„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

iPhone 12 kominn í verslanir – Vodafone býður best

iPhone 12 kominn í verslanir – Vodafone býður best

iPhone 12 er kom­inn í versl­anir. Sumir þurfa alltaf að fá það nýjasta sam­dæg­urs og oft fara versl­anir sem selja Apple vörur á hlið­ina þegar nýjar vörur koma á markað. Það verður fróð­legt að sjá hvort það sama ger­ist í dag eða hvort kór­ónu­veiran hafi áhrif á söl­una. Færri fari í búðir og kannski hafa líka færri þörf á að spand­era í svona lúxus. Hver þarf síma ef hann er hvort sem er alltaf heima? Fyrir utan það er fólk alltaf að verða með­vit­að­ara um mik­il­vægi þess að nýta hlut­ina – umhverf­is­ins vegna. Hvernig sem öllu líður þá er alltaf áhuga­vert að fylgj­ast með hvernig tækn­inni fleytir fram.

Neyt­enda­vakt Mannlífs fór í saumana á mál­inu og las dóma um nýja sím­ann og bar saman verð og kaupauka hjá 5 versl­unum sem selja iPhone 12.

iPhone 12 þykir sam­eina hönnun iPhone X og hins goð­sagna­kennda iPhone 4 sem gerir mikið fyrir útlit og fersk­leika tólf­unnar. iPhone 12 sím­arnir styðja 5G kerfið, eru með sterk­ari skjái og enn betri mynda­vélar en áður. Þetta er mesta upp­færsla á iPhone frá árinu 2017 þegar iPhone X kom á markað og í dómum er ekki annað hægt að sjá en að þessi týpa sé mesti hitt­ari Apple í ára­tug.

iPhone 12 er sagður ótrú­lega kraft­mik­ill og spar­neyt­inn með nýjum 5 nm A14 Bionic örgjörva. Háþróuðu mynda­vél­arnar bjóða upp á marga eig­in­leika þar á meðal Night Vision og mynd­bands­upp­töku með Dolby Vision HDR.

iPhone 12 er þunnur, með rún­uðum hornum og kemur í fimm litum. Til þess að veita snert­iskjánum betri end­ingu hefur Apple unnið náið með Corning og þróað bylt­ing­ar­kennda gler­tækni, Ceramic Shield er sér­stakt gler sem inni­heldur Nano-ker­amik-krist­alla. Fullyrt er að þetta tryggi fjórum sinnum betra fall­þol miðað við iPhone 11 ser­í­una. Vatns­vörnin er einnig tals­vert bætt og sím­inn er IP68 vott­aður fyrir allt að 6 metra dýpi í 30 mín­útur.

Það er seg­ull aftan á sím­anum sem þýðir að hægt er að smella þráð­lausu hleðslu­tæki, hulstri, korta­hulstri og fleiru sem styður MagSafe aftan á sím­ann. Apple hefur áður haft þennan eig­in­lega í boði en þótti ekki virka sem skildi. Það gerir hann hins vegar núna, segja þeir.

Apple ákvað að fækka fylgi­hlutum og því fylgja hvorki heyrn­ar­tól né hleðslukubbur, aðeins Lightn­ing snúra. Er þetta við­leitni þeirra til að draga úr óþarfa fram­leiðslu og minnka pakkn­ingar. Þá má þess geta að sím­inn er úr mikið til úr end­urunnum efnum og að fyr­ir­tækið hefur skilað umhverf­is­skýrslu með vör­unni sem verður að telj­ast ansi gott. Apple hefur löngum verið gagn­rýnt fyrir slóða­skap í þessum efnum.

Sem fyrr segir er iPhone 12 fáan­legur á Íslandi frá og með deg­inum í dag. Síminn kostar nán­ast alls­staðar það sama (hvað er málið með það?) – nema hjá Elko sem bætir 5 kr. við. 

64 GB 159.990 kr.

128 GB 169.990 kr.

256 GB 189.990 kr.

iPhone 12 pro

128 GB 199.990 kr.

256 GB 219.990 kr.

512 GB 259.990 kr.

en sumar versl­anir bjóða upp á kaupauka.

Epli: Enginn kaup­auki

Elko: Enginn kaup­auki og allar teg­undir sím­anna 5 kr. dýr­ari en hjá hinum versl­un­unum. Hafið í huga að Elko kaupir gömul raf­magns­tæki.

Síminn: Enginn kaup­auki

Vodafone:
10 GB á mán­uði í fimm mán­uði fylgja og 30 daga áskrift að Stöð 2 Maraþon fylgir.

