„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Margrét segist hafa rétt svo sloppið úr gildru Gísla Marteins: „Þetta snerist í höndunum á þeim“

Margrét segist hafa rétt svo sloppið úr gildru Gísla Marteins: „Þetta snerist í höndunum á þeim“

Margrét Frið­riks­dóttir seg­ist hafa naum­lega sloppið við opin­bera aftöku í beinni útsend­ingu í gær. Hún telur Gísla Martein hafa ætlað að narra hana í þátt sinn og svo taka hana fyrir. Þetta fann hún á sér og afþakk­aði því boð í þátt­inn.

Margrét er fyrir löngu orðin þekkt fyrir rót­tækar hægri­s­inn­aðar skoð­anir. Hún tjáði vinum sínum á Facebook síð­ast­lið­inn þriðju­dag frá boð­inu og virt­ist frekar lík­leg til að þiggja boðið. „Jæja það eru tíma­mót, mér er boðið að koma í þátt Gísla Marteins um helg­ina varð­andi kosn­ing­arnar í USA. Á ég að slá til? Er á báðum áttum.“

Í gær­kvöldi útskýrði hún svo hvers vegna ekk­ert varð úr því. Hún segir tvær grímur hafa runnið  á sig þegar hún komst að því að Berglind Festival Pét­urs­dóttir vildi taka við­talið við hana. „Afþakk­aði boðið í þátt­inn til Gísla en Berglind Festival bað um við­talið og ég tók ekki áhætt­una á opin­berri aftöku í beinni.“

Tugir athuga­semda hafa verið skrif­aðar við færsl­una og flestir lýsa yfir stuðn­ingi við hana. Sumir segj­ast hafa viljað sjá hana í þætt­inum og einum þeirra svarar Margrét svo: „Ég bauð þeim að mæta í settið til Gísla í beinni og ræða Trump og for­seta­kosn­ing­arnar. En engin áhugi á því, þannig aug­ljóst hvað vakti fyrir þeim, hún vildi hitta mig á mið­viku­dag og svo átti þetta að koma sem innslag í þátt­inn, sé fyrir mér Gísla og við­hlæ­gendur hans hlægja sig mátt­lausa í sínum rétt­trún­að­ar­gír, þannig nei held ekki.“

Hún seg­ist þó ekki hafa ótt­ast Berg­lindi. „Hafði engar áhyggjur að því hún yrði svíns­leg. Hún er ágæt og finnst hún stundum fyndin, það var bara fram­haldið sem ég hafði áhyggjur af, og já maður á alltaf að fara eftir til­finn­ing­unni“.

Gunn­laugur Ingv­ars­son, for­maður Frels­is­flokks­ins, segir svo í athuga­semd að því miður yrði henni aldrei hleypt í beina útsend­ingu. „Magga mín, þú hefðir aldrei fengið að vera í sett­inu. Þú hefðir aðeins verið mis­notuð og klippt og svo gert grín að þér. Hann not­aði þrjár eft­ir­hermur til þess að hæða og spotta for­seta Banda­ríkj­anna og svo voru fjórir í sett­inu hjá honum sem klöpp­uðu fyrir subbu­skapnum,“ segir Gunn­laugur.

Margrét svarar og segir Gísla hafa lagt Banda­ríkja­for­seta í ein­elti í gær. „RÚV varð sér til skammar með þessum lág­kúru­lega þætti, þetta sner­ist í hönd­unum á þeim, sner­ist bara um að gera lítið út hári og útliti Donald Trump, en síð­ast þegar ég vissi þá kall­ast það ein­elti að ráð­ast á og gera lítið úr útliti fólks, og ein­elti er ofbeldi eins og flestir vita.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins