„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

60 ótímabær dauðsföll á ári – Sveitarfélögin geta gert betur

60 ótímabær dauðsföll á ári – Sveitarfélögin geta gert betur
Mynd fengin úr fyr­ir­lestri Þor­steinn um ryk­bind­ingu.

Svifryks­mengun á höf­uð­borg­ar­svæð­inu veldur um 60 ótíma­bærum dauðs­föllum á ári. Rann­sóknir á sam­setn­ingu svifryks hafa sýnt að mal­bik­sagnir eru meira en helm­ingur svifryk­sagna og vega nagla­dekk þungt þegar kemur að sliti á götum. Þetta er með öllu óásætt­an­legt að mati neyt­enda­vakt­ar­innar og alls ekki nógu margir íbúar á svæð­inu sem axla ábyrgð á vanda­mál­inu með því að snið­ganga nagla­dekk, taka strætó, hjóla eða ganga. En þeir sem hjóla og/eða ganga kvarta eðli máls­ins sam­kvæmt undan loft­gæðum enda suma daga varla hundi út sig­andi fyrir mengun.

En hvað er til ráða?

Neyt­enda­vakt man.is fjall­aði um málið í síð­ustu viku og tal­aði við Þorstein Jóhanns­son, loft­gæða­sér­fræð­ingur hjá Umhverf­is­stofnun. Stofn­unin hefur lagt til að gjald verði lagt á nagla­dekkja notkun. Slíkt hafa reynst vel í Noregi. Gjaldið fái fólk til að hugsa sig tvisvar um.

En það er annað sem hann nefnir.

„Vissu­lega þarf líka að þrífa göt­urnar, það þarf að fjar­lægja óhrein­indin sem safn­ast upp á þeim, sem að stærstum hluta eru slitið mal­bik. En yfir vet­ur­inn getur verið erf­ið­leikum bundið að þrífa þegar það er frost eða snjór. Götu­sópar aka á göngu­hraða þegar þeir eru að sópa og jafn­vel þó mörg tæki séu í notkun sam­tímis þá er tím­inn sem tekur að sópa mældur í dögum eða jafn­vel vikum. Þegar búið er að sópa allar helstu götur þarf svo strax að byrja aftur því mal­bik­slitið er fljótt að safn­ast upp aftur. Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu gætu gert miklu meira af því að ryk­binda. Það er hægt að ryk­binda helstu umferð­ar­götur á parti úr degi og er það miklu fljót­legri og áhrifa­rík­ari leið en að þrífa a.m.k. yfir hávet­ur­inn þegar stór hluti bíla er á nagla­dekkjum.“

Þor­steinn bendir á að vet­ur­inn 2017 – 2018 hafi svifryks­mengun farið 12 sinnum yfir heilsu­vernd­ar­mörk en aðeins hafi verið ryk­bundið 3var. Þá hafi nágranna sveit­ar­fé­lög Reykja­víkur aldrei gert það; Kópa­vogur, Hafna­fjörður, Garðabær og Mos­fells­bær. Ryk­bind­ing hefur gefið góða raun á hinum norð­ur­lönd­unum og í Stokk­hólmi er jafn­vel ryk­bundið í nokkra tugi skipta á hverjum vetri. Þá segir Þor­steinn að hægt sé að sam­þætta betur hálku­varnir og ryk­bind­inu og að inn á miðju nagla­dekkja tíma­bili fáist senni­lega mest fyrir pen­ing­inn með ryk­bind­ingu.

„Svifryks­mengun fer yfir heilsu­vernd­ar­mörk við ákveðin skil­yrði, þurrkur og logn. Þegar slíkir dagar eru í kort­unum væri hægt að byrja að ryk­binda upp úr mið­nætti áður en umh­ferðin fer af stað og þannig mætti ná niður tölu­verðri mengun.“

Segja má að helstu umferð­ar­götur í mörgum sveit­ar­fé­lögum séu þjóð­vegir í þétt­býli. Þor­steinn spyr hvort ekki sé eðli­legt að setja kröfu á Vega­gerð­ina um að lág­marka umhverf­is­á­hrif þeirra gatna. Í öllu falli ætti ryk­bind­ing að vera eðli­legur hluti af vetr­ar­við­haldi vega í þétt­býli.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins