„Ráðherra getur ekki afsakað sig“
Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Kristinn lektor segir mál Jóns Þórs sanna að konur eyðileggi vinnustaði karla

Kristinn lektor segir mál Jóns Þórs sanna að konur eyðileggi vinnustaði karla

Kristinn Sig­ur­jóns­son, áður lektor við Háskól­ann í Reykja­vík, segir mál Jóns Þórs Hauks­sonar, frá­far­andi þjálf­ara lands­liðs kvenna í fót­bolta, „end­an­lega sanna að hann hafði rétt fyrir sér“. DV greindi frá því árið 2018 að Kristinn hefði sagst varla getað hugsað sér að starfa með konum og var í kjöl­farið rek­inn. Mál Kristins vakti mikla athygli en málið end­aði með dóms­máli en Kristinn tap­aði mál­inu.

Kristinn lét áður­nefnd orð falla í Karl­mennsku­spjall­inu, lok­uðum hópi á Facebook og það gerir hann einnig um nú. „Ég benti á það í færslu á karl­manna­spjall­inu að þegar konur koma inn á vinnu­stað karla þá þurfa þeir að tala, hugsa og hegða sér ein og konur (þar sem ég var á karl­mennsku­spjall­inu þá orð­aði ég þetta kar­lægt og sagði „eins og kerl­ingar“). Vegna þess að það var lítil mús (rektor, hér er ekki nein „kvenn­fyr­ir­litn­ing“ eins og Koldísi finnst) sem setti sig ekki inn í umræð­una, þá er ég eins og nú Jón þór atvinnu­laus,“ skrifar Kristinn.

Sjá einnig: Andra slátrað: „Ágætt að renna í gegnum lækin á þetta og sjá hverjir eru rass­hausar.“

Hann telur allar líkur á því að bróðir hans, Andri, fái sömu örlög en mörgum blöskrar ummæli hans á Twitter. „Og nú er við­búið að Andir Júlíus kom­ist í hóp­inn af sömu ástæðu. Ég benti á það í minni færslu að kannski ætti að aðgreina vinnu­staði karla og kvenna, en það fellur líka í grýttan jarð­veg. Þegar ungir karl­menn eru komnir á þennan aldur þá eru kennslu­konur búnar að reyna að fá þá til að hegða sér, hugsa og tala eins og konur í rúm­legan ára­tug og árang­ur­inn dapur. Það er spurn­ing hvort þetta sé kennslu­kon­unum eða strák­unum að kenna, því það trúir eng­inn að þetta sé líf­ræð­inni að kenna eins og er í sveit­inni,“ skrifar Kristinn.

Flestir með­limir hóps­ins „Karl­mennsku­spjallið“ sem tjá sig um málið virð­ast sam­mála honum, nema einn sem segir mis­tök hjá Jóni að ausa úr skálum reiði sinnar í glasi. Annar karl gengur lengra en Kristinn og segir vanda­mál hrein­lega fylgja kvenna­liðum. „Banda­ríska kvenna­lands­lið er sjálft búið að vera í steik í mörg ár. Fullt af les­b­íum þarna, drykkja, með­ferðir, lyfja­mis­ferli, hand­tökur fyrir heim­il­is­of­beldi og nekt­ar­myndir sem þær sjálfar tekið og hvernig þær eru rak­aðar á milli fót­anna,“ skrifar sá karl á spjallið kennt við karl­mennsku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Mannlífið

Íslendingur kom upp um rússneska njósnara: „Tveir af njósnurum erlends stórveldis stóðu afhjúpaðir“

Landið

Forstöðumanni hjá Akureyrarbæ sagt upp eftir ásakanir um kynferðislega áreitni

Mannlífið

Glitfaxi – flugvélin sem hvarf: „Hún reyndi hvað hún gat að telja afa hughvarf“

Mannlífið

Frækileg björgun Víkverja er Sigurbjörg strandaði – Aðstæður erfiðar vegna roks og sandbyls

Landið

Undirbýr stefnu á hendur Móglí ehf. – Eigandinn skeytir ekkert um dagssektirnar

Mannlífið

Tveir ungir skátar urðu úti í Eyjafirði – Þrír aðrir lifðu af, mjög þrekaðir

Landið

Heldur enn í vonina um að Luna og Stitch finnist: „Ég er ekki alveg reiðubúin að afskrifa þá ennþá“

Mannlífið

Hópur afbrotaunglinga nappaður á Sauðárkróki – Innbrot, búðar- og jólaskrautsþjófnaður

Mannlífið

Íslendingur yfirbugaði bankaræningja í Kaupmannahöfn: „Hann er spennufíkill“

Mannlífið

Hið dularfulla hvarf Þverárhrossanna: „Enn ófundnir og útlitið versnar stöðugt“

Mannlífið

Robert Þorvaldsson bjargaði fjórum frá drukknun í Boston-flóa

Mannlífið

Köttur stórslasaði sex ára dóttur Jórunnar: „Þetta var alveg hræðilegt. Það blæddi svo mikið”

Mannlífið

Íslenskur flugvirkjanemi nær drepinn af landa sínum í Tulsa – Fór á ball eftir barsmíðarnar

Innlent

Innlent

Gagnrýnir framferði Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar hart: „Svona fólk þarf meðferð en ekki völd“

Innlent

VÆB-bræður fá viðvörun frá Ísrael: „Það er ómögulegt“

Innlent

Borgin hefur veitt yfir 70 styrki á fimm árum af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum

Innlent

Össur hrósar viðbrögðum Þórdísar Lóu: „Fýlan lak í lítratali af Einari“

Innlent

Nær allir telja agaleysi ríkja í grunnskólum landsins