„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Neytandi vikunnar: Stór hluti þjóðfélagsins rúllar um í stjórnlausri neyslu

Neytandi vikunnar: Stór hluti þjóðfélagsins rúllar um í stjórnlausri neyslu

Geir Konráð Theo­dórs­son, sögu­maður í Borga­nesi, er neyt­andi vik­unnar að þessu sinni. Geir lýsir sér sem frekar venju­legum neyt­anda. Hann kaupir það sem þarf, lætur eftir sér öðru hvoru og gefur gjafir þegar þannig liggur á honum.

„Þegar kemur að mat þá reyni ég að kaupa eitt­hvað sem er fjöl­breytt og hollt, og nær alltaf kaupi ég hrá­efni til að elda sjálfur í stað­inn fyrir ein­hverja unna eða til­búna vöru. Ég hef smá þekk­ingu á aug­lýs­inga­sál­fræði og mark­aðs­fræði þannig að ég reyni sem mest að sjá í gegnum umbúð­ar­bullið og hugsa bara um vör­una og verðið sjálft.“

Geir lumar á mjög góðu neyt­enda­ráði. Þegar kemur að fatn­aði og gjöfum, flettir hann vör­unum upp á net­inu ber saman verð við búðir erlendis til að sann­reyna hvort álagn­ing hér sé sann­gjörn.

„Ekki láta blekkja þig! Með bless­aða snjall­sím­anum hefur aldrei verið auð­veld­ara að fletta vörum upp og bera saman verð og upp­lýs­ingar, það tekur enga stund.“

Þegar kemur að sam­göngum seg­ist Geir keyra lít­inn spar­neyt­inn bíl og labbar þegar veðrið er gott. „Það er bara svo ári dýrt að eiga bíl á Íslandi að auð­vitað hefur maður sparnað í huga, sem er hjá mér að vera ekk­ert að rúnta að óþörfu.“

Uppruni afurða skiptir Geir líka máli. Hann seg­ist iðu­lega spyrja sig spurn­inga á borð við:

Er bómull­inn í H&M fatn­að­inum týndur af börnum í þræl­dómi í mið-Asíu?

Er Barilla pasta­fyr­ir­tækið enn með for­dóma gagn­vart sam­kyn­hneigðum?

Er bragð­góða súkkulaðið þess virði að nátt­úr­unni er rústað í vestur-Afríku?

Leggur þú fyrir?

„Ég reyni en það er ekki auð­velt, það virð­ist alltaf vera eitt­hvað sem þarf að borga.“

Hvað átt þú erf­ið­ast með að neita þér um?

„Hljóð­bækur, hvort sem það er góð­æri eða kreppa, ég mun alltaf kaupa góðar hljóð­bækur til að skemmta mér eða læra eitt­hvað nýtt á hverjum degi.“

Geir dvaldi um tíma í Níger í Afríku og lærði mikið af þeirri dvöl.

„Mér finnst hrein­lega skammar­legt að sjá hvernig stór hluti þjóð­fé­lags­ins rúllar um í hugs­un­ar­lausu óhófi og stjórn­lausri neyslu. Munum hvað við erum heppin og tökum smá stund til að vera þakk­lát með það sem við höfum.“

Geir í hlut­verki sínu sem sagna­maður
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins