„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Erla Rós var alin upp í skugga morðs: „Erfitt þegar pabbi dó í síðasta mánuði“

Erla Rós var alin upp í skugga morðs: „Erfitt þegar pabbi dó í síðasta mánuði“
Erla Rós Bjarka­dóttir

„Ég varð mjög reið yfir því að hann hafi aldrei verið þessi pabbi sem alla dreymir um að eiga en svo fann ég líka fyrir sam­visku­biti yfir því að hafa ekki gefið honum meiri tíma,“ segir Erla Rós Bjarka­dóttir, sem var aðeins níu ára þegar pabbi hennar varð manni a bana.

„Barinn með bús­á­haldi“ og „Eins og að ganga inn í slát­ur­hús“ eru meðal fyr­ir­sagna sem birt­ust í fjöl­miðlum dag­inn eftir að Bjarki Freyr Sig­ur­geirs­son varð Braga Frið­þjófs­syni að bana við Dals­hraun í Hafn­ar­firði þann 17. ágúst 2009.

Í við­tali sem blaða­mað­ur­inn Gígja Hilm­ars­dóttir tók við Erlu Rós lýsir hún því hvernig var að alast upp í skugga þessa hrika­lega morðs.

Atburð­ur­inn tók mikið á Erlu þrátt fyrir fyrir að tengslin við föður hennar hefðu verið lítil frá tveggja ára aldri. „Ég hugs­aði bara að allir krakk­arnir ættu venju­lega for­eldra en ég væri barnið sem ætti pabba sem hafði drepið mann. Það var samt alltaf verið að minna mig á að ég þyrfti ekki að skamm­ast mín. Þetta væri ekki mér að kenna að pabbi minn hafi gert þetta…“

Erla Rós Bjarka­dóttir þurfti að öðl­ast allt annan skiln­ing á líf­inu en önnur börn þegar hún var aðeins níu ára. Þá gerð­ist faðir hennar sekur um mann­dráp eftir mikla neyslu og óreiðu til fjölda ára.

Eftir því sem Erla nálg­að­ist ung­lings­árin varð hún æ for­vitn­ari að vita hvað hefði nákvæm­lega gerst í íbúð föður hennar að Dals­hrauni og hvers vegna hann sæti inni á Litla Hrauni og átti eftir að gera í nokkur ár í við­bót. „Ég fór að fletta upp nafn­inu hans á net­inu og fann þar rétt­ar­dóms­skýrslu og Neyð­ar­línu þátt. Ég horfði á þátt­inn og fór að hágráta.“

Á þessum tíma var Erla að byrja átt­unda bekk í Garða­skóla. „Ég var bara þrettán ára, að byrja að átta mig á hvernig lífið virk­aði. Ég varð ótrú­lega sár og reið út í hann að hafi gert þetta. Ég hafði ekki hug­mynd um að þetta hafði verið svona ótrú­lega gróft.

Erla sagði engum frá því að hverju hún hefði kom­ist þegar hún fletti upp nafni pabba síns á net­inu og reiðin og skömmin magn­að­ist innra með henni. Þetta braust út í miklu óör­yggi sem hafði áhrif á skóla­göng­una. „Í átt­unda bekk fór sjálfs­myndin mín bara að brotna og óör­yggið fór á hæsta stig. Ég setti á mig risa skjöld og átti mjög erfitt þessi sein­ustu þrjú ár í grunn­skóla. Ég var bara algjört vesen og fór mikið út af braut­inni.“

„Í maí á þessu ári fékk ég ógeð af líf­inu, ég bara varð að taka mig á. Ég sagði frá vanda­málum mínum, fór vinna í sjálfri mér og styrkja mig sem mann­eskju. Ég byrj­aði að opna mig fyrir fjöl­skyld­unni og ját­aði mig sigr­aða. Ég fékk ótrú­lega mik­inn stuðn­ing sem ég er svo þakk­lát fyrir. Það var erfitt þegar þegar pabbi dó í síð­asta mán­uði. Ég var búin að vinna mikið í sjálfri mér og það var mik­ill skellur að fá frétt­irnar um að pabbi væri dáinn. Þetta voru flóknar til­finn­ingar, því það er svo margt sem vekur sorg og reiði,“ segir Erla.

Bjarki Freyr fannst lát­inn á heim­ili sínu 4. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Hér má lesa við­talið við Erlu í heild sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins