„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Andlitsgrímur fyrir börn rjúka út – víða uppseldar

Andlitsgrímur fyrir börn rjúka út – víða uppseldar

Í takt við grímu­skyldu barna hefur sala á fjöl­nota and­lits­grímum í barna­stærðum rokið upp. Það má glögg­lega sjá á heima­síðum þeirra sem selja þennan ný til­komna stað­al­búnað. Þær eru ýmist upp­seldar, lítið úrval eða versl­anir gefa það út að afhend­ing geti dreg­ist. Neyt­enda­vakt man.is tók saman nokkrar versl­anir sem selja and­lits­grímur fyrir börn og skoð­aði verðin.

Versl­unin pollyanna.is býður 13 týpur af grímum fyrir börnin, en til marks um hversu hratt grímur rjúka út þessa dag­ana eru 10 þeirra upp­seldar. Grím­urnar eru tveggja­laga og úr bómull­ar­efni – þær eru ekki með filter.

Verð: 2.100 kr.

Í Vistveru má finna þriggja­laga grímur sem henta börnum undir 12 ára en alls ekki unga­börnum, segir á heima­síðu Vistveru. Hver gríma er með vasa sem setja má filter inn í (ath. filt­er­inn fylgir ekki með). Ytri hluti grímunnar er úr bóm­ull og innri hlut­inn, sá sem snýr að and­lit­inu úr líf­rænum bóm­ull.

Verð: 1.590 kr.

Hjá fotomax.is er hægt að fá þriggja­laga CE og AFNOR vott­aðar grímur sem hægt er að hanna sjálfur með því að senda mynd eða texta á [email protected].

Til­boðs­verð: 2.000 kr. 

Litla músin býður upp á þriggja­laga and­lits­grímur úr 100% bómul. Tekið er fram á heima­síð­unni að vegna mik­illar eft­ir­spurnar getur tekið allt að viku að ganga frá pönt­unum á and­lits­grímum.

Verð frá 1.700 kr.

Gyllti kött­ur­inn er með þriggja­laga grímur fyrir alla fjöl­skyld­una. Þar er líka mikið álag vegna mik­illar sölu.

Verð: 1.800 kr.

Mik­il­vægt að hafa í huga:

  • Passa þarf upp á að nota grím­urnar ekki marga tíma á dag, gott er að eiga grímur til skipt­anna.
  • Allar grímur skal þvo á hverjum degi og láta liggja í vatni í um 10 mín í sápu­vatni og hreinsa svo vel úr hreinu vatni og láta þorna.
  • Ekki er hægt að skila grímum vegna sótt­varna.
  • Æskilegt er að þvo and­lits­grímu áður en hún er notuð í fyrsta sinn.
  • Athugið að and­lits­gríman kemur ekki í veg fyrir COVID19 smit. Ef að þú ert með ein­kenni kvefs eða inflú­ensu áttu ekki að nota grímu. Mik­il­vægt er að fylgja öllum til­mælum yfir­valda og þvo sér vel um hend­urnar með sápu og spritta vel.
  • Áður en að gríman er sett upp er mik­il­vægt að þvo hendur vel og spritta.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins