„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðmundur segir krónuna hafa níðst á sér allt lífið: „Var þetta leti í okkur?“

Guðmundur segir krónuna hafa níðst á sér allt lífið: „Var þetta leti í okkur?“

Guð­mundur Ósk­ars­son mat­reiðslu­maður seg­ist him­in­lif­andi yfir því að hafa flutt frá Íslandi og sest að í Danmörku. Ástæðan er íslenska krónan.

Guð­mundur útskýrir af hverju hann varð svona glaður við að flytja inni á spjall­svæði Sós­í­alista­flokks­ins á Facebook. Þar er hávær umræða um málið. „Ég keypti íbúð 1978 sem var þriggja her­bergja og borg­aði hana út, ekk­ert lán. Við seldum hana 1980 og áttum fyrir ein­bíl­is­húsi fokeldu. Við tókum verð­tryggt hús­næð­is­lán til að við gætum flutt inn og gerðum það. Verð­bólgan á þessum árum var um 100% og hæst 136% 1986. Einmitt þetta ár fædd­ist yngsta barnið okkar af fjórum. 1989 misstum við húsið á upp­boði og við vorum heim­il­is­laus og fórum á leigu­mark­að­inn í Reykja­vík. Misstum við húsið vegna leti? Nei, við unnum myrkrana á milli til að halda hús­inu en allt kom fyrir ekki,“ segir Guð­mundur ákveð­inn. 

„Það tók okkur 8 ár að hreinsa nafn okkar af van­skila­skrá.“

Guð­mundur seg­ist hafa þurft að sinna auka­vinnu til að drýja tekj­urnar á þessum tíma. „Þegar ég kom af sjónum, en ég var í dag­róðrum þá fór ég í beytu­skúr­inn og beytti nokkur bjóð til að drýja tekj­unar, en húsið fór samt. Var þetta leti í okkur eða óreyða í fjár­málum, nei, alls ekki, alveg sama hvað ég reyni að ranglæta gerðir mínar. Það var ekki óreiða af neinu tagi,“ segir Guð­mundur og bætir við:

„Ekki nóg með það heldur þurfti bank­inn að rukka mig um 2 millj­ónir þrátt fyrir að þeir tóku húsið af mér. Það tók okkur 8 ár að hreinsa nafn okkar af van­skila­skrá, þrátt fyrir að í lögum stendur að fjár­mála­stofnun megi aldrei hagn­ast á óförum ann­ara. Hún hagn­að­ist gríða­lega á okkur. Þegar þú lest þetta getur þú láð mér það að mér er meinilla við Íslensku krón­una sem hefur níðst á mér allt mitt líf. Ég er svo glaður með að hafa flutt til Danmörku sem hefur frá­bæran gjald­mið­ill, tengdan við Evru.“

Kristín Þor­steins­dóttir man vel eftir erf­iðum verð­bólgu­tímum. „Ég fæ tauga­hroll þegar ég hugsa til þessa tíma. Mín upp­lifun er nákvæm­lega eins og þú lýsir þessu. Ég vann og vann og vann en skuld­aði alltaf meira og meira. Eins og að ausa vatni í leka tunnu,“ segir Kristín. 

Villi nokkur Ásgeirs­son segir gjald­mið­il­inn íslenska ónýtan og veit ástæð­anu fyrir því hvers vegna hún er enn í notkun hér á landi. „Ísland væri löngu búið að taka upp evr­una ef þessir aðilar sem græða á krón­unni væru ekki enda­laust að flækj­ast fyrir,“ segir Villi. 

Jóhanna Gunn­þórs­dóttir er svip­aðrar skoð­unar. „Ég skil ekki afhverju stjórn­völd vill nýð­ast á almenn­ingi með því að halda í þessa krónu. Eru þeir ein­göngu á Alþingi fyrir stór­út­gerð­ina?,“ spyr Jóhanna. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins