„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Dóttir Gísla Rúnars um sjálfsvíg hans: Skildi ekki eftir sig kveðjubréf

Dóttir Gísla Rúnars um sjálfsvíg hans: Skildi ekki eftir sig kveðjubréf
Gísli Rúnar Jónsson

„Hann hafði verið edrú í fjöl­mörg ár og mátti því alls ekki taka hug­breyt­andi lyf. Þetta auð­vitað trig­ger­aði eitt­hvað og hann fór að taka of mikið af þeim en í vor ákvað hann
að fara í með­ferð og taka líf sitt í gegn,“ segir Eva Dögg Sig­ur­geirs­dóttir, fóst­ur­dóttir Gísla Rúnars Jóns­sonar, sem tók líf sitt í sumar í sam­tali við Frétta­blaðið. Hún rifjar upp aðdrag­anda þess að leik­ar­inn ást­sæli tók líf sitt í vor eftir að hafa glímt við langvar­andi þung­lyndi.

„Hann var á Vogi í 17 daga og ætl­aði svo beint í eft­ir­með­ferð á Vík en þá var búið að loka þar vegna COVID og fór hann því beint heim,“ segir Eva.
Gísli útskrif­að­ist af Vogi rétt fyrir páska og varði hátíð­inni hjá Evu og fjöl­skyldu. hún segir að hann hafi haft þörf  til að ræða veik­indi sín og líðan.

„Hann sagði mér frá fundum sínum við geð­lækni sinn og var ósáttur við það
hvernig lyfin voru að fara í hann. Þegar hann svo deyr skilur hann ekki eftir kveðju­bréf eins og svo margir gera. Allt var upp­vaskað og fal­legt og fínt en lyf­seðl­arnir lágu útbreiddir á borð­inu. Það vakti athygli mína og við fórum strax að gúgla lyfin og komumst að því að ein auka­verkan­anna fyrir mann með hans veik­indi, geð­hvarfa­sýki, er ásæknar sjálfs­vígs­hugs­anir,“ segir Eva sem þó seg­ist ekki sakast við neinn vegna sjálfs­vígs föður síns.

Gísli Rúnar lést mánu­dag­inn 28. júlí. Fyrr um dag­inn hafði hann hringt í Evu sem var upp­tekin og svar­aði ekki sím­anum.

„Þegar ég svo hringdi til baka um kvöldið var hann dáinn án þess þó að ég vissi það strax. Ég auð­vitað hugs­aði: Hvað ef ég hefði svarað?“
Gísli mætti ekki í upp­töku til Eddu, fyrr­veramdi eig­in­konu sinnar, og Björg­vins sonar þeirra á loka­þætti Ísbíltúr með mömmu, á þriðju­deg­inum.

„Hann hafði alltaf sagt: „Ef ég mæti ekki á svið vitið þið að ég er dauður. Leikari mætir alltaf á svið ef hann er lif­andi. Mamma og Björgvin biðu eftir honum uppi á
heiði en svo mætti hann ekki, hann hafði gef­ist upp á líf­inu.“

Aðstand­endur Gísla ræddu við geð­lækni hans eftir and­látið til að leita skýr­inga.

„Við ræddum við geð­lækni hans sem sagð­ist nán­ast ein­ungis hafa verið í sam­skiptum við pabba í gegnum tölvu­póst eftir að skipt var um lyf. Ég er ekki að kenna neinum um eitt
né neitt en það er aug­ljóst að þarna hélt kerfið ekki utan um hann eins og ætti að vera gert. Ég veit að óvirki alkinn á sjálfur að hafa vit á að segja nei við róandi lyfjum en þegar van­líð­anin er svona mikil er ekki víst að það ger­ist,“ segir Eva.

Viðtalið í heild sinni er í Frétta­blað­inu í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins