Útköll slökkviliðsins eru af ýmsu toga. Í óveðrinu sem gekk yfir á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku gekk eitt útkallið út á að aðstoða húsráðanda sem var í vandræðum með um 8 fermetra svalahurð sem ætlaði inn í stofu í rokinu, „…enda má segja að húsið hafi verið með vindinn í fanginu,“ segir á
Facebook-síðu
slökkviliðsins.„Okkar fólk var ekki lengi að redda málunum og stífaði hurðina tryggilega.Já, hann er mikill mannauðurinn og margir sérfræðingarnir innan SHS.“Á síðunni kemur líka fram að 117 sjúkraflutningar voru síðasta sólarhringinn, þar af 28 forgangsflutningar. Þá var farið í 6 Covid flutninga. Minna var að gera á slökkvibílunum, sem betur fer eða 2 útköll.




















Athugasemdir