„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

„Í jafnréttisparadísinni Íslandi bera konur enn meiri ábyrgð á heimilisstörfum“

„Í jafnréttisparadísinni Íslandi bera konur enn meiri ábyrgð á heimilisstörfum“

„Bæði inn­lendar og erlendar rann­sóknir benda til þess að ólaunuð vinna mæðra hafi auk­ist í kór­óna­veiru­far­aldr­inum. Það er nefni­lega þannig í jafn­réttisparadís­inni Íslandi að mæður bera enn meiri ábyrgð á heim­il­is­störfum og barna­upp­eldi,“ þetta skrifar Andrea Sigrún Hjálms­dóttir, félags­fræð­ingur, gull­smiður og lektor við Félags­vís­inda­deild Háskól­ans á Akureyri í mið­il­inn Akureyri.is 

Í pistil­inum segir Andrea að lífi okkar flestra hafi verið snúið á hvolf eftir að fyrsta kór­ónu­veirusmitið greind­ist hér á landi í lok febr­úar. Margir vinni nú heima og þegar fólk sé svona mikið heima verði utan­um­hald heim­il­is­lífs­ins mun yfir­grips­meira en áður. Matseld og til­tekt sé farin að taka óþarf­lega mik­inn tíma í dag­legur lífi. Margir for­eldrar hafi þannig upp­lifað mikið álag tengt far­aldr­inum þegar kemur að heim­il­is­lífi – einkum mæður.

„Íslenskir feður hafa sann­ar­lega tekið sig á í að sinna börnum sínum á síð­ustu árum en heim­il­is­störfin virð­ast að ein­hverju leyti sitja eftir og einnig skipu­lags­vinnan, sem kölluð hefur verið hug­ræn byrði (e. mental load), bæði hvað varðar heim­il­is­haldið og börnin. Þegar heim­ilin fá svo skyndi­lega í fangið alla þá vinnu sem venju­lega fer fram utan heim­ilis þá lendir sú vinna frekar á mæðrum.“

Andrea segir að pistill­inn sé hvatn­ingapist­ill til karla að taka enn meiri þátt inni á heim­il­inum. Ekki bara á tímum heims­far­ald­urs heldur bara alltaf og ekki bara með því að elda eða henda sneiðum á grillið, heldur að taka þátt í skipu­lagn­ingu heim­il­is­halds­ins. Að hafa frum­kvæði að til­tekt, þrifum og þvotti. Halda utan um daga­talið, kaupa jóla­gjafir, panta tíma í klipp­ingu og áfram mætti lengi telja.

„Við erum nefni­lega flest með­vituð um að verk­stjórn á vinnu­stöðum krefst mik­illar vinnu og fyrir það fá verk­stjórar greitt sér­stak­lega. Það er líka heil­mikil vinna að skipu­leggja heim­il­is­hald fjöl­skyldu, en það er bæði ólaunuð og oft ósýni­leg vinna en svaka­lega lýj­andi. Það er til mjög mik­ils að vinna fyrir íslenskar fjöl­skyldur að dreifa slíku vinnu­á­lagi á milli full­orð­inna sam­býl­inga, svo ekki sé talað um vinnu­mark­að­inn. Hlutverk í fjöl­skyld­unum eru félags­lega lærð sem er svo frá­bært því þá er hægt að breyta þeim. Tímarnir sem við lifum núna eru sann­ar­lega krefj­andi en gefa okkur líka tæki­færi til að end­ur­hugsa hlut­verk okkar og skipu­lag í fjöl­skyldu­gerð­inni. Sumar rann­sóknir benda til þess að jafn­ari verka­skipt­ingu fylgi meira ást­ríki í para­sam­böndum. Sann­ar­lega til mik­ils að vinna.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins