„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Guðbjörn telur Agnesi biskup hafa villst að heiman: „Mér varð undarlega innanbrjósts“

Guðbjörn telur Agnesi biskup hafa villst að heiman: „Mér varð undarlega innanbrjósts“

Guðbjörn Jónsson, fyrr­ver­andi ráð­gjaf­andi, er þeirrar skoð­unar að Agnes Sig­urð­ar­dóttir, biskup Íslands, og með­bisk­upar hennar hjá Þjóð­kirkj­unni séu villtir. Þeirra megin hugð­ar­efni séu pen­ingar í stað boð­skaps­ins um mann­kær­leika, virð­ingu og auð­mýkt.

Guðbjörn ritar skoðun sína í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu og segir til­efni skrifa sinna vegna grein bisk­upanna þriggja hér­lendis, Agnesar, Sól­veigar Láru Guð­munds­dóttur og Krist­jáns Björns­sonar. Hann leit­aði sjálfur svara hjá almætt­inu vegna skrifa bisk­upanna. „Þegar ég hafði lesið grein þeirra varð mér und­ar­lega inn­an­brjósts. Meg­in­efni grein­ar­innar snýst um pen­inga og það að vera ekki lengur opin­ber starfs­maður, heldur starf­maður þjóð­kirkj­unnar sem ríkið á og fjár­magnar. Á að skilja þetta sem eitt­hvert OHF-fyr­ir­brigði? Eins og sannir fjár­mála­menn gerið þið líka fyr­ir­vara um það að þeir sem eru óánægðir með fjár­mála­við­horf ykkar séu nei­kvæðir út í kirkj­una. Er þar um þögg­un­ar­til­raun að ræða, eða afsökun fyrir að svara ekki and­mælum?,“ segir Guðbjörn og bætir við:

„Þegar eitt­hvað sem ég les eða heyri angrar und­ir­vit­und mína sest ég ævin­lega niður og tengi mig við leið­bein­endur mína hjá Fræðslu­sviði alheims­vit­undar, sem hafa veitt mér ágæta leið­sögn frá unga aldri. Ég bað um hjálp við að skilja hvað í þessum skrifum æðstu for­ystu­sveitar kirkj­unnar fælist. Í fyrstu kom ekk­ert svar en síðan kom með sorg­ar­hljómi. – Þau hafa villst að heiman.“

Guðbjörn segir að skrif bisk­upanna sé blekk­ing­ar­leikur. Hann telur að með auknum afskiptum presta af fjár­hags­málum safn­aða sinna fær­ist þeir fjar hreinni boðun kær­leik­ans. „Fjár­málaum­sýsla boð­enda, til ann­arra þátta en að deila fjár­munum meðal hinna þurf­andi, getur ekki sam­ræmst stöðu boð­enda, mann­kær­leika, virð­ingar og auð­mýktar sem eiga að vera horn­steinar þjóð­kirkj­unnar. Fjár­hirðar í ritn­ing­unni eru dæmi­saga, fyrst og fremst tákn­mynd fyrir alla þá sem gæta verð­mæta og sjá um að við­halda þeim verð­mætum sem þeim var trúað fyrir og leit­ast við að þau vaxi eftir þörfum, en ekk­ert umfram það. Hin and­lega leið boð­end­anna þarf þó að vera skref­inu á undan hinni ver­ald­legu leið fjár­hirð­anna. Samband við þessa vit­und missa boð­endur ef hávaði hins ver­ald­lega umhverfis nær inn í friðland þeirra. Prest­ur­inn á, eðli starfs síns vegna, ein­ungis að sinna hinni and­legu nær­ingu safn­að­ar­ins sem sínum verka­hring,“ segir Guðbjörn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins