„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Verð á mat hækkar gríðarlega á sama tíma og velta verslana eykst

Verð á mat hækkar gríðarlega á sama tíma og velta verslana eykst

Vöru­karfan hækk­aði um 0,5%-2,6% í mat­vöru­versl­unum frá því í maí, sam­kvæmt verð­lagskönnun ASÍ og leggst ofan á miklar hækk­anir sem urðu á tíma­bil­inu maí 2019 til maí 2020. Í þess­ari nýj­ustu könnun voru aðeins skoð­aðar verð­breyt­ingar milli verð­mæl­inga og því ekki um beinan verð­sam­an­burð að ræða, það er að segja, hvar ódýr­ustu vöru­körf­una var að finna.

„Matvara er búin að hækka gríð­ar­lega á einu ári,“ segir Auður Alfa Ólafs­dóttir, verk­efna­stjóri Verð­lags­eft­ir­lits ASÍ. Auður segir verð hafa rokið upp eftir COVID.

Verð­breyt­ingar voru skoð­aðar í eft­ir­far­andi versl­unum: Bónus, Krónunni, Nettó, Hagkaup, Kjör­búð­inni, Iceland og Kram­búð­inni. Kemur í ljós að karfan hækk­aði mest í Nettó um 2,6%. Munar þar mestu um hækkun drykkj­ar­vara 5,6% og hækkun á mjólk­ur­vörum og ostum, 5,1%. Næst mest hækk­aði vöru­karfan í Bónus, 2,4% en þar hækk­uðu græn­meti og ávextir mest eða um 6,8% og þá hækk­uðu mjólk­ur­vörur og ostar um 4,5%. Minnst hækk­aði vöru­karfan í Hagkaup, 0,5% en þar lækk­aði verð á kjöt­vöru um 1,8% milli mæl­inga. Vöru­karfan end­ur­speglar almenn mat­ar­inn­kaup með­al­heim­ilis.

Af lág­vöru­verðs­versl­un­unum Bónus, Krónunni og Nettó hækk­aði verð minnst í Krónunni, um 1,5% sam­an­borið við 2,4% verð­hækkun á vöru­körf­unni í Bónus og 2,6% í Nettó. Ef litið er til ann­ara versl­ana sem telj­ast ekki til lág­vöru­verðs­versl­ana og eru ýmist með lengri opn­un­ar­tíma eða eru stað­settar á fleiri stöðum á land­inu má sjá að vöru­karfan í Iceland hækkar mest eða um 2,1% sam­an­borðið við 1,8% hækkun á vöru­körf­unni í Kjör­búð­inni og 1,7% í Kram­búð­inni.

Þá urðu mjög miklar verð­hækk­anir á græn­meti og ávöxtum í vor eftir að Covid-far­ald­ur­inn fór af stað og í síð­ustu verð­mæl­ingu sem náði yfir heilt ár mátti sjá að græn­meti hafði í mörgum til­fellum hækkað í kringum 20%.“

Ef síð­asta verð­mæl­ing verð­lags­eft­ir­lits­ins sem náði yfir tíma­bilið maí 2019- maí 2020 má sjá að vöru­karfan hækk­aði um 2,3%-15,6% í mat­vöru­versl­unum.

Velta matvöruverslana hefur aukist um 21%

Auður segir marga þætti hafa áhrif á verð­lag og þó að ein­hverju leiti megi skella skuld­inni á veik­ara gengi krón­unnar sé dæmið ekki svo ein­falt. Fleiri þættir spili inn í sem mik­il­vægt sé að halda til haga. „Velta mat­vöru­versl­ana hefur t.d. auk­ist gríð­ar­lega eða um 21% á einu ári og vænt­an­lega meira í ein­stökum versl­unum. Þessa miklu aukn­ingu má rekja til þess að fólk borðar í meira mæli heima og fer síður á veit­inga­staði og borðar í mötu­neytum á vinnu­stöðum.

Þá ættu fleiri þættir að vera til þess fallnir að vinna á móti verð­hækk­unum. Vextir hafa t.d. hald­ist lágir og verð á bens­íni hefur lækkað. Því mætti ætla að versl­anir hefðu svig­rúm til að hækka ekki verð,“ segir Auður og segir að lokum að ef meiri sam­keppni væri milli versl­ana væri hvati til að halda aftur af verð­hækk­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins