„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Bjarni prestur í stríð við hjólareiðafólk: „Ekki spurning hvort það verði slys heldur hvenær“

Bjarni prestur í stríð við hjólareiðafólk: „Ekki spurning hvort það verði slys heldur hvenær“

Bjarni Þór Bjarna­son sókn­ar­prestur vill hjólareiða­menn burt úr Heiðmörk. Hann segir stíg­ana í þess­ari nátt­úruperlu bara gerða fyrir gang­andi veg­far­endur og skokk­ara.

Þetta kemur fram í máli Bjarna í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu. Hann vísar til þess að hjól eru skráð öku­tæki sem ekk­ert erindi eigi á göngu­stíg­ana. „Heiðmörk er nátt­úru­garður og þjóð­ar­ger­semi. Svæðið er orðið að úti­vistar­para­dís. Það veitir mér gleði og ánægju að ganga eftir þessum skóg­ar­stígum og njóta feg­urðar Heið­markar og ynd­is­leika þessa svæðis. En það er einn galli á gjöf Njarðar. Ég þarf alltaf að hafa var­ann á mér vegna hjól­reiða­manna,“ segir Bjarni sem telur aug­ljóst hættu af því að hjólareiða­fólk troði sér á göngu­stíga nátt­úruperlunnar:

„Stundum koma þeir aftan að manni og hafa í fæstum til­fellum bjöllu á hjólum sínum til að gera mér við­vart. Síðan koma þeir margir á móti manni á fleygi­ferð. Oft á tíðum eru hjóla­menn að ná upp púlsi með því að hjóla af öllum lífs- og sál­ar­kröftum eftir þessum mjóu skóg­ar­stígum. Aldrei hefur nokkur ein­asti hjól­reiða­maður stöðvað hjólið sitt til þess að gefa mér færi á að ganga fram hjá honum. Ég þarf alltaf að fara út af skóg­ar­stígnum og út í móa og hleypa við­kom­andi hjóla­manni fram hjá sem er yfir­leitt á tölu­verðum hraða.“

„Gangandi og hlaup­andi fólk á að geta notið þess­ara skóg­ar­stíga án þess að vera sífellt hrætt um að lenda í slysi vegna hjól­reiða­manna.“

Bjarni prestur vísar í grein sinni til umferð­ar­laga þar sem segi að hjól­reiða­maður á göngu­stíg eigi að víkja fyrir gang­andi veg­far­endum og gæta ýtr­ustu var­kárni. Hann telur mik­inn mis­brest á þessu hjá hjól­reiða­fólki í Heiðmörk. „Um helgar er mikil umferð á skóg­ar­stíg­unum. Það er ekki bara gang­andi fólk heldur einnig hlaup­andi auk margra hjóla. Sumir skokk­ar­arnir eru með tón­list í eyr­unum og heyra því ekki þegar hjól koma aftan að þeim. Í skóg­inum eru margar blind­beygjur. Það er ekki spurn­ing um hvort það verði slys einn dag­inn heldur hvenær,“ segir Bjarni ákveð­inn og bætir við:

„Að mínu mati gengur það ekki að leyfa hjól­reiðar á þessum skóg­ar­stígum sem oft og einatt eru mjög mjóir, á sumum stöðum ein­stigi. Þeir voru upp­haf­lega lagðir fyrir gang­andi og hlaup­andi fólk. Ég get vel skilið að hjól­reiða­menn sæk­ist eftir að hjóla í þessu fagra umhverfi. Stíg­arnir bera ekki þessar hjól­reiðar. Víða eru þeir illa farnir eftir hjólin og verða eitt for­ar­svað þegar rignir. Gangandi og hlaup­andi fólk á að geta notið þess­ara skóg­ar­stíga án þess að vera sífellt hrætt um að lenda í slysi vegna hjól­reiða­manna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins