„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Skotveiðimenn hundsa Almannavarnir: Farnir á fjöll með eigin sóttvarnareglur

Skotveiðimenn hundsa Almannavarnir: Farnir á fjöll með eigin sóttvarnareglur
Veiði­menn halda til fjalla í dag, þrátt fyrir að Almanna­varnir banni það.

Félag skot­veiði­manna, Skotvís, fellst ekki á ferða­bann sem Almanna­varnir hafa sett á skot­veiði­menn um þessa helgi vegna útbreiðslu Covid-19. Þess í stað halda veiði­menn til fjalla og hefur félagið sett sínar eigin reglur um það hvernig veiði­menn eigi hegða sér á ferða­lagi sínu og í veiði­ferð um helg­ina.
„SKOTVÍS hefur að eigin frum­kvæði sett í gang með nokkrum fyr­ir­vara her­ferð þar sem veiði­menn eru hvattir til að huga að sótt­vörnum,“ segir í til­kynn­ingu félags­ins.
Í yfir­lýs­ingu félags­ins á Facebook kemur fram að veiði­menn eru reiðir stjórn­völdum fyrir að hafa ekki haft sam­ráð við félagið áður en til­mælin voru sett fram. Segja félags­menn ósann­gjarnt að fólk megi stunda alm­menna úti­vist, fara í sum­ar­bú­staði en skyttum sé bannað að fara til fjalla. Innlegg félags­ins í málin er að banna ekki sínum mönnum að fara til fjalla á skot­veiðar en leggja til eigin sótt­varna­reglur. Reikna má með að fjöldi veiði­manna sé á far­alds­fæti þessa helg­ina, þrátt fyrir fyr­ir­mæli Almanna­varna.
Ein af ástæðum ferða­banns­ins er að algengt er að kalla þurfi út björg­un­ar­sveitir vegna veiði­manna sem komst hafa í villu eða neyð.

Til­kynn­ing Skotvíss var birt á Facebook-síðu félags­ins. Hér er hún í heild sinni:

„SKOTVÍS harmar að yfir­völd skuli ekki hafa verið í nán­ari sam­vinnu við félagið fyrir kom­andi rjúpna­veiði­tíma­bil.
Skot­veiði­menn ósk­uðu eftir fundi með Umhverf­is­stofnun um kom­andi veiði­tíma­bil en fékk ekki og nú hafa Almanna­varnir gefið út yfir­lýs­ingu 5 klst áður en rjúpna­veiðin byrjar án sam­tals við veiði­menn.

Með sam­tali hefði t.d. verið hægt að fresta fyrstu helg­inni og bæta þá við ann­ari í byrjun des­em­ber og/eða opna SV-svæðið fyrir skot­veiðum.

Ein­faldar aðgerðir sem mót­vægi en fengu ekki umræðu.

Samt er tekið fram að ALLIR eigi að halda sig heima. Það sýn­ist félag­inu vera stefnu­breyt­ing frá því í gær. Ein­fald­ara hefði verið að segja fólki þá að ferð­ast inn­an­húss þessa helgi og til­kynna það fyrr. það skýtur skökku við að þessum til­mælum er ein­göngu beint til veiði­manna en ekki ann­arar úti­vistar þar sem fólk er í meiri nánd t.d. ferða­laga í sum­ar­bú­staði.

SKOTVÍS hefur að eigin frum­kvæði sett í gang með nokkrum fyr­ir­vara her­ferð þar sem veiði­menn eru hvattir til að huga að sótt­vörnum. Þar sem margir eru lagðir af stað eða geta ekki hætt við ferðir þá viljum við ítreka til­mæli okkar:

Forðist sam­neyti við aðra

Notið ekki þjón­ustu eða kaupið þjón­ustu

Ef tveir eða fleiri eru í bíl, hugið að sótt­vörnum, sprittið og verið með grímur.

Veiði­ferð skal vera ferð frá A til B, veiðar á veiðislóð, ferða frá B til A.

Farið var­lega, akið eftir aðstæðum og ekki leggja í tví­sýnt veður.

Við erum ÖLL í þessu saman, en það krefst sam­vinnu, sam­tals og sveigj­an­leika.

Við skorum á veiði­menn að hlýða þeim reglum sem eru í gildi hverju sinni og skorum á stjórn­völd að taka upp beint sam­tal við hags­muna­sam­tök veiði­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins