, heim­ili og hönnun og heilsu, auk þess sem kross­gátan, orða­leit og stjörnu­spá Vikunnar eru á sínum stað. Í Lífs­reynslu­sögu Vikunnar segir kona frá áfalli á ung­lings­aldri.

Tryggðu þér ein­tak í næstu verslun eða í vef­verslun okkar.

Tryggðu þér áskrift að Vikunni í vef­verslun >

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Fólk

Viðtal
Fólk

Jón segir frá umsókn Íslands í ESB: „Hrein og gróf blekking“

Viðtal
Fólk

Teiknarinn Hlíf Una – Kaldhæðni vék fyrir væmni

Viðtal
Fólk

Böðvari leiddist sem skipstjóra: „Mjög oft einmanalegt“

Viðtal
Fólk

Böðvar fékk ekkert að borða um jólin: „Hreytti einhverjum leiðindum í mig“

Viðtal
Fólk

Elísa sigraðist á átröskun og lét drauminn rætast: „Með kitl í maganum yfir öllum möguleikunum“

Viðtal
Fólk

Kertin standa á grænum greinum, gul og rauð og blá – Jólaskreytingar Mögdu