Nova
Skemmtikort Nova fylgir með öllum far­símum fyrir þá sem eru hjá Nova. Skelltu þér í leikja­sal­inn, Virtual Rabbids, Lasertag og Virtu­al­maxx í Smárabíó. Alls­konar skemmti­legt á einu korti! Hjá Nova get­urðu líka sett gamla sím­ann þinn upp í. iPhone 11 64 GB er t.d. met­inn á 57.327 kr. þú getur látið meta sím­ann þinn hér.

Nið­ur­staða: Vodafone býður best.

Athugið að grein­ing neyt­enda­vakt­ar­innar mið­ast við þær upp­lýs­ingar sem versl­anir veita á heima­síðum sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Önnur Til hamingju vara innkölluð – Inniheldur ofnæmisvald
InnlentNeytendamál

Önnur Til ham­ingju vara inn­kölluð – Inni­heldur ofnæm­is­vald

Önnur vara frá Til ham­ingju hefur verið inn­kölluð en í þetta sinn er um að ræða Chili jarð­hnetur. Mannlíf sagði frá því á dög­unum að saxaðar döðlur frá Til ham­ingju hafi verið inn­kall­aðar þar sem þær voru taldar óhæfar til neyslu. Nú hefur Nathan & Olsen, að höfðu sam­ráði við Heil­brigð­is­eft­ir­lit Reykja­víkur, nú stöðvað sölu og inn­kallað frá neyt­endum Chili...
Huginn borgaði 20.000 fyrir bílastæði ISAVIA: „Þetta samfélag er orðið svo gegndarlaust gráðugt“
InnlentNeytendamál

Huginn borg­aði 20.000 fyrir bíla­stæði ISAVIA: „Þetta sam­fé­lag er orðið svo gegnd­ar­laust gráð­ugt“

„20.000 fyrir 3,5 sól­ar­hring á ISAVIA bíla­stæði í Rvk. Þvílíka okrið. Ég kom svo að sækja pabba þangað fyrir nokkrum dögum, beið þarna minna en 30 mín­útur og svo rukk­uðu þeir mig 1900 kr. þó ég færi aldrei úr bílnum og sá engin skilti þarna. (svo voru þessir sömu aðilar með vit­lausan komu­tíma inni á vef­síð­unni sinni, svo ég kom...
Greiðslubyrðin tvöfaldaðist um mánaðarmót: „Það má ekkert koma upp á“
FréttirNeytendamál

Greiðslu­byrðin tvö­fald­að­ist um mán­að­ar­mót: „Það má ekk­ert koma upp á“

Greiðslu­byrði af hús­næð­is­láni Gígju Skúla­dóttur tvö­fald­að­ist síð­ustu mán­að­ar­mót. Þegar búið er að greiða önnur mán­að­ar­leg gjöld stendur hún eftir með lítið á milli hand­anna til þess að verja í grunn nauð­synjar á borð mat. Hún segir að lítið megi út af bregða án þess að hún lendi í fjár­hags­vand­ræðum. Hún spyr hvernig venju­legu fólki tak­ist að lifa lífi sínu í núver­andi efna­hags­á­standi.
Lagt til að ósáttir flugfarþegar greiði Samgöngustofu 5.000 króna málskotsgjald
FréttirNeytendamál

Lagt til að ósáttir flug­far­þegar greiði Sam­göngu­stofu 5.000 króna mál­skots­gjald

Drög að nýrri reglu­gerð um rétt­indi flug­far­þega fóru nýverið í sam­ráðs­gátt. Samkvæmt drög­unum er lagt til að kvar­tendur greiði Sam­göngu­stöfu 5.000 króna gjald fyrir máls­með­ferð í ágrein­ings­málum sem skotið er til stofn­un­ar­innar. Þá kveður ný reglu­gerð á um að Sam­göngu­stofa muni fram­vegis ekki taka við erindum vegna skemmds eða glat­aðs far­ang­urs.
Fjársterkir einstaklingar og félög keyptu upp stóran hluta nýrra íbúða
FréttirNeytendamál

Fjár­sterkir ein­stak­lingar og félög keyptu upp stóran hluta nýrra íbúða

Samkvæmt tölum frá Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun fjölg­aði íbúðum í eigu lög­að­ila og ein­stak­linga sem eiga fleiri en eina íbúð um 2.300 á síð­asta ári. Á sama tíma hefur fjölgun íbúða í eigu ein­stak­linga sem aðeins eiga eina íbúð dreg­ist mikið saman und­an­farin þrjú ár. Líta þarf aftur til árs­ins 2010 til þess að sjá sam­bæri­lega þróun.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins