„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Fimm leiðir til að nýta lítil rými sem best

Fimm leiðir til að nýta lítil rými sem best

Það getur verið mikil áskorun að koma heilli búslóð fyrir þegar pláss er af skornum skammti. Mik­il­vægt er að hver fer­metri sé nýttur sem best og því nauð­syn­legt að hafa gott skipu­lag. Lítil rými geta auð­veld­lega litið út fyrir að vera ofhlaðin ef skipu­lagið er ekki gott sem getur svo valdið íbúum streitu. Hér eru nokkur góð ráð til þess að nýta lítil rými betur.

Ekki láta geymslu­pláss taka frá þér dýr­mæta fer­metra. Margir kvarta undan of litlu geymslu­rými í litlum íbúðum en þá er líka vert að skoða hvort þess sé raun­veru­lega þörf. Gott ráð er að byrja ekki að skipu­leggja geymslu­rými fyrr en búið er að grisja og gefa frá sér þá hluti sem ekki er þörf fyrir lengur. Þá er gott að skoða hvort ekki sé hægt að hanna geymslu­rými undir rúmi og not­ast við aðrar skyldar lausnir í stað þess að taka heilt her­bergi undir dótið sem þarf að geyma.

Nýttu loft­hæð­ina. Þegar lítil rými eru skipu­lögð þarf ekki bara að taka til­lit til þess hversu stór gólf­flöt­ur­inn er heldur þarf einnig að skoða vel hvort ekki sé hægt að nýta loft­hæð­ina betur. Þetta á til dæmis við þegar inn­rétt­ingar eru settar upp en þá er betra að láta þær ná alveg upp í loft til þess að skapa sem mest skápa­pláss. Húsgögn líkt og rúm taka yfir­leitt mikið pláss svo það er vert að skoða hvort mögu­leiki sé að hækka rúmið upp um 2-3 metra sé loft­hæðin góð og nýta plássið sem skap­ast undir rúm­inu til dæmis fyrir sófa eða útbúa litla heima­skrif­stofu. Þessi lausn getur verið sér­stak­lega hentug í stúd­íó­í­búðum.

Veldu umfangs­minni hús­gögn. Húsgögn, eins og sófar og hæg­inda­stólar, geta verið fyr­ir­ferð­ar­mikil. Algeng mis­tök í litlum rýmum er að velja of stór hús­gögn. Tungu­sófar geta tekið of mikið pláss og því getur verið ágætis lausn að velja sér fyr­ir­ferð­ar­minni sófa með grennri örmum án þess að sæta­fjöld­anum fækki. Hægt er svo að kaupa skemil sem gegnir svip­uðum til­gangi og tungan sem hægt er að færa til eftir þörfum. Hring­borð og spor­öskju­laga borð koma oft betur út en fer­hyrnd í litlum rýmum og auð­veld­ara er að koma fyrir fleiri sætum við þau. Í eld­húsum er snið­ugt að vera með eld­hús­eyjur á hjólum sem auð­velt er að færa til eftir þörfum í stað þess að hafa þær gólf­fastar.

Nýttu vegg­plássið eftir fremsta megni. Málverk og myndir er ekki það eina sem má hengja á veggi. Potta og pönnur má vel hengja upp í eld­húsum. Að vegg­hengja bóka­hillur í stað þess að láta þær standa á gólfi og með því að halda gólf­flet­inum hreinum lítur rýmið út fyrir að vera stærra. Í geymsl­unni er það góð hug­mynd að hengja upp úti­vist­ar­bún­að­inn, reið­hjólið og skíðin, auka­stóla og ýmis­legt fleira sem þörf er á að geyma.

Inn­byggðar hirslur og hús­gögn. Það getur verið góð lausn að nýta rými undir stigum fyrir geymslu en slík rými nýt­ast yfir­leitt illa að öðru leyti. Í dag er einnig algengt að sjá inn­byggð og fjöl­nota hús­gögn í litlum rýmum. Má þar til dæmis nefna rúm sem pakkað er saman eftir notkun og hillur sem nýt­ast einnig sem borð. Þessar lausnir krefj­ast þó sér­smíði en geta verið góð fjár­fest­ing engu að síður. Í eld­húsum kemur oft vel út að hafa tækja­s­kápa inn­byggða.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hús & híbýli

Landsliðs- og markadrottning selur í Mosfellsbæ
MannlífiðHús & híbýli

Lands­liðs- og marka­drottn­ing selur í Mos­fellsbæ

Berglind Björg Þor­valds­dóttir, lands­liðs­kona í knatt­spyrnu, og Kristján Sig­urðs­son hafa ákveðið að selja heim­ili sitt í Mos­fells­bænum. Berglind hefur á und­an­förnum ára­tug verið ein besta knatt­spyrnu­kona lands­ins og algjör marka­drottn­ing. Þá hefur hún spilað 72 lands­leiki fyrir Ísland og skorað í þeim leikjum 12 mörk. Hún skipti nýlega úr Val yfir í Breiða­blik eftir að for­ráða­menn Vals létu Berg­lindi vita...
Litrík og skemmtileg heimili í nýja blaðinu
MannlífiðHús & híbýli

Litrík og skemmti­leg heim­ili í nýja blað­inu

Þau eru ansi lit­rík og skemmti­leg heim­ilin sem við hjá Húsum og híbýlum heim­sóttum fyrir nýja blaðið okkar sem er komið í versl­anir. Stofur og borð­stofur eru í aðal­hlut­verki í þessu blaði ásamt inn­litum inn á íslensk heim­ili þar sem per­sónu­legur stíll ræður ríkjum. Það er fal­leg íbúð þeirra Hebu Fjal­ars­dóttur og Birgis Har­alds­sonar sem prýðir for­síð­una að þessu sinni....
Hvað ætla hönnuðirnir að sjá á HönnunarMars?
MannlífiðHús & híbýli

Hvað ætla hönn­uð­irnir að sjá á Hönn­un­ar­Mars?

Umsjón/ María Erla og Guðný Hrönn Hönn­un­ar­Mars hefst á morgun, 19 maí, og er þetta í 13. sinn sem hátíðin er haldin. Við­burð­ur­inn er stærsta hönn­un­ar­há­tíð lands­ins. Við heyrðum í nokkrum hönn­uðum sem sýna á Hönn­un­ar­Mars í ár og spurðum þau meðal annasr út í hvað þau ætla að sjá. Sig­mundur Frey­steins­son fata­hönn­uður Hvað ert þú að sýna á Hönn­un­ar­Mars?...
Deiglumór, áhugaverð heimildabók um leirlist á Íslandi 1930–1970
Mannlífið

Deiglu­mór, áhuga­verð heim­ilda­bók um leir­list á Íslandi 1930–1970

Í ár kom út bókin Deiglu­mór: Keramik úr íslenskum leir 1930-1970. Í bók­inni er farið yfir sögu leir­list­ar­innar sem hefur fylgt mann­kyn­inu frá örófi alda og segja má að sé órjúf­an­legur hluti af menn­ingar- og lista­sögu heims­ins. Hugtakið deiglu­mór er fornt orð yfir leir og vitnar í notkun hans á Íslandi til deiglu­gerðar á öldum áður. Sú saga er fallin...
Handgerð og eftirtektarverð sojakerti
Mannlífið

Handgerð og eft­ir­tekt­ar­verð soja­kerti

Kerti í alls konar birt­ing­ar­formum hafa verið vin­sæl upp á síðkastið; svo sem lík­ams­kerti og snún­ings­kerti og því óvenju­legri því skemmti­legri að okkar mati. Mynd / soyar Við rák­umst á þetta breska vöru­merki, soyar, sem býður upp á úrval soja­kerta í alls konar útfærslum og litum. Mynd / soy­ar­Mynd: Höfundur ókunnur Kertin eru hand­gerð úr soja­vaxi, eit­ur­efna­laus og vegan. Glæddu...
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Mannlífið

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður