„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mogginn tekur slaginn með Trump: Davíð skammast yfir fávísum fréttamönnum

Mogginn tekur slaginn með Trump: Davíð skammast yfir fávísum fréttamönnum
Davíð Oddsson

„Étið hefur verið eftir í fjöl­miðlum sem hafa hat­ast við Trump frá fyrsta degi að „engar sann­anir“ séu um kosn­inga­svik. Það eru skrítnar stað­hæf­ingar. Ásakanir fjölda vitna liggja sann­ar­lega fyrir og eru studdar eiðs­vörnum yfir­lýs­ingum þeirra og geta varðað fang­elsi ef rangar reyn­ast. Birt hafa verið nöfn og fjöldi mynda af „kjós­endum“ sem kusu glað­beittir nú þótt þeir geisp­uðu gol­unni fyrir löngu,“ segir rit­stjóri Morg­un­blað­ins i leið­ara dags­ins. Davíð Oddsson rit­stjóri blaðs­ins og tekur þarna undir með Donald Trump, frá­far­andi for­seta Banda­ríkj­anna, um kosn­ing­ar­svik Demókrata í for­seta­kosn­ing­unum.

Davíð fer sömu leið og Trump og gerir lítið úr frétta­mönnum sem fjallað hafa um kosn­ing­arnar. Íslenskir frétta­menn fá á bauk­inn ekki síður en banda­rískir kollegar þeirra. Rík­is­út­varpið fær sér­stakar skammir.

„Margir undr­ast að Trump for­seti skuli ekki viðu­kenna mögl­un­ar­laust úrslitin í
for­seta­kosn­ing­unum. Jafnvel á Íslandi og jafn­vel utan hinnar veik­burða frétta­stofu
rík­is­ins er þetta apað eftir. Enginn þess­ara frétta­manna veit þó til að úrslit þess­ara
kosn­inga liggi fyrir. Láta má vera að fávísir frétta­menn hér gefi sér að kjör­stjórnir úr ein­stökum kjör­stöðum (sveit­ar­fé­lögum eða kjör­dæmum) gefi í lok taln­ingar fyr­ir­liggj­andi úrslit og svo ber­ist mönnum kjör­bréf í fram­hald­inu. Í Banda­ríkj­unum er veru­leiki almenn­ings sá að „stóru sjón­varps­stöðv­arnar“ lýsa því yfir hvor (for­seta­efna) hafi haft það
í ein­stökum ríkjum. Þetta „umboð“ taka þær sér,“ segir í leið­ar­anum.

Tíundað er í leið­ar­anum að svik hafi átt sér stað með því að fólk hafi komið frá Kanada til að kjósa og að náms­menn kjósi bæði í háskóla­bæj­unum og heima hjá sér. Og Morg­un­blaðið flettir ofan af Demókrötum í hálf­kveð­inni vísu.

„Var í þessu til­viki um skipu­leg kosn­inga­svik í stórum stíl að ræða af hálfu demókrata? Lög­fræð­inga­hópur kynnti mála­til­búnað kosn­inga­stjórnar for­set­ans um þetta á blaða­manna­fundi sem var mjög slá­andi. Þar kom t.d. fram að í sumum kjör­dæmum hafi kosn­inga­þátt­taka verið 350% meiri en ein­stak­ling­arnir sem voru á kjör­skrá. Slík gögn liggja fyrir og þarf að rann­saka. Kosn­inga­vélar (frá Venes­ú­ela) hafi skilað atkvæðum með stór­dul­ar­fullum hætti og dæmin um það fylgja máls­skjölum og eru fjöl­miðlum til­tæk. Þær hafi t.d. fært inn 150.000 atkvæði á Joe Biden í sam­fellu“.

Leið­ara­höf­und­ur­inn tekur nýkjör­inn for­seta Banda­ríkj­anna til bæna.
„Joe Biden hafði sem slag­orð strax eftir kosn­ingar að „telja beri öll atkvæði“. Það hljómar
ekki illa. En það er ekki víst að hann hafi meint að telja bæri öll lög­leg atkvæði. Að telja hin er auð­vitað ósvinna. Það liggur fyrir að póst­stimplar voru fals­aðir í stórum stíl, spurn­ingin er aðeins í hvað stórum stíl“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

stjórmál

Þjóðin mun kjósa um ESB viðræður á kjörtímabilinu
Innlentstjórmál

Þjóðin mun kjósa um ESB við­ræður á kjör­tíma­bil­inu

Eitt af stefnu­málum Val­kyrj­u­stjórn­ar­innar sem kynnt verður á morgun er að kosið verði um áfram­hald­andi við­ræður við ESB um inn­göngu Íslands í sam­bandið en Heim­ildin greinir frá þessu. Samkvæmt heim­ildum Heim­ild­ar­innar var lítil and­staða við þessa hug­mynd innan hóps­ins en óljóst er þó hvenær kosið verður um við­ræð­urnar en gera megi ráð fyrir að það verði á seinni hluta kjör­tíma­bils­ins....
„Hverjir þiggja þessa sporslu í dag? Þau Logi, Sigmundur Davíð, Inga Sæland og Þorgerður Katrín“
Innlentstjórmál

„Hverjir þiggja þessa sporslu í dag? Þau Logi, Sig­mundur Davíð, Inga Sæland og Þor­gerður Katrín“

Sam­fé­lags­rýn­ir­inn Björn Birg­is­son úr Grinda­vík seg­ist litla sem enga virð­ingu bera fyrir þeim Loga Ein­ars­syni, for­manni Sam­fylk­ing­ar­innar, Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni, for­manni Mið­flokks­ins, Ingu Sæland, for­manni Flokks fólks­ins, og Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur, for­manni Við­reisnar. Ástæðan eru auka­greiðsl­urnar sem þau þiggja fyrir að vera for­menn flokka en ekki ráð­herrar, greiðslur sem tryggðar voru á valda­tíma Davíðs Odds­sonar. Björn gengur svo langt að...
Spilling og afsagnir íslenskra stjórnmálamanna: Þjófnaður, misnotkun valds og siðferðisbrot
Innlent

Spilling og afsagnir íslenskra stjórn­mála­manna: Þjófn­aður, mis­notkun valds og sið­ferð­is­brot

Oft er um það rætt að íslenskir stjórn­mála­menn, núver­andi og fyrr­ver­andi, kom­ist upp með næstum hvað sem í sam­ban­burði við nágranna­lönd okkar. Þó hafa kjörnir full­trúar okkar verið látnir taka pok­ann sinn öðru hvoru. Lítum á nokkur mál sem vöktu mikla athygli og end­uðu í brott­för við­kom­andi úr emb­ætti. Við byrjum aftur á Jóni Baldvini, en á næstu dögum verður...
Illugi hefur fengið nóg: „Takk kærlega, Katrín og Svandís, fyrir að hafa haldið þessum spillta forréttindaflokki við völd“
Innlentstjórmál

Illugi hefur fengið nóg: „Takk kær­lega, Katrín og Svandís, fyrir að hafa haldið þessum spillta for­rétt­inda­flokki við völd“

Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra hefur beðist afsök­unar á því að þegið boð Land­helg­is­gæsl­unnar um þyrlu­flug frá Suð­ur­landi til Reykja­víkur og til baka. Stundin greindi frá því í gær að þyrla Land­helg­is­gæsl­unnar hafi sótt Áslaugu í Reyn­is­fjöru á fimmtu­dag­inn en þar var hún stödd í hesta­ferð. Þetta er enn annað hneyksl­is­málið tengt ráð­herra Sjálf­stæð­is­flokks­ins á stuttum tíma. Skemmst er að minn­ast...
Innlent

16% orðið fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni í vinn­unni á Alþingi

Nið­ur­stöður könn­unar á starfs­um­hverfi og vinnu­staða­menn­ingu Alþingis með sér­stakri áherslu á ein­elti, kyn­ferð­is­lega og kyn­bundna áreitni voru kynntar í gær. Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis, fól Félags­vís­inda­stofnun Háskóla Íslands að gera könn­un­ina sem var net­könnun með spurn­ingum bæði til þing­manna og starfs­fólks. Hann segir nið­ur­stöð­urnar slá­andi. „Ég tel afar mik­il­vægt að þessi könnun hafi verið gerð sem liður í aðgerðum,...
Olíumálverk af Bjarna vekur athygli – „Það er eins og það sé auðveldara að selja umdeilda menn“
Innlentstjórmál

Olíu­mál­verk af Bjarna vekur athygli – „Það er eins og það sé auð­veld­ara að selja umdeilda menn“

Olíu­mál­verk af Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sem er til sölu á Facebook hefur vakið mikla athygli síðan verkið var sett á sölu í gær. Lista­mað­ur­inn, Gunnar Kr. Þórð­ar­son, er kom­inn með tíu til­boð í verkið, hæsta boð upp á 50.000 krónur. Verkið er 50 x 40 sentí­metrar á stærð. „Mynd­listin hefur alltaf verið nálægt mér, alveg frá því að...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins